Fréttablaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 18
Séní sem alltaf leynir á sér
Gítar-leikar-innÞórð-
ur Árnason sagði
skilið við hljóm-
sveitina Stuðmenn
nýverið og ákvað
að vera í sumarfríi
án þess að vera á
bakvakt. Þar með
er einn elsti
liðsmaður
sveitarinnar
horfinn á braut.
Það var í raun
alveg í takt við
persónugerð
Þórðar að enginn
skyldi hafa
uppgötvað að í
tæpt hálft ár
höfðu Stuðmenn
spilað án hans því
flestir viðmælend-
urnir lýsa honum
sem hógværum
einfara. „Honum
er sennilega líka
meinilla við að
vera slegið upp
sem Maður
vikunnar,“ sagði
einn viðmælandi
og þótti líklegt að
þau væru teljandi
á fingrum
annarrar handar
viðtölin þar sem
Þórður hefur rætt
einkahagi sína.
Hann sé einfald-
lega ekki mikið
gefinn fyrir
sviðsljósið og hafi
tekist að halda sig
fjarri því þrátt
fyrir að hafa verið
meðlimur í
vinsælustu
hljómsveit
Íslands, fyrr og
síðar.
Gítarleikaran-
um er lýst sem
afar skarpgreind-
um manni og hann
vilji setja sig vel
inn í það sem hann
gerir og kynna sér
hlutina vel. Hann
er sagður hafa
verið með snert af
ofvitaeinkennum,
til dæmis verið
búinn að læra
dönsku á undan
jafnöldrum sínum
með aðstoð
Andrésar Andar-
blaðanna. Þegar
hann fór að læra á
gítar náði hann
undragóðum
tökum á honum á
stuttum tíma.
Þórður er ekki mikið fyrir að bera hæfileika
sína á borð. Hann er til að mynda menntaður á
selló og píanó og er einn örfárra Íslendinga sem
hefur numið djassleik við Berkley-háskólann í
Bandaríkjunum. Þórður hefur lagt til ófáa texta
Stuðmanna og margir þeirra bera með sér að
höfundur þeirra er leiftrandi húmoristi og
kaldhæðnin lekur af honum.
Þórður var alltaf talinn svolítið sérstakur sem
barn og hafði sig lítið í frammi. Hans félagslegu
tengsl komu til að mynda öll í gegnum tónlistina í
MH. Og þrátt fyrir að Þórður hefði vel getað tekið
hæstu
einkunn á
stúdentspróf-
inu ákvað
hann að segja
skilið við
námsbækurn-
ar og hóf að
spila á
sexstrengja
hljóðfærið
sitt af miklum
móð. „Hann
kom inní
tíma, alltof
seint og
kennarinn
spurði forviða
af hverju
hann kæmi
fyrst núna.
Þórður horfði
stíft á
kennarann,
svo yfir
bekkinn,
lagaði
gleraugun á
enninu, gekk
út og sást
ekki aftur
fyrr en 30
árum seinna,“
lýsir einn
viðmælandi
þessu
skyndilega
brotthvarfi
Þórðar úr
menntaskól-
anum.
Þórður
hefur í fimmt-
án ár verið
kennari í
Tónlistarskóla
Hafnarfjarð-
ar og er það
mál manna að
hann hafi
fundið sig vel
í kennarastöð-
unni. Hann er
mjög vel
liðinn af
nemendum
sínum og
leyfir þeim að
finna sér sinn
eigin farveg
og vill helst
ekkert vera
að þvinga
neinu uppá
þá.
Þórður er
sagður
ótrúlega vel
lesinn og það
kemur enginn
að tómum
kofunum hjá
honum. Hann
setur saman
tölvuna sína
sjálfur,
þannig að hún
sé nú örugglega alveg rétt samsett og þykir fátt
jafn skemmtilegt en að panta sér gömul raftæki
af netinu og gera við þau. En Þórður er jafnan
mjög hlédrægur og hann er alls ekki allra. „Hann
leitar miklu meira inná við heldur en út á við, er
mjög leitandi og íhugull. Hann er einfaldlega séní
og séní ganga ekki alltaf meðalveginn.“ Hann ku
ekki vera neitt sérstaklega diplómatískur og segir
alltaf það sem honum býr í brjósti. „Og er kannski
ekkert að skafa neitt utan af því heldur. En hann
er líka gull af manni og alveg ákaflega traustur
vinur.“
Auglýsingasími
– Mest lesið