Fréttablaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 88
Með reglulegu millibili blossar upp á Íslandi umræða um hið
svokallaða ástand í miðbænum, en
„ástandið í miðbænum“ er eigin-
lega orðið sérstakt hugtak í
íslenskri umræðu, notað af þeim
sem telja miðbæinn vera gróðra-
stíu ofbeldis, óláta og óhreininda.
Alla mína hundstíð hef ég hlýtt
með litlu millibili á bölv og ragn í
fjölmiðlum út af miðbænum.
ég var unglingur var
Hallærisplanið hættulegasti stað-
ur í heimi. Þar var sagt að pönkar-
ar myndu líklega taka mann háls-
taki og snúa mann niður í götuna
með hvellum hrossahlátri ef
maður gerðist svo fífldjarfur að
ganga þar um að kvöldlagi.
Hlemmur þótti líka stórhættuleg-
ur staður og gott ef það var ekki
haft fyrir satt að í þeirri strætis-
vagnastoppistöð myrkraaflanna
byggju mannætur í leðurjökkum
sem biðu eftir nýju fórnarlambi á
degi hverjum, einkum guttum úr
úthverfi eins og mér.
verð að viðurkenna að ég var
til dæmis verulega taugaóstyrkur
þegar ég fór inn á Hlemm í fyrsta
skipti á mínum 17 ára afmælis-
degi til þess að láta taka þar af
mér passamynd í ökuskírteinið.
Ég bjóst alveg eins við að vera
sleginn niður þá þegar af ógæfu-
manni, miðað við sögurnar, en svo-
leiðis leiðindi hefðu auðvitað verið
sárgrætileg í aðdraganda mynda-
tökunnar í ljósi þess að gert er ráð
fyrir að sama myndin sé í skírtein-
inu allt til 2042, í mínu tilviki, og
því ekki gott að vera með sprungna
vör eða glóðarauga eftir átök.
þetta slapp nú allt saman. Ég
hef gengið óáreittur um miðbæinn
að kvöld- og næturlagi um árabil.
Þar hef ég oft skemmt mér kon-
unglega, þótt undanfarið sé ég
orðinn alveg kolómögulegur pöbb-
aröltari, enda rólyndismaður orð-
inn og meira að segja kominn með
nokkur grá hár í vangann, sem ég
er reyndar nokkuð stoltur af, því
það veitir mér vissulega aukinn
þunga í daglegu lífi. En hvað um
það. Einstaka sinnum horfi ég
dreyminn út um stofugluggann og
rifja upp með sjálfum mér tryllt
djamm á Kaffibarnum og þreifa á
örinu sem ég er með fyrir ofan
annað augað eftir að félagi minn
skall á mér í einhverju brjáluðu og
ábyrgðarlausu danssporinu þarna
í sveittum þrengslunum um og
upp úr aldamótum, svo að sauma
þurfti sjö spor.
ég skil líka afskaplega vel þá
sem finnst erfitt að búa þarna.
Einu sinni bjó ég fyrir ofan
skemmtistað í Belgíu þegar lagið
Makarena var nýbúið að slá í gegn.
Þá var ég við það að missa vitið.
En svona er þetta. Réttur minn
var enginn. Mér var bara sagt að
dansa með, sem ég gerði ekki. Ég
held að okkur ætti öllum að vera
það ljóst að við Íslendingar, ekki
frekar en Belgar, erum ekki fólk
sem fer endilega snemma að sofa
eða höfum lágt þegar við skemmt-
um okkur. Til þess að sporna við
alls kyns vitleysisgangi sem því
fylgir að hafa skemmtanalíf er ég
handviss um að aðeins eitt ráð
virki: Sýnileg löggæsla. Hingað til
hefur hún nefnilega verið ósýni-
leg og það virkar í öllu falli ekki.
Ástandið
Morgunmatur
frá kl. 9:00 - 11:00
mánudaga - laugardaga
195,-
Grænmetisbuff
með graslaukssósu, kúskús
og grænmeti
490,-
695,-
HELMER skúffueining á hjólum 28x43x69 cm
3 0,-
MÖRKER vinnulampi H44 cm ýmsir litir
Verum klár
595,-
RIBBA rammi
18x24 cm birki 595,-
VÄNNA spegill
Ø80 cm 3.990,-
JONAS skrifborð
140x65x73 cm 14.950,-
LYCKLIG geisladiskataska
64 vasar ýmsir litir
ALVINE BÄR sængurverasett
150x200/50x60 cm
KULLEN fataskápur
144x51x191 cm 9.950,-
KARSTEN snúningsstóll
73x60x51 cm 8.990,-
KULLEN kommóða
70x40x72 cm 3.950,-
KASSETT tímaritabox
m/loki 2 stk.
33x38x30 cm 1.490,-
ERSLEV motta
180x250 cm 3.990,-
BRÄDA stuðningspúði
f/fartölvur 51x38x8 cm 1.490,-
FNISS ruslafata
29x30 cm ýmsir litir
195,-
1.690,-