Fréttablaðið - 11.08.2007, Side 40
STEFNAN SETT Á UEFA-SÆTI
Það er engan bilbug að finna á
Eggerti þrátt fyrir að tímabilið í
fyrra hafi verið erfitt fyrir West
Ham og að liðið hafi bjargað
sér frá falli í síðustu umfer-
ðinni. Hann stefnir ótrauður að
háleitum markmiðum og segir
við Sport að markið sé sett á
UEFA-sæti á komandi tímabili.
„Ef við náum þeim leikman-
nahópi sem við vonumst eftir
þá vil ég stefna á UEFA-sæti.
Við ætlum okkur í það minnsta
að vera í efri hluta deildarin-
nar,“ segir Eggert.
Koma Freddie Ljungberg frá
Arsenal hefur haft mikil og
góð áhrif á leikmenn West
Ham að sögn Eggerts. „Það
tók talsverðan tíma að klára
það að fá Ljungberg hingað en
það er sterkt fyrir félagið að fá
mann sem hefur unnið næstum
allt Hann veit út á hvað þetta
gengur og mun færa okkur
framar.“
Já, það er gaman að
heyra þetta,“ segir
Eggert Magnússon,
stjórnarformaður
West Ham, þegar
Sport færir honum
þær fréttir að hann sé nánast í
guðatölu hjá stuðningsmönnum
West Ham. Í samtölum við stuðn-
ingsmennina fyrir leik Leyton Ori-
ent og West Ham kom fram að þeir
eru afar ánægðir með íslenska
stjórnarformanninn sinn.
„Hr. Magnússon er frábær. Nýir
eigendur virðast ætla að setja mik-
inn pening inn í félagið. Hann virk-
ar sem afskaplega viðkunnanlegur
og eðlilegur náungi. Hann hefur
gert mikið fyrir félagið, fengið góða
leikmenn og ég vona að við upp-
skerum eftir því,“ sagði Andrew
King sem haldið hefur með West
Ham í góð fjörutíu ár. Sama hljóðið
er alls staðar. Eggert er vinsæll af
því að hann gefur sér tíma fyrir
fólkið, mætir á alla leiki og síðast en
ekki síst virðast nýir eigendur ætla
að setja mikla peninga inn í félagið
sem nýtist til að fá góða leikmenn
og borga þeim góð laun.
„Ég hef frá byrjun gefið mér
tíma til að sinna stuðningsmönn-
unum enda eru þeir lífæð félags-
ins. Án þeirra væri félagið ekki
neitt. Það verður að sýna þeim
kurteisi og virðingu og það er
kannski eitthvað sem leikmenn
mættu gera meira af,“ segir Egg-
ert. Á umræddum leik gaf Eggert
sér tíma til að gefa eiginhandarár-
itanir til ungra aðdáenda og stillti
sér upp í hverja myndatökuna á
fætur annarri með bros á vör.
„Ég hef fundið fyrir miklum
stuðningi frá því að ég kom hingað
og ekki síður Björgólfur. Stuðn-
ingsmennirnir okkar er frábærir
og við látum þá finna fyrir því að
þeir eru hluti af félaginu. Það er
afskaplega mikilvægt,“ segir Egg-
ert sem hefur ekki misst úr nema
einn leik síðan hann tók við stjórn-
artaumunum í West Ham.
„Ég missti af leiknum gegn
Watford í febrúar þegar ég var að
hætta sem formaður KSÍ. Annars
hef ég alltaf mætt á leiki enda er
ég fyrst og fremst bara fótbolta-
kall. Ég lifi og hrærist í þessu og
sýni tilfinningar. Á leikjum er ég
bara stuðningsmaður West Ham
eins og allir hinir og upplifi bæði
sorgina og gleðina,“ segir Eggert.
Það fer ekki á milli mála að Eggert Magnússon,
stjórnarformaður West Ham, er vinsæll meðal
stuðningsmanna liðsins. Sport fór á leik Leyton
Orient og West Ham fyrir rúmum tveimur vikum
og komst að því að Eggert Magnússon er eins og
kvikmyndastjarna í augum stuðningsmannanna.
EFTIR ÓSKAR HRAFN ÞORVALDSSON
SUE „Hr. Magnússon er frábær.
Hann hefur keypt inn góða
leikmenn og sýnt að hann hefur
mikinn metnað til að ná góðum
árangri. Hann er mjög áhugasamur
og hefur slegið í gegn hjá mér.”
MR. ATKINSSON „Hr. Magn-
ússon er frábær stjórnandi og mjög
góður stjórnarformaður. Hann hefur
keypt mjög góða leikmenn eins og
Ljungberg og fleiri. Hann er stjórn-
arformaður sem menn ættu að vara
sig á því hann getur farið langt með
West Ham.”
TOM „Fyrsta tímabilið hjá honum
var afar erfitt en mé fannst hann
komast vel frá því. Hann er gífur-
lega áhugasamur, mætir á alla leiki
og það verður gaman að fylgjast
með honum þegar hann fær heilt
tímabil án vandræða fyrri stjórnar.”
PHIL „Hann er góður stjórnar-
formaður sem hefur fært félaginu
mikið. Hann hefur augljóslega
komið með mikla peninga inn í
félagið og ég er afskaplega ánægð-
ur með hann.”
11. ÁGÚST 2007 LAUGARDAGUR4 sport
Arnór Guðjohnsen
Anderson, Manchester United
„Hann er ungur og efnilegur og
það er því hægt að vinna með
honum í mörg ár. Ég sá hann á
spólu þegar hann var sextán ára
með brasilíska landsliðinu og það
fór ekki á milli þá að þessi strákur
ætti eftir að ná langt,” segir Arnór
Guðjohnsen, sem er meðal annars
umboðsmaður sonar síns, Eiðs
Smára Guðjohnsen hjá Barcelona.
Ólafur Garðarsson
Hermann Hreiðarsson, Port-
smouth, Brynjar Björn Gunn-
arsson og Ívar Ingimarsson,
Reading
„Ég er með þrjá frábæra drengi
sem spila allir í ensku úrvalsdeild-
inni og ég gæti ekki hugsað mér
neina aðra leikmenn sem ég vildi
frekar hafa í ensku úrvalsdeildinni.
Þetta eru frábærir fótboltamenn
og ekki síðri einstaklingar,” segir
Ólafur Garðarsson.
Guðlaugur Tómasson
Cristiano Ronaldo, Manchester
United
„Ég myndi segja að hann væri
mest spennandi leikmaðurinn.
Hann er á rétta aldrinum og á
sín bestu ár eftir. Hann hefur
allt með sér, bæði hæfileika og
ímynd sem eru mikils virði í dag,”
segir Guðlaugur Tómasson, sem
er meðal annars umboðsmaður
Gunnars Heiðars Þorvaldssonar hjá
Hannover í Þýskalandi.
D
R
A
U
M
A
S
K
JÓ
L
S
TÆ
Ð
IN
G
U
R
IN
N » UMBOÐSMENNIRNIR LÁTA SIG DREYMA
„STUÐNINGSMENNIRNIR
ERU LÍFÆÐ FÉLAGSINS”
Eggert Magnússon
er eins og kvik-
myndastjarna í
augum stuðnings-
manna West Ham.
SPORTMYND/ADAM SCOTT
Allir stuðningsmenn Manchester United
eiga að vera með í stuðningsmannaklúbbi
MUFC á Íslandi.
Ársgjaldið er einungis kr. 2.500 fyrir allt
tímabilið og í vetur fá félagar sent glæsilegt
skírteini, medalíu, seðlaveski með merki
Man Utd, borðdagatal fyrir árið 2008,
sérmerkt endurskinsmerki, 2 - 3 glæsileg
24 síðna fréttabréf og gefum heppnum
greiðandi félögum nýju ManUtd treyjuna.
Í ár á stuðningsmannaklúbburinn 52
ársmiða á Old Trafford sem seldir verða í
samstarfi við Úrval Útsýn.
Greiðið í netbanka inn á:
0111-26-115666
kt. 471294-2339
HVAÐSEGJA
STUÐNINGSMENNIRNIR?