Fréttablaðið - 02.09.2007, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 02.09.2007, Blaðsíða 4
„Við hjá Bjarti erum bara hæstánægð með þetta, það er gaman að fá svona stóran óvin,“ segir Snæbjörn Arngríms- son, sem verður eigandi næststærsta bókaforlags Íslands, gangi sameiningaráform JPV og bókaútgáfu Eddu eftir. Hann segir ólíklegt að sameiningin breyti miklu í útgáfu fyrirtækj- anna. Þau haldi sínu striki. „Þeir fá líka nóga samkeppni og þurfa að berjast um lesendur eins og áður. Það er ekki eins og þetta skaði einn né neinn, nema kannski að einstaka höfundar telji sig falla í skuggann inni í svona stóru bákni,“ segir hann. Bækur sem teljist lífspurssmál fyrir þjóðina að lesa komi út eftir sem áður. „Menningarlífið er ekki í mikilli hættu,“ segir hann og hlær. Rúnar Helgi Vignisson, rithöf- undur og vara- formaður Rit- höfundasambands Íslands, tekur í sama streng. „Það er höfund- um í hag að eiga sterkt íslenskt forlag undir stjórn reynslu- bolta eins og Jóhanns Páls og Halldórs Guðmundssonar, sem hafa marga fjöruna sopið í þess- um bransa. Ég persónulega hef fulla trú á þeim,“ segir hann. Rúnar bendir á það sem kost við sameininguna að stærri forlög geti sinnt metnaðarfyllri verk- efnum en þau minni. „En það er vissulega svolítið áhyggjuefni ef eitt forlag ber höfuð og herð- ar yfir öll önnur forlög. Það getur skapað ákveðin vanda- mál fyrir minni forlögin, sem eiga á brattann að sækja við að koma vörum sínum á framfæri,“ segir hann. „Við þurfum að eiga öflugt forlag, en það væri kannski æskilegra að þau væru fleiri en eitt.“ Eitt stórt forlag betra en mörg lítil í bókaútgáfu Nýr risi á bókamarkaði verður til með sameiningu bókaútgáfu Eddu og JPV-útgáfu. Þetta kann að draga úr útgáfumöguleikum fyrir ákveðna höfunda en fagfólk telur þó mikilvægara að sterk útgáfa sinni metnað- arfullum verkefnum. Bókaútgáfa sögð fordæmd til að vera basl á svo fámennu málsvæði á hjara veraldar. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, vígði í gær endurgerð brunns við Brunnstíg við upphaf sögugöngu um bæinn sem var einn viðburða ljósanætur í bænum. Ný dæla er komin á brunninn og dældi Árni upp vatni fyrir þyrst göngufólk áður en gengið var af stað á aðrar söguslóðir í bænum. Haft er eftir Árna á vef bæjarins að skortur á neysluvatni hafi verið mikill vandi á Suður- nesjum á árum áður. Brunnar sem hafi verið á Suðurnesjum áður en brunnurinn við Brunnstíg var gerður hafi verið rammsaltir. Þorsti göngu- fólks slökktur Það er verulegt áhyggjuefni að tæplega fjórð- ungur lögaðila hafi ekki skilað skattframtölum vegna ársins 2005, segir Skúli Eggert Þórðar- son ríkisskattstjóri. Hlutfallið hefur aukist jafnt og þétt undan- farin ár. „Þetta er alvarlegt ástand. Félögum hefur fjölgað gríðarlega mikið og það vantaði skattfram- tal frá 24,6 prósentum lögaðila vegna ársins 2005,“ segir Skúli Eggert. Gjarnan er um að ræða einstaklinga sem stofnað hafa einkahlutafélag um rekstur sinn, eða fyrirtæki sem ekki eru komin í rekstur, þótt inn á milli séu allt- af einhver stærri fyrirtæki. Þegar félög skila ekki skatt- framtölum og gögnum um virðisaukaskatt áætla starfs- menn skattsins á þau með til- heyrandi umstangi, og fara jafnvel í innheimtuað- gerðir. Skúli Eggert segir að þá skili félögin gjarnan inn fram- tölum og áætlanir séu felldar niður án þess að viðurlög komi til. Ekki hefur verið metið hver kostnaður skattayfirvalda er vegna þessa. „Þetta er ástand sem getur ekki gengið lengur. Það verður að taka á þessu, og til þess þarf hugsan- lega lagabreytingar,“ segir Skúli Eggert. „Ef þetta endurtekur sig ár eftir ár hjá ákveðnum félögum hlýtur á endanum að koma að því að félögin verði afskráð.“ Hann metur það svo að ekki sé nægjanleg heimild fyrir því í lögum að grípa til slíkra aðgerða, enda um mjög róttækar aðgerðir að ræða. Hjá ríkisskattstjóra sé nú unnið að tillögum að úrbótum á lögum sem kynntar verði stjórn- völdum á næstunni. Vill að lög heimili afskráningu Tryggingastofnun var óheimilt að krefja konu um rúma hálfa milljón króna í endur- greiðslu af lífeyri ársins 2005. Tryggingastofnun vildi draga lífeyri konunnar vegna tekna sem eiginmaður hennar hafði af sölu íbúðar þeirra, af sölu hlutabréfa og vegna arðs af hlutabréfum. Konan kærði til úrskurðar- nefndar almannatrygginga. Hún benti á að hjónin hefðu verið skil- in að skiptum þegar maður hennar fékk umræddar tekjur. Úrskurð- arnefnd tók undir þau sjónarmið og hefur lagt fyrir Trygginga- stofnun að gera nýjan endurreikn- ing á lífeyri konunnar. Fráskilin kona hýrudregin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.