Fréttablaðið - 11.08.2007, Side 76

Fréttablaðið - 11.08.2007, Side 76
Verslunarmannahelgin er búin. Frí og tóm ham- ingja í fjallasal fyrir alla. Nema auðvitað unga fólkið. Það fékk hvergi inni á tjaldstæðum. Meira að segja „Ein með öllu“ var orðin „Ein með öllu nema unga fólkinu, það er alltaf fullt“. Hrein móðgun við ungu kynslóð- ina segja margir. Unga fólkið er upp til hópa mjög ábyrgðarfullt. Kannski er það rétt en vandamálið er bara að unga fólkið á það einn- ig til að haga sér eins og svín. Full og útúrdópuð svín á hestasterum. Nauðgandi og lemjandi hvert annað þessa þrjá daga sem verslunar- mannahelgin nær yfir. Hvað er til ráða? Í fyrsta lagi var stjarnfræði- lega slæm hugmynd að hleypa ekki unga fólkinu á tjaldsvæðin. Þá fór það á fyllerí einhvers staðar úti á víðavangi þar sem það kúkaði og ældi í næsta skurð. Ég sé bara eitt í stöðunni fyrir næsta ár. Klóróform. Og mikið af því. Bara grípa skríl- inn á leið út úr bænum og svæfa hann yfir helgina. Gætum haft stór skýli vítt og breitt um landið þar sem hrjótandi unglingar sofa af sér óværuna og sómakærir landsmenn skemmta sér á kristilegan hátt. Við gætum líka fengið vík- ingasveitina til að framfylgja út- göngubanni. Hún er svo vel þjálf- uð að hún ætti að ráða við nokkur krakkakríli. Hún bara handtekur þau sem ekki haga sér og setur í klefa með Saving Iceland-fólkinu og Falun Gong-meðlimunum sem gleymdust. Enn eitt ráðið er að halda útihátíð fyrir krakkana uppi á Vatnajökli. Krakkarnir geta þá hírst í tjaldi í þrjátíu metrum á sekúndu og hagl- éli. Greifarnir sjá um að halda uppi fjörinu. Önnur góð ástæða til að halda sig inni í tjaldi. Þau gera að minnsta kosti ekkert af sér á meðan. Við getum líka búið til risastór- ar umferðarslaufur fyrir utan alla helstu byggðakjarna þar sem unga fólkið keyrir endalausa hringi alla helgina án þess að komast á útihá- tíð. Við gætum líka komið fram við það eins og fólk og tekið á okkur ábyrgðina á að ala það upp. Djók.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.