Fréttablaðið - 11.08.2007, Síða 72

Fréttablaðið - 11.08.2007, Síða 72
Eftir kántríkvöld í Nashville beið bilaður bíllinn eftir ferðahópnum, sem og fimm tíma keyrsla til Memphis. Við rúlluðum áfram eftir hraðbrautinni, mun hægar en aðrir bílar og það var frekar niðurdrepandi að horfa upp á aðra vegfarendur þjóta fram hjá okkur í steikj- andi hitanum. Bíllinn komst þó stórslysalaust á leiðar- enda. Eftir einn dag í Memphis var augljóst að heimamenn eru með Elvis Presley á heilanum. Sama við hvern þú talar, allir tengjast „kónginum“ á einhvern furðulegan máta. Amma stráks, sem við hittum á bar, var æsku- kærasta Elvis, faðir gengilbeinunnar á dænernum, sem við borðuðum á, kom að Elvis dauðum á klósettinu og ég gæti haldið áfram og áfram. Við gátum því ekki annað en tekið stefnuna á Graceland, heimili Elvis til fjölda ára. Ég mun seint sjá eftir þeirri ákvörðum, þar sem Graceland sýnir á mjög áhugaverðan máta hvað gerist þegar fátækur Suðurríkjadrengur fær fjárráð Holly- wood-stjörnu. Nánast allt yngra fólk, sem varð á vegi okkar í Memphis mælti með að við skoðuðum stærsta einkasafn tileinkað Elvis. „Graceland Too“ er staðsett í Holly Springs, um klukkutíma keyrslu fyrir utan Memphis. Safnið er á heimili furðufuglsins Pauls McLeod og opið allan sólarhringinn, sjö daga vikunnar, allan ársins hring. Samkvæmt ráðleggingum mættum við því klukk- an tvö eftir miðnætti og viti menn, Paul kom galvaskur til dyra. Hófst vægast sagt stórskrítinn túr um heimili hans, sem er fullt af hverju því, sem tengist Elvis á ein- hvern máta. Paul var þó áhugaverðari en flestir safn- munirnir enda talaði hann mest um sjálfan sig. Margir segja að blúsinn hafi fæðst í Memphis. Flest- ar blúsbúllurnar sem urðu á vegi okkar virtust hálf- gerðar túristagildrur og það sama má segja um kántrí- klúbbana í Nashville. Síðasta kvöldið okkar í Memphis hittum við þó naglann á höfuðið þegar við römbuðum inn á Ernestine and Hazel‘s. Í dag er þar til húsa bar, en áður var þar hótel, veitingastaður og hóruhús. Saga staðarins er vægast sagt mögnuð, þar sem hann þjónaði blökkumönnum á tímum aðskilnaðarstefnunnar og gistu því helstu blússtjörnurnar á hótelinu. Best er að á barnum er enn dimmt og drungalegt andrúmsloft og saga staðarins er ekki búin upp í glansmynd, eins og svo oft vill gerast. Maturinn í suðuríkjunum virðist einkennist af „soul food“ og „po’ boy (poor boy)“ matargerð, sem er einkar áhugaverð. Nánast allt sem hægt er að steikja er steikt og vænni klípu af smjöri bætt út á það, sem ekki er hægt að steikja. Kólesterólmagnið í líkama mínum hefur því verið í veldisvexti síðustu daga og þó matur- inn sé góður vona ég að ég komist í heilbrigðari matar- menningu von bráðar. Frá Memphis lá leiðin til New Orleans. Gert var við bílinn meðan við dvöldum í Memphis og var því keyrsl- an meðfram Mississippi-ánni einstaklega ánægjuleg. Við keyrðum fáfarna sveitavegi, gegnum litla bæi úr alfaraleið. Í Greenville stoppuðum við í „Mama’s Country Shop“ til að taka bensín. Starfsfólkið rak strax augun í að við vorum utanbæjarfólk og tóku okkur tali. Einhverra hluta vegna fékk eigandi búðarinnar, „Mama“, þá flugu í hausinn að við værum að ferðast með bát niður Mississippi-fljótið. Einn viðskiptavinur- inn var fljótur að lagfæra þann misskilning: (lesist með mesta rauðhálsa hreim sem hugsast getur) „No mama, they like them hippies. Them travel in a van.“ Starfs- fólkið kvaddi okkur með ráðleggingunum „Don’t take the wrong turn around this neck of the woods, they’ll make a woman out of you“. Við læstum því bílhurðum, skrúfuðum upp glugga og þutum suður. Dýrin sem verða fyrir bílum verða þeim mun furðu- legri eftir því sem við komumst sunnar. Í byrjun ferðar mátti oft sjá íkorna og þvottabirni í vegköntum. Stuttu eftir að við yfirgáfum Memphis sáum við beltisdýr birtast hér og þar. Þegar við keyrðum inn í Louisiana og nálguðumst New Orleans lá hvorki meira né minna en dauður krókódíll á veginum. Ég vona risaeðlur séu útdauðar í Texas. New Orleans er í ansi skrýtnu ástandi. Eyðilegging- in er enn mjög mikil í nokkrum hlutum borgarinnar, en franski fjórðungurinn, sem er helsta túristasvæðið ber nánast engin ummerki um hvirfilbylinn Katarínu fyrir utan nokkur hjólhýsahverfi, sem hýsa heimilis- lausa. Þrátt fyrir allt fjörið á „Bourbon Street“ í franska fjórðungnum, er stefnan tekin til Texas eftir nótt í New Orleans til að sjá hina sönnu Ameríku. Það var margt sem gerði Kristin svona ástsælan með þjóðinni enda kom hann víða við með sínum ljúfa söng, smitandi kímnigáfu, elsku- semi og hlýrri nærveru. Hann var sérstæður persónuleiki og auðvit- að öngum líkur – þegar hann kom í hús í menntamálaráðuneytinu og djúp röddin hljómaði um allt húsið af stigaganginum, þá lifnaði yfir öllu í ráðuneytinu. Sveinn Einarsson: Minningargrein í Mbl. 8.8. Sigurður Jónsson skrifar og kvart- ar undan ruglingi fólks á eintölu og fleirtölu. Sem dæmi tilgreinir hann „jarðaber“ og „fermingagjafir“. Ég hafði ekki tekið eftir þessu fyrr en um daginn að ég sá auglýst „jarðaber“ í stórmarkaði. Þetta er að sjálfsögðu rangt, Jörðin er ein og berin mörg, fermingin ein en gjafir margar. Því skal segja jarðarber og fermingargjafir. „…var refsiramminn nýlega hækk- aður úr 6 árum í 8 ár,“ var sagt í morgunfréttum Ríkisútvarpsins 19. júlí. Hér er á ferð algeng rang- notkun á so. hækka og lækka. Í mínum huga er rammi hækkaður með því að færa hann ofar á vegg. Refsingar eru þyngdar og sektir hækkaðar, og kannski er misskiln- ingurinn þaðan ættaður. Auk þess þykir mér orðið refsirammi heldur vandræðalegt þótt það komi fyrir í lagamáli og sé tilgreint í orðabók. Flugfélag auglýsir boð um að „skjótast til Evrópu á frábæru til- boðsverði“. Er Ísland ekki í Evr- ópu? Mér finnst þetta ámóta rök- rétt og að skjótast til Íslands í innanlandsflugi. Veðurfræðingar í sjónvarpi tala líka stundum um veðurfar í Evrópu, þegar augljós- lega er átt við meginland álfunnar. „…þegar syni hennar var hafnað leikskólaplássi,“ var sagt á Stöð 2 19. júlí, og ég hrökk við. Að hafna einhverjum einhverju?? Honum kann að hafa verið neitað um eða synjað um pláss, eða þá að leik- skólinn hafi hafnað honum, sem hljómar reyndar ekki vel. „Með glamrandi tennur í gúmmí- stígvélum en halda þó kúlinu“, segir í fyrirsögn á forsíðu Morgun- blaðsins, hvorki meira né minna. Er kúl nú orðið gjaldgengt íslenskt nafnorð á forsíðu þessa virðulega blaðs? Ég lít á þetta sem vanvirðu við tungumálið og lesendur blaðsins. „Davíð Þór Jónsson hefur ákveðið að venda sínu kvæði í kross,“ segir hér í Fbl. 21. júlí, og er einkar lag- lega komist að orði um mann sem hefur afráðið að snúa sér að guð- fræði, hvort sem það var nú með- vitað eða ekki. „…fyrir þá langt leiddustu“ sagði fréttamaður í Kastljósi Sjónvarps- ins 24. júlí. Leiddur-leiddari-leidd- astur? Er það nútímaíslenska? Augnatillit á það til að espa þrá, einkum það sem ekki má, óskafagurt til að sjá. Vilji menn senda mér braghendu eða góðfúslegar ábendingar: npn@ vortex.is Lausn krossgátunnar er birt að viku liðinni á vefnum, www.this.is/krossgatur Dregið úr réttum svörum n.k. fimmtudag kl. 12 99 kr. smsið Þú sendir SMS skeytið JA LAUSN LAUSNARORÐIÐ á númerið 1900! Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef svarið er Jón, þá sendir þú SMS-ið: JA LAUSN JON . LEYSTU KROSSGÁTUN A! ÞÚ GÆTIR UN NIÐ GLÆNÝJA POTTÞÉTT 4 4 GEISLAPLÖT U
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.