Fréttablaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 81
Austfirðingurinn Magni Ásgeirs-
son hefur verið mikið í sviðsljós-
inu síðan hann gerði það gott í
Rock Star Supernova sjónvarps-
þáttunum, en þeir fengu metá-
horf hér á landi þó að viðtökur
annars staðar í heiminum hafi
verið eitthvað undir væntingum.
Til að ná árangri í þáttaröð eins
og Rock Star þarf keppandi að
sjálfsögðu bæði að geta sungið og
að standast álagið sem fylgir svo
erfiðri keppni. Magni kláraði
hvort tveggja með stæl og endaði
í fjórða sæti.
Nú er fyrsta sólóplata Magna
komin út og margir eflaust
spenntir að heyra hvernig strák-
urinn spjarar sig. Rock Star er
fyrst og fremst söngvarakeppni,
en eins og dæmin sanna þá er
ekkert samasemmerki á milli
þess að standa sig vel í því að
túlka lög annarra í sjónvarpsþátt-
um og að búa til tónlist sem eitt-
hvað er varið í.
Platan inniheldur 13 lög, 11
þeirra eru frumsamin, ýmist af
Magna einum eða í samvinnu við
aðra, en auk þess er útgáfa af
Radiohead-laginu Creep og tón-
leikaupptaka af Live-laginu The
Dolphin‘s Cry frá tónleikum í
Laugardalshöll í desember í
fyrra. Magni söng bæði þessi lög
við góðar undirtektir í Rock Star
þáttunum.
Það verður að segjast eins og er
að þessi fyrsta sólóplata Magna
veldur vonbrigðum. Orðið sem
kemur upp í hugann þegar maður
hlustar á hana er meðalmennska.
Lagasmíðarnar og textarnir eru
klisjukenndir og það sama á við
um hljóminn og útsetningarnar.
Tónlistin fer frá því að vera hreint
popp yfir í rokk og lögin í seinni
flokknum (Alone, Addicted, Let
Me In The Dark...) eru sérstak-
lega vond eftiröpun á amerísku
meginstraumsrokki. Popplögin
eru skárri. Fyrsta lagið á plöt-
unni, If I Promised You The World
(sem hefur þegar slegið í gegn á
Íslandi) er t.d. prýðilega saminn
og unninn popprokksmellur. Fín
melódía og flottur bassaleikur.
Play With Me og Tear Us Apart
eru líka alveg þokkalegustu
stykki, en á heildina litið vantar
alveg ferskleikann í þessa tón-
list.
Magni hefur sýnt það og sann-
að að hann er hæfileikaríkur
flytjandi og eins og heyrist svo
glöggt á tónleikaupptökunni á
The Dolphin’s Cry þá á hann auð-
velt með að ná upp stemningu og
hrífa fólk með sér. Hann á von-
andi eftir að finna sig tónlistar-
lega, en á þessari fyrstu sólóplötu
er hann á villigötum.
Magni veldur vonbrigðum
Árshátíð íslenskra plötusnúða fer
fram á NASA næstkomandi laugar-
dagskvöld þar sem sannkallað
landslið íslenskra plötusnúða
kemur fram. Alls þeyta sextán
plötusnúðar skífum á báðum
hæðum hússins og hafa sjaldan eða
aldrei jafnmargir snúðar komið
fram á einu kvöldi.
„Þetta er flóran af helstu plötu-
snúðum Íslands í dag sem eru búnir
að vera að spila reglulega. Auðvit-
að er ekki hægt að koma öllum
fyrir saman á einu kvöldi en við
ákváðum að ganga eins langt og við
gátum,“ segir Kristinn Bjarnason
hjá Flex Music sem stendur fyrir
verkefninu. Kemur hann einnig
fram undir nafninu Ghozt. „Að því
er ég best veit er þetta Íslandsmet
í fjölda plötusnúða. Ég held að það
hafi aldrei komið svona margir
plötusnúðar hérna saman og spil-
að.“
Tveir plötusnúðar troða upp í
einu á neðri hæðinni þar sem not-
ast er við fjóra plötu- og geislaspil-
ara ásamt öllum þeim tækjum sem
viðkomandi plötusnúður hefur
fram að færa. Sérstakur heiðurs-
gestur verður guðfaðir íslenskrar
danstónlistar, Grétar. Hann er
búsettur í Skotlandi en kemur hing-
að til lands eingöngu í þeim til-
gangi að troða upp á þessari hátíð.
Aðgangseyrir á hátíðina er 1.500
krónur og verða miðar aðeins seld-
ir við hurð. Húsið verður opnað
klukkan 23.00. Nánari upplýsingar
um árshátíðina má finna á flex.is.
Skífuþeytarar fagna