Fréttablaðið - 25.08.2007, Síða 88

Fréttablaðið - 25.08.2007, Síða 88
Með reglulegu millibili blossar upp á Íslandi umræða um hið svokallaða ástand í miðbænum, en „ástandið í miðbænum“ er eigin- lega orðið sérstakt hugtak í íslenskri umræðu, notað af þeim sem telja miðbæinn vera gróðra- stíu ofbeldis, óláta og óhreininda. Alla mína hundstíð hef ég hlýtt með litlu millibili á bölv og ragn í fjölmiðlum út af miðbænum. ég var unglingur var Hallærisplanið hættulegasti stað- ur í heimi. Þar var sagt að pönkar- ar myndu líklega taka mann háls- taki og snúa mann niður í götuna með hvellum hrossahlátri ef maður gerðist svo fífldjarfur að ganga þar um að kvöldlagi. Hlemmur þótti líka stórhættuleg- ur staður og gott ef það var ekki haft fyrir satt að í þeirri strætis- vagnastoppistöð myrkraaflanna byggju mannætur í leðurjökkum sem biðu eftir nýju fórnarlambi á degi hverjum, einkum guttum úr úthverfi eins og mér. verð að viðurkenna að ég var til dæmis verulega taugaóstyrkur þegar ég fór inn á Hlemm í fyrsta skipti á mínum 17 ára afmælis- degi til þess að láta taka þar af mér passamynd í ökuskírteinið. Ég bjóst alveg eins við að vera sleginn niður þá þegar af ógæfu- manni, miðað við sögurnar, en svo- leiðis leiðindi hefðu auðvitað verið sárgrætileg í aðdraganda mynda- tökunnar í ljósi þess að gert er ráð fyrir að sama myndin sé í skírtein- inu allt til 2042, í mínu tilviki, og því ekki gott að vera með sprungna vör eða glóðarauga eftir átök. þetta slapp nú allt saman. Ég hef gengið óáreittur um miðbæinn að kvöld- og næturlagi um árabil. Þar hef ég oft skemmt mér kon- unglega, þótt undanfarið sé ég orðinn alveg kolómögulegur pöbb- aröltari, enda rólyndismaður orð- inn og meira að segja kominn með nokkur grá hár í vangann, sem ég er reyndar nokkuð stoltur af, því það veitir mér vissulega aukinn þunga í daglegu lífi. En hvað um það. Einstaka sinnum horfi ég dreyminn út um stofugluggann og rifja upp með sjálfum mér tryllt djamm á Kaffibarnum og þreifa á örinu sem ég er með fyrir ofan annað augað eftir að félagi minn skall á mér í einhverju brjáluðu og ábyrgðarlausu danssporinu þarna í sveittum þrengslunum um og upp úr aldamótum, svo að sauma þurfti sjö spor. ég skil líka afskaplega vel þá sem finnst erfitt að búa þarna. Einu sinni bjó ég fyrir ofan skemmtistað í Belgíu þegar lagið Makarena var nýbúið að slá í gegn. Þá var ég við það að missa vitið. En svona er þetta. Réttur minn var enginn. Mér var bara sagt að dansa með, sem ég gerði ekki. Ég held að okkur ætti öllum að vera það ljóst að við Íslendingar, ekki frekar en Belgar, erum ekki fólk sem fer endilega snemma að sofa eða höfum lágt þegar við skemmt- um okkur. Til þess að sporna við alls kyns vitleysisgangi sem því fylgir að hafa skemmtanalíf er ég handviss um að aðeins eitt ráð virki: Sýnileg löggæsla. Hingað til hefur hún nefnilega verið ósýni- leg og það virkar í öllu falli ekki. Ástandið Morgunmatur frá kl. 9:00 - 11:00 mánudaga - laugardaga 195,- Grænmetisbuff með graslaukssósu, kúskús og grænmeti 490,- 695,- HELMER skúffueining á hjólum 28x43x69 cm 3 0,- MÖRKER vinnulampi H44 cm ýmsir litir Verum klár 595,- RIBBA rammi 18x24 cm birki 595,- VÄNNA spegill Ø80 cm 3.990,- JONAS skrifborð 140x65x73 cm 14.950,- LYCKLIG geisladiskataska 64 vasar ýmsir litir ALVINE BÄR sængurverasett 150x200/50x60 cm KULLEN fataskápur 144x51x191 cm 9.950,- KARSTEN snúningsstóll 73x60x51 cm 8.990,- KULLEN kommóða 70x40x72 cm 3.950,- KASSETT tímaritabox m/loki 2 stk. 33x38x30 cm 1.490,- ERSLEV motta 180x250 cm 3.990,- BRÄDA stuðningspúði f/fartölvur 51x38x8 cm 1.490,- FNISS ruslafata 29x30 cm ýmsir litir 195,- 1.690,-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.