Fréttablaðið - 02.09.2007, Blaðsíða 22
Umsjón með störfunum hafa Auður Bjarnadóttir, audur.bjarnadottir@capacent.is
og Guðríður D. Hálfdanardóttir, gudridur.halfdanardottir@capacent.is
hjá Capacent Ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með 9. september n.k.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um störfin á heimasíðu
Capacent Ráðninga, www.capacent.is.
Straumur Fjárfestingabanki | Borgartún 25 | 105 Reykjavík | 580 9100 | www.straumur.net
Straumur er stærsti fjárfestingarbankinn á Íslandi. Bankinn býður heildstæða, samþættaða
fjárfestingarþjónustu á sviði markaðsviðskipta, fyrirtækjaráðgjafar, fjármögnunar og eignastýringar.
Starfsmenn bankans eru nú rúmlega 440 talsins.
BAKVINNSLA
Starfið felst í daglegri vinnslu markaðsviðskipta, skráningu, frágangi verðbréfaviðskipta,
afstemmingum og skýrslugerð. Reynsla af bankastörfum er kostur en ekki skilyrði.
Vegna vaxandi umsvifa Straums
hérlendis sem erlendis leitum við
að framúrskarandi einstaklingum
til starfa í viðskiptaveri bankans.
MIÐVINNSLA
Starfið felst í daglegri vinnslu markaðsviðskipta, uppsetningu samninga, áhættumati og
eftirfylgni verklagsreglna. Reynsla af bankastörfum er kostur en ekki skilyrði.
LÁNAUMSÝSLA
Starfið felst í daglegri vinnslu lánaviðskipta, skráningu og innheimtu á öllum útlánum bankans
og eftirliti með vanskilum. Einnig umsjón með langtímalántöku bankans, greiðslu vaxta og
uppgjöri. Reynsla af bankastörfum er skilyrði og reynsla á Libra Loan kostur.
Framúrskarandi
einstaklingar
Skilyrði er að viðkomandi einstaklingar séu talnaglöggir, nákvæmir í vinnubrögðum og með góða
enskukunnáttu. Mikilvægt er að þeir séu sveigjanlegir og hafi hæfni í mannlegum samskiptum.