Fréttablaðið - 12.08.2007, Síða 84
Fyrr í sumar kom
hingað til lands út-
lendingur sem ég hef
þekkt til margra ára.
Tilgangur útlendings-
ins með heimsókninni
var að bregða sér á
íslenskunámskeið í
Háskólanum og kynn-
ast um leið landi og þjóð.
Af þessu tilefni gaf ég honum
tvær bækur sem áttu að gefa inn-
sýn í þjóðarsálina: Njálu og bók
með teiknimyndaskrítlum eftir
Hugleik Dagsson. Við fórum líka
á kaffihús, í bíltúr út á land, í mat-
arboð og fleira sem Íslendingar
gera sér til skemmtunar.
Eftir því sem á leið fór hún að
skilja meira og meira í íslensku
og um leið opinberuðust duldar
hliðar samfélagsins fyrir þessari
þróuðu veru, því hafa Danir ekki
alltaf verið siðmenntaðar og þró-
aðar verur fyrir okkur kotbænd-
um? Þessu áttaði ég mig á þegar
hún spurði allt í einu hvort það
teldist almenn kurteisi á Íslandi
að tilkynna sessunautum sínum að
nú væri maður að fara að PISSA.
Ég vissi ekki alveg hverju ég
átti að svara. Sjálfri finnst mér
þetta svolítið skrítið og reyni
frekar að láta vita að ég þurfi að
nota salernið, ef ég neyðist þá yfir
höfuð til þess að útskýra þetta
ætlunarverk mitt en Dananum
fannst einkennilega smekklaust
að tala um piss og yfir höfuð að
útskýra hvað skrokkurinn væri
að fara að losa sig við.
Hvað með hitt? Á maður að
segjast vera að fara að kúka, svo
að allir hafi nú réttu upplýsing-
arnar á hreinu, eða kemur þetta
kannski ekki nokkrum við nema
manni sjálfum?
Ég þarf að snýta mér, þvo mér
um hendurnar, púðra á mér nefið,
pissa, kúka... æi... í guðs bænum
sleppum þessu – eða segjumst
bara þurfa að bregða okkur á
snyrtinguna eða salernið.
Við erum þjóðarsál sem er
svona rétt að komast af gelgju-
skeiðinu hvað varðar siðmenn-
ingu og endalaust getum við því
tekið inn nýja og góða siði. Til
dæmis að heilsast með kossi, fara
á stefnumót, breiða servíettuna
yfir kjöltuna og tilkynna EKKI
hvað gerast muni í klósettferð-
inni.Borgar
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!