Fréttablaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 62
H
vað hefur breyst á
þeim sjö árum sem
þú hefur leikið Jason
Bourne?
„Þegar við tókum upp
fyrstu myndina átti
ég ekkert líf fyrir utan vinnu. Ég fór
alltaf beint í ræktina eftir tökur og
svo heim að sofa. Nú á ég fjölskyldu,
eina stjúpdóttur og litla dóttur, svo
forgangsröðunin er önnur. Ég mætti í
mjög fínu formi á fyrsta tökudegi því
hlutverkið krefst gríðarlegra líkams-
átaka. En svo hreyfði ég mig lítið sem
ekkert meðan á tökum stóð. Þegar við
horfðum á grófklippt eintak af mynd-
inni tók leikstjórinn eftir því að renni-
lásinn á jakkanum mínum var kominn
miklu ofar í lok tökutímabilsins svo
nokkrir rammar voru ónothæfir.“
The Bourne Ultimatum er tekin upp
víðs vegar um Evrópu og í Bandaríkj-
unum. Var ekki flókið að sameina
vinnuna og fjölskyldulífið?
„Fjölskylda leikstjórans Paul Green-
grass er í London og þess vegna
reyndum við að hafa aðalbækistöðv-
arnar þar. En við ferðuðumst líka
mjög mikið og ég tók fjölskylduna
með mér. Það reyndi á en það var mik-
ilvægt fyrir mig að eyða tíma með
litlu dóttur minni. Hún er eins árs og
er nú þegar komin með ellefu stimpla
í vegabréfið sitt.“
Sástu fyrir að þú myndir leika í fleiri
en einni Bourne-mynd þegar þú tókst
að þér þá fyrstu?
„Ég hafði ekki fengið tilboð um að
leika í kvikmynd í marga mánuði þegar
mér bauðst að leika í The Bourne
Identity og má því segja að Jason
Bourne hafi bjargað ferlinum. Ég
skrifaði alltaf undir eina mynd í einu
og strax eftir fyrstu myndina vorum
við ákveðin í því að það yrði ekki farið
út í þá næstu nema handritið væri jafn-
gott eða betra en það síðasta. Við vild-
um ekki gera næstu mynd bara fyrir
peningana og ég held að það skili sér til
áhorfenda. Þegar svo kom að þriðju
myndinni beið ég eftir því að vita hvort
Paul Greengrass myndir leikstýra
henni og þegar hann gaf grænt ljós sló
ég til. Paul hefði alls ekki þurft að leik-
stýra þriðju myndinni því hann er einn
sá heitasti í Hollywood um þessar
mundir eftir velgengni United 93 og
Bourne Supremacy.“
Hvað telur þú að valdi velgengni
myndanna um Jason Bourne?
„Myndirnar gera aldrei lítið úr vits-
munum áhorfenda þó þær flokkist
undir laugardags poppkornsafþrey-
ingu. Fólk veit að það er ekki að eyða
peningunum í vitleysu þegar það fer í
bíó og ég held að fólki líki við Jason
Bourne vegna þess að hann er tilfinn-
ingalega flókinn karakter sem er að
reyna að finna út úr því hver hann er.
Áhorfendum finnst gaman að sjá hann
glíma við að finna leiðir út úr vanda-
málunum og uppgötva dökk leyndar-
mál fortíðarinnar.“
Hvað hefurðu að segja um saman-
burðinn á James Bond og Jason
Bourne?
„Þeir eru báðir innviklaðir í njósna-
starfsemi en það er það eina sem þeir
eiga sameiginlegt. James Bond passar
inn í gildi 7. áratugarins en verður
hjákátlegur í samtímanum. Hann er
heimsvaldasinni og kvenhatari sem
drepur fólk og skellir sér svo á barinn
til að segja brandara og skála í Mart-
ini á meðan Jason Bourne hefur elsk-
að eina konu, sem er dáin, en hann
getur ekki hætt að hugsa um hana.
Bourne er sannfærandi persóna sem
vill vel og hefur samúð með öðrum og
iðrast verka sinna. Ég er ekki að segja
að annar sé betri og hinn verri en þeir
eru bara svo gjörsamlega ólíkir að
það er varla hægt að bera þá saman.“
Hvað er það í samstarfi ykkar Paul
Greengrass sem þér líkar svona vel
við?
„Paul kemur úr heimildarmyndageir-
anum og notar mikið handhelda
myndatökuvél. Fyrir vikið sér vélin
ekki fyrir hvað gerist næst heldur
bregst við á sama hátt og fólk myndi
gera í aðstæðunum. Ef áhorfandinn er
farinn að ókyrrast í sætinu er það
vegna þess að myndavélin er mitt inni
í öllu brjálæðinu og starfar í rauninni
eins og hrædd fluga á vegg.
Á fyrsta tökudeginum sem við unnum
saman (í The Bourne Supremacy)
vorum við í Rússlandi. Ég átti að troð-
ast í gegnum mannfjölda eftir að
Bourne hafði orðið fyrir skoti og var á
flótta undan óvinum. Svo átti ég að
stoppa til að athuga hvar byssukúlan
hafði hitt mig og sjá hvort það væri
blóð á fingrunum á mér. Við vorum að
missa birtu og það voru allir mjög
stressaðir á tökustaðnum. Til að hafa
þetta nákvæmt spurði ég myndatöku-
manninn hvernig hann myndi stilla
upp lokarammanum svo ég vissi í
hvaða hæð ég ætti að lyfta hendinni til
að sýna blóðið. Þá kom Paul hlaupandi
og sagði að ég þyrfti ekki að hafa nein-
ar áhyggjur af kvikmyndavélinni. Ég
ætti bara að hugsa um að leika eins
vel og ég gæti. Þetta er eitt það besta
sem kvikmyndaleikari getur fengið
að heyra frá leikstjóranum sínum og
gefur ótrúlega mikið frelsi. Ég hef oft
lent í því að þurfa að leika viðkvæmar
senur á móti öðrum leikurum með
risa kvikmyndatökuvél á milli. Það er
álíka auðvelt og að leika með risastór-
an fíl í herberginu.“
Hvernig varð þér um að lesa í við-
skiptablaðinu Forbes að þú værir
besta fjárfestingin fyrir Hollywood-
framleiðendur í augnablikinu?
„Ég skil ekki alveg hvernig þessi listi
var búinn til vegna þess að myndirnar
sem ég hef leikið í eftir Supremacy
voru alls engar meginstraumsmyndir.
Ég lék í Syriana, The Departed og The
Good Shepherd einfaldlega vegna þess
að þetta voru þrjú bestu handritin sem
ég fékk í hendurnar á þessum tíma og
er svo heppinn að vera í þeirri aðstöðu
núna að geta valið úr góðum handrit-
um. The Departed sló reyndar í gegn
en myndir eftir Martin Scorsese eru
alls ekki líklegar til að slá aðsóknar-
met. Jafnvel meistaraverk eins og
Raging Bull og Goodfellas náðu aldrei
jafn mikilli aðsókn og myndir eins og
Spiderman. Ég valdi The Departed
vegna handritsins og heiðursins að
vinna með Martin Scorsese og Bourne-
myndirnar hafa gert mér kleift að
geta valið verkefni undanfarið út frá
listrænum sjónarmiðum.“
Bourne bjargaði ferlinum
Leikarinn Matt Damon hefur ekki yfir mörgu að kvarta í augnablikinu. Hann er gulldrengurinn í Hollywood ef marka má við-
skiptablaðið Forbes og nýjasta kvikmyndin í Bourne-seríunni, The Bourne Ultimatum, sló aðsóknarmet fyrstu sýningarhelgina í
Bandaríkjunum. Ultimatum er nýkomin í sýningar hér á landi en Þóra Karitas hitti Matt Damon á Claridgé s-hótelinu í London
og fékk að fræðast um hvítatjaldsnjósnarann Jason Bourne og áhrif hans á einkalíf leikarans.
Ég sendi
George
Clooney
greinina í
tölvupósti
um leið og
hún kom
út með
stuttri orð-
sendingu:
„Suck it,
sexy boy!
Hvað með vini þína úr Ocean-myndun-
um, George Clooney og Brad Pitt, eru
þeir ekki brjálaðir úr öfundssýki?
„Ég sendi George Clooney greinina í
tölvupóst um leið hún kom út með stuttri
orðsendingu: „Suck it, sexy boy!“ Hann
svaraði að bragði og óskaði mér til ham-
ingju en bætti við að þjónninn í einka-
villunni hans hefði einmitt lesið grein-
ina upphátt fyrir hann yfir
morgunkaffinu.“
Það er orðrómur á kreiki um að þú munir
leika í næstu mynd Paul Greengrass
sem fjallar um afleiðingar meintrar inn-
rásar Bandaríkjamanna í Írak?
„Já, við vonumst til að geta unnið
saman að mynd sem byggð verður á
bókinni Imperial Life in the Emerald
City eftir Rajiv Chandrasekaran. Eins
og er erum við í vandræðum með að
láta tímaplönin okkar mætast en hug-
myndin er á teikniborðinu og vonandi
gengur allt upp.“
Að lokum, megum við vænta fjórðu kvik-
myndarinnar um Jason Bourne?
„Ég er búinn að stinga upp á að við
gerum næst Bourne-söngleikinn. Þá
gæti ég sungið: „They´re chasing me,
they´re chasing me, oh my f... God.“
Annars verðurðu að spyrja Paul Green-
grass um næstu Bourne-bíómynd. Ef
hann er til þá er engin spurning að ég
slæ til.“