Fréttablaðið - 25.08.2007, Page 13

Fréttablaðið - 25.08.2007, Page 13
Eftir kaup Kaupþings á hollenska bankanum NIBC breytist tekju- samsetning íslensku bankanna á þann veg að 60 prósent tekna þeirra koma frá útlöndum, samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlit- inu (FME). Jónas Fr. Jónsson, for- stjóri FME, segir að samkvæmt nýjum hálfsársuppgjörum bank- anna hafi hlutfallið verið 54 pró- sent áður. Yfirtakan á NIBC er sú stærsta sem íslenskt fyrirtæki hefur ráðist í til þessa og bendir Jónas á að við hana stækki íslenska bankakerfið um 30 prósent á samstæðugrunni. „Þá fjölgar þeim löndum þar sem íslensk fjármálafyrirtæki hafa hagsmuna að gæta,“ segir hann og bætir við að fyrirhuguð stækkun auki enn við verkefni og kröfur sem gerðar séu til FME sem eftir- litsaðila á alþjóðlegum fjármála- markaði. Gangi kaupin eftir kemur í hlut- hafahóp Kaupþings alþjóðlegur fjárfestir sem virkur eigandi og segir Jónas mega ætla að slíkt myndi auka breidd í hluthafahópn- um og beri vott um alþjóðavæðingu íslenska fjármálakerfisins. Ætlað er að Ravi Sinha, framkvæmda- stjóri J.C. Flowers, sem fer fyrir fjárfestahópnum sem selur NIBC, taki sæti í stjórn Kaupþings. Sextíu prósent bankatekna að utan Gildi lífeyrissjóður, þriðji stærsti lífeyrissjóður landsins, skilaði á fyrri hluta ársins 17,6 prósenta rau- návöxtun á ársgrundvelli. Til sam- anburðar nam meðalraunávöxtun áranna 2002-2006 11,2 prósentum. Hrein eign sjóðsins hækkaði um 25,3 milljarða króna og nam 240,7 milljörðum króna í lok júní. Árni Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Gildis, segir að gríð- arleg hækkun á innlendum hluta- bréfum sjóðsins skýri þessa góðu ávöxtun á árinu, en sjóðurinn er til- tölulega stór á þeim markaði. Inn- lend hlutabréf gáfu 69 prósenta rau- návöxtun á ársgrundvelli. Um 29 prósent eigna sjóðsins liggja í inn- lendum hlutabréfum en innlend skuldabréf vega þó þyngra eða 44 prósentum. Þau sýndu 4,2 prósenta raunávöxtun á sama tíma. „Síðan erum við með gjaldmiðla- varnir sem sennilega eru meiri en hjá öðrum lífeyrissjóðum. Þær voru að skila mjög góðri afkomu á þess- um fyrstu sex mánuðum,“ segir hann og bætir við: „Við erum með því að minnka sveiflurnar í ávöxt- uninni og það hefur skilað sér vel hjá okkur í gegnum árin.“ Hann tekur fram að þrátt fyrir óróa á fjármálamörkuðum að und- anförnu þá er sjóðurinn ekki með ósvipaðar tekjur á fyrstu átta mán- uðum ársins og þær sem fram komu í hálfsársuppgjörinu. „Auðvitað er raunávöxtunin að sama skapi ekki sama tala þar sem átta mánuðir eru liðnir. En afkoman er enn góð þrátt fyrir þennan óróleika sem er búinn að vera undanfarið.“ Fjárfestinga- tekjur voru 23,5 milljarðar króna á fyrstu sex mánuðunum; nærri helm- ingi meiri en á sama tíma í fyrra. Árni leggur á það áherslu að meg- inmarkmið Gildis sé að skila góðri langtímaávöxtun til sjóðsfélaga. „Það eru langtímasjónarmið sem skipta máli: Að skila góðri ávöxtun yfir lengri tíma.“ Innlend hlutabréf skila Gildi lífeyrissjóði hárri raunávöxtun Opið: Mán. 10 - 18, þri.-fös. 9 - 18, lau. 12 - 16.Sævarhöfða 2 Sími 525-8000 Akureyri 464-7940 Njarðvík 421-8808 Höfn í Hornafirði 478-1990 Umboðsmenn um land allt MasterCard Mundu ferðaávísunina! Montreal

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.