Fréttablaðið - 02.09.2007, Qupperneq 8
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Montreal
„Þetta hefur verið
algjör geðveiki, röð fram á gang.
En við erum tilbúin að leggja
smá á okkur fyrir frítt í strætó,“
segir Dagný Ósk Aradóttir, for-
maður Stúdentaráðs Háskóla
Íslands. Nemendafélög fram-
halds- og háskóla á höfuðborgar-
svæðinu vinna nú hörðum hönd-
um að dreifingu strætókorta.
„Það hefur farið endalaust tími
í þetta og hellingur af sjálfboða-
liðum hefur hjálpað okkur,“ segir
Dagný. Starfsmenn á skrifstofu
Stúdentaráðs eru þrír talsins og
því miklar annir. „Það komu
svona 150 manns í gær og stöð-
ugur straumur alla vikuna. Við
erum með um níu þúsund kort og
tvö þúsund þeirra eru þegar
farin,“ segir Dagný.
„Við erum að hjálpast að, það
eru náttúrlega þrjár byggingar í
HR,“ segir Sveinn Kristjánsson,
formaður Stúdentafélags Háskól-
ans í Reykjavík. Hann segir allt
að tíu manns hafa tekið þátt í
dreifingunni hverju sinni.
„Þetta er gríðarlega mikil
vinna, en þetta er okkar starf,
þar sem við erum hagsmunafé-
lag nemenda,“ segir Sveinn.
„Við höldum að 99 prósent hafi
fengið kort,“ segir Björn Brynj-
úlfur Björnsson, Inspector
scholae í Menntaskólanum í
Reykjavík. „Þetta hefur gengið
mjög vel, en eitt prósent kortanna
kom ekki úr prentun. Við fáum
þau á næstunni.“
Dreifingin hefur ekki gengið
snurðulaust fyrir sig og vantaði
kort nokkurra nemenda fyrstu
dagana. Pálmi Freyr Randvers-
son hjá umhverfissviði Reykja-
víkurborgar segir að ákveðið
hafi verið að prenta eftir listum
frá skólunum sem ekki voru full-
kláraðir.
„Við vildum að nemendur gætu
fengið kortin í upphafi skólans,
en á þeim tíma er fólk enn þá
milli skóla eða ekki rétt skráð.
Núna erum við að leggja loka-
hönd á kort fyrir þessa nemend-
ur,“ segir Pálmi.
Dreifa strætókortum
til 30.000 námsmanna
Ragnar Jóhanns-
son, eigandi Formaco ehf., ætlar
að stefna Verkalýðsfélagi Akra-
ness fyrir rógburð.
Formaður verkalýðsfélagsins,
Vilhjálmur Birgisson, kærði
Formaco í byrjun júní fyrir að
vera með fjórtán Litháa í vinnu
sem að sögn Vilhjálms voru
óskráðir hjá Vinnumálastofnun.
Ragnar segir að í upphafi hafi
Formaco reynt að skrá starfs-
mennina fjórtán á vefsíðu Vinnu-
málastofnunar en að síðan hafi
verið biluð og þess vegna hafi það
ekki gengið í stuttan tíma. „Starfs-
menn okkar hafa alltaf verið
skráðir hjá Vinnumálastofnun
nema í þessu eina tilfelli þegar
það komst upp að skráning starfs-
mannanna hefði ekki gengið vegna
þess að heimasíðan var biluð. Þá
var skráningin leiðrétt hjá Vinnu-
málastofnun. Við höfum alltaf
farið eftir lögum í einu og öllu,“
segir Ragnar.
„Ég bað lögfræðing minn því
um að undirbúa málsókn á hendur
verkalýðsfélaginu á miðvikudag-
inn vegna ítrekaðra niðrandi
ummæla Vilhjálms um Formaco,“
segir Ragnar og bætir því við að
formaðurinn hafi haldið úti harðri
gagnrýni á fyrirtækið vegna máls-
ins á heimasíðu verkalýðsfélags-
ins.
Kæra Verkalýðsfélags Akra-
ness gegn Formaco er nú til með-
ferðar hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu. Ragnar segir að
ekki hafi verið haft samband við
Formaco vegna kærunnar.
Stefnir félaginu fyrir rógburð
Tveir af mönnunum
tíu, sem handteknir voru í
Rússlandi í tengslum við morðið á
blaðakonunni Önnu Politkov-
skaju, hafa
verið látnir
lausir. Báðir
eru þeir
lögreglumenn.
Auk þess liggur
þriðji maður-
inn, sem er
leyniþjónustu-
maður, ekki
lengur undir
grun í málinu.
Þessi þróun mála þykir ýta
undir efasemdir um að saksókn-
arinn í Moskvu hafi verið eins
langt kominn með að leysa málið
og látið var í veðri vaka þegar
yfirlýsing um handtöku tíu manna
var gefinn á mánudag fyrir tæpri
viku.
Tveir menn af
tíu látnir lausir
„Við munum gera smávægilegar breytingar
á húsnæðinu og vera með neyðarvistunina áfram,“
segir Sólveig Ásgrímsdóttir, forstöðukona Stuðla.
Eftir að neyðarvistunarálma Stuðla brann fyrir
skömmu hafa forsvarsmenn Stuðla og Barnavernd-
arstofu leitað bráðabirgðalausna á neyðarvistuninni.
Þar sem um sérhæfða starfsemi er að ræða er ekki
hægt að flytja hana hvert sem er. Nú hefur verið
ákveðið að gera breytingar á þeirri álmu sem slapp
við brunann og halda uppi neyðarvistun þar ásamt
almennri meðferðardeild.
Starfsemi meðferðardeildarinnar mun ekki
skerðast að sögn Sólveigar en neyðarvistunin mun
ekki verða jafnafkastamikil.
„Matsmenn hafa sagt okkur að það taki þrjá til
fjóra mánuði að koma álmunni í samt lag aftur. Núna
er það bara spurning hvernig gengur að fá iðnaðar-
menn til verksins,“ segir Sólveig.
Á Stuðlum eru reknar tvær deildir. Annars vegar
er það meðferðardeild þar sem ungmenni dvelja í
allt að tvo mánuði og fá meðferð sem ætluð er til að
styrkja sjálfsmynd þeirra.
Hins vegar er neyðarvistun eða lokuð deild.
Barnaverndarnefnd getur skikkað ungmenni í
neyðarvistun að hámarki tvær vikur á meðan unnið
er í málefnum barnsins.
Fyrrverandi langhlaup-
ari í Kína, Zhang Jianmin, lét
dóttur sína hlaupa að jafnaði 65
kílómetra, eða nærri hálft annað
maraþonhlaup, á hverjum degi í
55 daga samfleytt.
Hann segist ekki hafa neytt
dóttur sína til að hlaupa, heldur
hafi hún haft gaman af því.
Stúlkan hljóp ekki eins heldur
fylgdi Jianmin henni eftir á
rafknúnu reiðhjóli allt frá
heimili þeirra á Hainan-eyju í
sunnanverðu Kína til höfuð-
borgarinnar Peking.
Sérfræðingar telja líklegt að
stúlkan muni bíða heilsutjón af
völdum maraþonhlaupanna.
Stúlkan hljóp
3.575 kílómetra
Hver seldi alla hluti sína í
Icelandair í vikunni?
Í hvaða menntaskóla er
veggspjald kvikmyndarinnar
Veðramóta bannað?
Hver skoraði eftir 10 sekúnd-
ur í leik FH og KR á fimmtu-
dagskvöld?
Nemendafélög framhalds- og háskóla á höfuðborgarsvæðinu útdeila kortum til
námsmanna, sem veita gjaldfrjálsar ferðir í strætó. Rúmlega þrjátíu þúsund nemar
úr um 25 skólum fá frítt í strætó. „Algjör geðveiki,“ segir formaður Stúdentaráðs.