Fréttablaðið - 02.09.2007, Side 24

Fréttablaðið - 02.09.2007, Side 24
KÓPAVOGSBÆR www.kopavogur.is - www.job.is Frá Sundlaug Kópavogs • Konur og karlar óskast til starfa við laugar- og baðvörslu og í afgreiðslu við Sundlaug Kópavogs. Um er að ræða vaktavinnu. Lágmarksaldur er 20 ár. Laun samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og SfK. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður Vildís Guðmundsdóttir í síma 5700 470, netfang vildis@kopavogur.is Endurskoðandi Í starfinu felst að hafa eftirlit og meta áreiðanleika reikningsskila með hliðsjón af alþjóðlegum reiknings - skilastöðlum, taka þátt í samstarfi CESR, The Committee of European Securities Regulators (samstafs nefndar evrópskra eftirlitsaðila á verðbréfamarkaði) og draga sjálfstæðar ályktanir um kröfur til reikningsskila hér á landi með hliðsjón af niður stöðum samstarfsnefndarinnar. Umsækjendur þurfa að hafa lokið löggildingu í endur - skoðun, í samræmi við ákvæði laga nr. 18/1997 um endur - skoðendur og hafa haldgóða þekkingu á megin atriðum stjórnsýslureglna. Sömuleiðis þarf viðkomandi að geta sýnt frumkvæði, hafa gott vald á rituðu máli, bæði á íslensku og ensku og hæfni til að leysa úr álitamálum. Nánari upplýsingar um starfið veitir Skúli Eggert Þórðarson í síma 563 1152 fimmtudaga og föstudaga milli kl. 09.30 og 10.30. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu. Umsóknir er hafa að geyma ítarlegar upplýsingar um menntun, starfsferil og önnur atriði er máli skipta, sendist ríkisskattstjóra Laugavegi 166, 150 Reykjavík – auðkennt starfsmannahald, fyrir 25. september 2007.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.