Fréttablaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 48
hús&heimili
FORNASETTI Endurgerð á klassískri hönnun í bland við nýtt
veggfóður var meðal þess sem sýnt var á hönnunarsýningunni í Míl-
anó í vor. Hér sjást skemmtilegir lágir kollar með líflegum myndum á
setunni. Þessi hönnun er upprunninn frá Piero Fornasetti sem var ít-
alskur málari, mynd-
höggvari og innan-
hússhönnuður og
hannaði yfir ell-
efu þúsund hluti
yfir ævina. Fyrirtæki
í nafni listamanns-
ins er enn rekið í dag
og má fræðast nánar
um það á www.forna-
setti.com
hönnun
Zaha Hadid vann til Pritzker-
verðlaunannna, virtustu verð-
launa arkitekta, árið 2004 þegar
hún hafði nýlokið við byggingu
á sínu fyrsta stóa verkefni, Ros-
enthal-miðstöðinni fyrir samtíma-
list í Cincinnati í Ohio í Bandaríkj-
unum. Hún situr því ekki auðum
höndum í dag og vinnur að ýmsum
verkefnum, allt frá stórhýsum í
Singapúr og Istanbúl til óperuhúss
í Kína, safns í Róm og skýjakljúfs
í Dubai. Á síðasta opnaði Zaha
formlega tvær byggingar í Þýska-
landi: bílaverksmiðju fyrir BMW
og Phaeno-vísindasafnið. Báðar
byggingar sýna einstaka hæfi-
leika hennar og eru vitnisburður
um snilldarsköpun hennar á rými
í föstu formi.
Um þessar mundir er viðamikil
sýning á verkum hennar í Hönn-
unarsafninu í London og sú fyrsta
sinnar tegundar. Sýningin stendur
til nóvemberloka.
Zaha Hadid er fædd í Írak en
er breskur ríkisborgari í dag. Hún
varð sér úti um gráðu í stærðfræði
áður en hún tók að nema arkitekt-
úr og fluttist til Bretlands. Hún er
56 ára gömul og ásamt arkitektúr
hefur hún hannað nokkur húsgögn
og er nú með innsetningu á sýn-
ingu í Lissabon. kristineva@frettabladid.is
Meistarinn frá Írak
Zaha Hadid skaut upp á stjörnuhimininn
þegar hún hlaut virtustu verðlaun arki-
tekta, Pritzker-verðlaunin, árið 2004.
Þetta loftljós er eitt af verkum Zaha á
sýningu á verkum hennar í Hönnunar-
safninu í London.
Dansandi turnar í Dubai.
Útgáfa Zaha Hadid af Louis Vuitton-
tösku.
STÓLLINN AD HOC FRÁ VICCABRE Ad hoc stóllinn
er hannaður af Jean-Marie Massaud fyrir fyrirtækið Viccabre. Stóll-
inn var til sýnis á húsgagnasýningunni í Mílanó í vor og vakti verð-
skuldaða athygli. Grindin er
ferköntuð en sætið er
úr fléttuðu vírneti.
Zaha Hadid var tilnefnd til verðlauna
fyrir Phaeno-vísindasafnið í Wilsburg í
Þýskalandi.
25. ÁGÚST 2007 LAUGARDAGUR12