Fréttablaðið - 25.08.2007, Side 82

Fréttablaðið - 25.08.2007, Side 82
Hver er hættulegasti sóknarmaður Landsbankadeildar karla? Svarið við þeirri spurningu að mati Fréttablaðsins fæst með því að skoða hvaða leikmaður deildarinnar hefur átt þátt í flest- um mörkum síns liðs. Að eiga þátt í marki telst þegar leikmaður skor- ar markið, gefur stoðsendingu, fiskar víti sem gefur mark eða ef það er fylgt eftir skoti hans og skorað. FH-ingurinn Tryggvi Guð- mundsson er sá leikmaður Lands- bankadeildar karla sem hefur átt þátt í flestum mörkum síns liðs í fyrstu þrettán umferðum sumars- ins. Tryggvi hefur komið að 14 mörkum FH, skoraði átta sjálfur og lagt upp önnur sex. Hann hefur gefið fimm stoðsendingar og fisk- að eitt víti sem hann skoraði úr sjálfur en það er eina leiðin til að „leggja“ upp mark fyrir sjálfan sig. Tryggvi hefur því í rauninni átt þátt í þrettán af 29 mörkum FH-liðsins. Markahæsti leikmaður deildar- innar, Valsarinn Helgi Sigurðsson, er í öðru sæti á listanum en hann hefur komið að tólf mörkum, þar af skorað ellefu þeirra sjálfur. Eina markið sem Helgi kom með beinum hætti að undirbúningnum var þegar Hafþór Vilhjálmsson fylgdi eftir skoti hans í 2-2 jafn- tefli við Keflavík á Laugardals- vellinum. Víkingurinn Sinisa Kekic hefur verið frábær í sumar þrátt fyrir að nálgast óðum fimmtugsaldurinn og hann hefur átt þátt í tíu mörk- um Víkinga, skorað sjö og lagt upp önnur þrjú. Hann telst því hafa átt þátt í 83 prósentum marka Vík- ingsliðsins með beinum hætti. FH-ingurinn Matthías Guð- mundsson er síðan fjórði leikmað- ur deildarinnar sem hefur átt þátt í fleiri en tíu mörkum. Sumar Matthíasar hefur verið tvískipt, hann skoraði 4 af 5 mörkum sínum í fyrstu fjórum umferðunum og hefur síðan lagt upp fimm mörk fyrir félaga sína í FH. Skagamenn eiga flesta menn meðal þeirra tólf hæstu því Vjeko- slav Savdumovic (9), Bjarni Guð- jónsson (8) og Jón Vilhelm Ákason (7) hafa allir átt þátt í sjö mörkum eða fleirum á þessu tímabili. KR og Breiðablik eru einu liðin sem eiga ekki leikmann sem hefur búið til sjö mörk eða fleiri fyrir sitt lið. Magnús Páll Gunnarsson og Prince Rajcomar hafa komið að sex mörkum og hinn ungi Kristinn Steindórsson hefur búið til fimm mörk þrátt fyrir að hafa spilað aðeins í 376 mínútur í sumar. Hættulegasti KR-ingurinn er Jóhann Þórhallsson sem hefur komið að fjórum mörkum þrátt fyrir að hafa aðeins spilað í 27 pró- sentum af leiktímanum í þrettán leikjum KR í sumar. Fréttablaðið skoðar hvaða leikmenn Landsbankadeildar karla hafa búið til flest mörk fyrir sín félög. Átta af tíu liðum deildarinnar eiga að minnsta kosti einn leikmann sem hefur átt þátt í sjö eða fleiri mörkum. Sinisa Kekic er mikil- vægur fyrir Víkinga í Lands- bankadeild karla. Það sést ekki síst á því að Víkingar eiga enn eftir að skora mark sem hann kemur ekki nálægt. Kekic hefur komið með beinum hætti að tíu af tólf mörkum liðsins í sumar, skorað sjö og lagt upp önnur þrjú upp. Í mörkunum tveimur sem standa eftir hefur Kekic ekki átt síðustu sendingu en tók engu að síður þátt í undirbúningnum því í báðum mörkum átti hann svokallaða hjálparsendingu, það er sendingu sem kemur þeim sem á stoðsend- ingu í góða aðstöðu til að leggja upp mark. Á bak við öll mörk Víkinga 1. deild karla: Mikið hefur verið rætt og ritað undanfarin ár um holdafar Brasilíumannsins Ronaldo. Mörg- um hefur fundist kappinn vera fullbúttaður og vildu margir kenna um leti og óhollu mataræði. Slíku hefur Ronaldo ávallt neitað og allt- af sagst vera í toppformi þó svo hann liti ekki út fyrir að vera það. Ronaldo hefur verið í rannsókn- um hjá sínu nýja félagi AC Milan og menn þar á bæ hafa fundið það út að vanvirkni skjaldkirtils hafi gert það að verkum að hann leit út fyrir að vera aðeins þykkari en menn eiga almennt að vera í hans stöðu. Milan hefur í kjölfarið sett Ronaldo á lyf og komið upp nýrri æfingaáætlun fyrir hann og árang- urinn ku vera sláandi. „Þið munuð sjá hann fljótlega og ég get lofað því að allir verða hissa. Hann lítur út eins og fyrir- sæta,“ sagði Carlo Ancelotti, þjálf- ari Milan, en Ronaldo hefur lést um 5,5 kíló og verður víst ekki lengur kallaður sama uppnefni og á Spáni sem var „el gordo“ eða sá feiti. Skjaldkirtilssjúkdómur ástæða fitunnar Þrettán ára með Íslandsmeistarann sem kylfusvein 10.September nk. Ungbarnasund Námskeiðið hefst 5. f brúa nk. í Árbæjarlaug. Sunddeild Ármanns Barnasund Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára hefst laugardaginn 15. janúar nk. í Árbæjarskóla Innritun virka daga frá kl. 17:00 og um helgar frá kl. 13:00 í síma 557-6618 (Stella) og Eygló í síma 866-0122 i ið hefst 22 september nk. í Árbæjarlaug. Innritun virka daga frá kl. 17.00 og um helgar frá kl. 13.00 í síma 866 0122 Eygló. eyglo@sjukratjalfun.is Stella 557-6618. stella.gunnarsdottir@reykjavik.is Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára hefst laugardaginn 15. september nk. í Árb jarskóla

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.