Fréttablaðið - 02.09.2007, Blaðsíða 1
Í NÝJU LAUGARDALS-
HÖLLINNI UM HELGINA
VISA BIKARINN
2007
Undanúrslit karla
Laugardalsvöllur
í dag kl: 16:00
FH - Breiðablik
„Stundum heyrir
maður raddir um að jafnréttisbar-
áttan hafi orðið til þess að tekið
hafi að halla á karlmenn,“ segir
Kristín Ást-
geirsdóttir,
nýskipuð
framkvæmda-
stýra Jafnréttis-
stofu. Hún segir
umræðuna þá
komna í
öngstræti.
Þegar litið sé
á stöðu kvenna
annars vegar og
karla hins vegar hljóti fólk að átta
sig á því að karlmenn ráði enn
lögum og lofum. „Sjáið rík-
isstjórnina, Hæstarétt, fjár-
málakerfið, íslensku útrásina og
aðra staði þar sem völdin eru,“
segir hún.
Kristín segist óttast að bakslag
hafi orðið í jafnréttisbaráttu og
ætlar að beita sér fyrir því að
kennsla í kynjafræðum verði í
skólum.
Óttast bakslag í
jafnréttisbaráttu
Rithöfundurinn Eoin Colfer ræðir um Artemis Fowl og
hjálparstarfið með Ice Aid
„Ég hef verið að byggja
rústir og einnig verið í nánu sam-
starfi við bandarískt sprengjulið
sem sérhæfir sig í svona verkefn-
um,“ segir Karl Júlíusson leik-
myndahönnuður. Karl hefur und-
anfarna fimm mánuði unnið að
gerð leikmyndar við nýjustu kvik-
mynd Katherine Bigelow, The
Hurt Locker.
Í myndinni segir frá
sprengjusveit sem hefur það hlut-
verk að aftengja sprengjur Al
Kaída í Íraksstríðinu. Myndin ger-
ist að öllu leyti í Bagdad en ekki
reyndist unnt að fara með
kvikmyndatökulið þangað vegna
stríðsins. Karl hefur því haft það
hlutverk með
höndum að
breyta borginni
Amman í Bag-
dad.
Meðal leikara
í myndinni eru
stórstjarnan
Ralph Fiennes
og Guy Pierce
en með aðalhlut-
verkið fer Jer-
emy Renner, sem Karl ætti að
þekkja vel enda unnu þeir saman
að gerð myndarinnar A Little Trip
to Heaven.
Karl segir dvölina ytra hafa
verið einstaka og það séu for-
réttindi að fá að kynnast þessum
heimshluta. „Okkur hefur verið
tekið með kostum og kynjum,
verið boðið í mat og kaffi og þetta
er bara eins og að sitja í teboði
uppi í Mávahlíð,“ segir Karl og
bætir við að Jórdanir séu eitthvert
það gestrisnasta og yndislegasta
fólk sem hann hafi kynnst.
Ráðgert er að The Hurt Locker
verði frumsýnd næsta sumar eða
haust.
Breytir Amman í Bagdad
„Við vitum að rétt-
arkerfið er þannig að fæst málin
enda með dómi,“ segir Sigþrúður
Guðmundsdóttir hjá Kvennaat-
hvarfinu. Sextán prósent þeirra
300 kvenna sem leituðu til
athvarfsins í fyrra vegna heimilis-
ofbeldis kærðu ofbeldið.
„Oft kemur upp í umræðunni að
það gagnist lítið að kæra,“ segir
Rannveig Þórisdóttir, deildarstjóri
upplýsinga- og áætlanadeildar
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu. „Við höfum samt engar upp-
lýsingar sem staðfesta að það geti
ekki haft eitthvað upp á sig.“
Kærur vegna heimilisofbeldis
eða heimilisófriðar eru tæplega
200 talsins það sem af er ári hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu. Tilkynningar vegna slíkra
brota hafa hins vegar verið nær
átta hundruð, samkvæmt saman-
tekt lögreglu.
Samkvæmt tölunum eru ofbeld-
ismenn á heimilum helst karl-
menn á aldrinum 35 til 44 ára.
Meðalaldurinn er lægri í flestum
öðrum flokkum afbrota, að sögn
Rannveigar.
Í fyrra leituðu rúmlega 300
konur til Kvennaathvarfsins
vegna ofbeldis á heimili, þar af 99
í dvöl. Yfir hundrað voru að flýja
morðhótanir og töldu sig hafa
ástæðu til að óttast um líf sitt.
Þriðjungur þeirra sem dvöldu í
Kvennaathvarfinu fóru aftur
heim í óbreyttar aðstæður.
„Sumar konurnar koma oft og
með stuttu millibili,“ segir Sig-
þrúður. „Þetta eru konurnar sem
við höfum mesta ástæðu til að
ætla að séu beinlínis í hættu
heima hjá sér. Þær sem hafa lifað
lengi við mjög ljótt ofbeldi stoppa
gjarnan stutt og við höfum miklar
áhyggjur af þeim.“
Ofbeldi á heimilum
mjög sjaldan kært
Um 200 kærur vegna heimilisofbeldis og annars ófriðar hafa komið fram á höf-
uðborgarsvæðinu á þessu ári. 800 sinnum á árinu hafa slík brot verið tilkynnt.
Sextán prósent kvenna sem komu í Kvennaathvarfið í fyrra kærðu ofbeldið.
Tilraun með
sérstakt öryggishlið fyrir farþega
Icelandair á Saga class-farrými
hefur leitt í ljós að það er óþarfi.
Þetta segir Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra á vef sínum.
Tilraunin var gerð að beiðni
Icelandair og flugstöðvarinnar,
og hefur hliðið verið kallað
gullna hliðið. Jóhann R. Bene-
diktsson, lögreglustjóri á
Suðurnesjum, segir hliðið hafa
verið minna notað en reiknað hafi
verið með.
Hann segir þjónustustigið í
öryggishliðum fyrir almenning
hátt, og mesti kúfurinn sé að auki
yfirleitt búinn þegar farþegar á
Saga class skrái sig inn í flug.
Fundað verði um málið með
öllum sem málinu tengjast á
mánudag þar sem endanleg
niðurstaða mun liggja fyrir.
Gullna hliðið
lítið notað