Fréttablaðið - 02.09.2007, Qupperneq 77
Í austurríska listagallerí-
inu Hangar-7 verður opnuð
stór myndlistarsýning
tileinkuð Íslandi í lok sept-
ember. Valdir hafa verið
sjö íslenskir listamenn til
að sýna þar. Aðsókn í gall-
eríið er með því mesta sem
gerist á nútímalistasöfnum
og er þetta því stórt tæki-
færi fyrir þá sem fara út.
Sýningarstjórinn Lioba Reddeker
var hér á landi fyrr í sumar til að
velja listamenn fyrir sýninguna.
Þeir sem hlutu náð fyrir augum
hennar eru Aron Reyr Sverris-
son, Birgir Snæbjörn Birgisson,
Davíð Örn Halldórsson, Guð-
mundur Thoroddsen, Helgi Þor-
gils Friðjónsson, Ragnar Kjart-
ansson og Þorri Hringsson.
Hangar-7 er gamalt flugskýli í
útjaðri Salzburg sem hefur verið
breytt í flugsafn og listagallerí.
Safnið er ólíkt hefðbundnum
listasöfnum. Það eru engin hvít
ferhyrnd herbergi heldur er þetta
stór glerskáli með stórum opnum
rýmum sem líkist helst geim-
skipi, nýlentu í borgarjaðrinum.
Frá því að safnið var opnað
fyrir fjórum árum hafa verið
haldnar nokkrar sýningar árlega
þar sem kastljósi hefur verið
varpað á listasenu eins lands.
Meðal þeirra landa sem hafa
verið tekin fyrir eru Mexíkó,
Kína og Spánn auk þess sem New
York-borg varð einu sinni fyrir
valinu.
Í samtali við Liobu Reddeker
fyrr í sumar kom fram að sýning-
ar þarna hafa virkað sem aðgöngu-
miði fyrir marga listamenn inn í
virt gallerí í Evrópu og Banda-
ríkjunum. Listamenn hafa selt
verk sín þarna og þannig komist á
kortið sem listamenn sem stærri
gallerí þora að veðja á.
Sýningin verður opnuð 21. sept-
ember og íslenska hljómsveitin
Seabear spilar við opnunina.
.
Sumarsýning Listasafns Íslands
stendur enn. Alas Nature kallast
hún upp á ensku en það virðist
orðinn fastur siður íslenskra safna
að hafa jafnræði með enskum yfir-
skriftum sýninga sinna og íslensk-
um í kynningu. Á íslensku kallast
hún ó-náttúra. Sýningin geymir
um 80 verk eftir 51 listamann. Þar
er leitast við að skoða náttúruna í
öðru ljósi og frá öðrum sjónarhóli
en menn eiga að venjast. Þunga-
miðjan er innsetning Katrínar Sig-
urðardóttur, High Plane IV: Hún
byggir á umbyltingu sjónarhorns
þar sem landslagið er lagt lárétt á
borð fyrir áhorfendur. Í staðinn
fyrir að horfa á landslag málað á
tvívíðan, lóðréttan flöt sjá gestir
landið lárétt eins og þeir færu í
þyrlu yfir. Ó-náttúra tekur mið af
þessu óvænta sjónarhorni og
bregður upp nýrri og framandi
sýn á venjubundið umhverfi.
Í dag kl. 14 ætlar heimspeking-
urinn og útvarpsmaðurinn Hjálm-
ar Sveinsson að leiða gesti um sali
og tala um hugrenningar sínar
varðandi einstök verk á sýning-
unni. Hjálmar segir listina vera
ónáttúru frá hlýskeiði: „Forsenda
listsköpunar er að láta ekki stjórn-
ast af blindum öflum og hvötum
náttúrunnar heldur hefja sig yfir
hana. Listsköpun felst meðal ann-
ars í því að búa til eitthvað sem
náttúran getur ekki búið til sjálf.
Listsköpun er eitt af því sem
greinir manninn frá náttúrunni.
Sú aðgreining, svo það sé undir-
strikað, er forsenda menningar og
mennsku, við eigum henni allt að
þakka. Menningin og listin eru
ónáttúra. Samt sem áður, eða
kannski einmitt þess vegna, leyn-
ist í huga mannsins einhvers konar
þrá eftir endurhvarfi til náttúr-
unnar. Því hefur líka verið haldið
fram að náttúran njóti sín best í
listinni og listasöfnum; í málverk-
um og ljósmyndum, skúlptúrum,
söngvum og ljóðum. Íslendingar,
svo dæmi sé tekið, virðast fyrst og
fremst hafa áhuga á náttúrunni í
líki málverka. Það flækir dæmið
enn meir, eða einfaldar, að teg-
undin Homo varð til á því skeiði
náttúrusögunnar sem kallast ísöld.
Íslendingar búa enn við ísröndina,
eins og nafnið gefur til kynna. Það
sem nú sést í Listasafni Íslands er
einhvers konar hellamálverk frá
hlýskeiði.“ Frekari pælingar má
heyra í sölum Listasafns Íslands í
dag.
Jöklaskeið okkar