Tíminn - 04.01.1981, Síða 8

Tíminn - 04.01.1981, Síða 8
8 Sunnudagur 4. janúar 1981 Kristján Eldjárn: LITIR MENN Hinn 21. desember birti Tíminn litríka smá- grein eftir Oddnýju Guðmundsdóttur og kom það sér vel i hinu mikla myrkri á skemmsta degi ársins. Þarna veitist Oddný að einum orðalepp sem of lengi hefur verið veifað svo óþarfur sem hann er, nefnilega orðasam- bandinu ,,litaðir menn" um það fólk sem ekki telst til hins ,,hvita" kynstofns. Ekki fellst ég alls kostar á tillögu Oddnýjar til úrbóta, en gaman hafði ég af greininni, meðal annars af því að ég minntist þess að ég hafði fyrir um það bil ári siðan punktað niður svolitla ádrepu um sama efni, en ekki birt hana. Nú þar eð málið er komið á dagskrá þykir mér ekki úr vegi að lofa þessu smáskrif i minu að sjá dags- ins Ijós, sem nú lengist með degi hverjum, tíl þess að ölið dofni ekki á könnunni. Og kemur hér þessi samsetningur minn: Lengi hefur mig furðað á því langlundar- geði orðasælkera og umvöndunarmanna tung- unnar að liða óátalið að þeir meðbræður vorir sem ekki eru af hinum svonefnda hvíta kyn- stofni séu kallaðir litaðir menn. Hvert sinn sem ég heyri þessa málleysu —og það er oft — bregður tveimur minningum fyrir I huga mér, og er önnur úr gamla eldhúsinu á bernsku- heimili minu en hin úr Þjóðminjasafninu. Fyrri minningin er á þessa leið: Móðir mín stendur við eldavélina yrir litunarpotti og veltir bandhespum og prjónlesi fram og aftur í rjúkandi litunarleginum, þangað til hún er ánægð með litunina og færir upp úr. Þá er sokkurinn litaður, peysan lituð og bandið litað. Einhver kemur inn í eldhúsið og spyr: Hverng er þetta á litinn? Eða: Hvernig er lopinn litur, hespan lit og bandið litt? Næm máltilfinning gerir skarpan greinarmun á þessum tveimur orðum: litur og litaður. Síðari minningin: Á gömlu útsaumuðu altarisklæði frá Svalbarði við Eyjafjörð eru sýndar píslir Jóhannesar postula og guð- spjallamanns og efniðsótt í Jóns sögu postula, eins og Gísli Gestsson safnvörður hefur sýnt fram á í grein í Árbók fornleifafélagsins 1963. Ein píslin er sú, að hinn helgi maður er látinn í sjóðandi viðsmjörsketil. Jóhannes hafði verið gripinn og fluttur til Rómaborgar og síðan segir sagan: „Og í stað sem hinn grimmasti víkingur Dominicanus heyrir það, verður hann svo reiður að hvorki vill hann láta koma sér í augsýn postulann né jarlinn (þann sem flutt hafði Jóhannes til borgarinnar) utan heldur býður í stað með djöfullegu forsi svo berast sín orð jarl- inum, að hann leiði Jóhannes fyrir borgar- hlið í Róma, er Latína heitir, flettandi hann í fyrstu öllum klæðum, en síðan lemjandi með harðri húðstroku. Eftir svo gjört býður hann jarlinum að klippa allt hár af postulans höfði sem Ijótlegast og næst sverðinum en síðan steyta honum lifanda í viðsmörsketil vellanda, sem til heyrir að refsa keisarans óvin og mótstöðumann Rómverja. Þetta boð svo bölvaðog grimmdarfullt af f jandans helli, það er af brjósti Dominicani drepsóttlega framgengið, fyllir greindur jarl í alla staði, skipandi með digrum metnaði sinn dómstól fyrir nefndu hliði..." og svo framvegis. Síðan verpa þeir postulanum í viðsmjörsketilinn, og á myndinni sjáum við hvar hann situr nakinn í pottinum (katlinum) og skíðlogar undir. Ef nú hefði verið litunarlögur en ekki viðsmjör í pottinum hefði postulinn sannarlega verið litaður maður þegar hann fyrir guðs náð steig heill og óskaddaður upp úr suðunni, rétt eins og prjónlesið hennar móður minnar forðum var litað. Ofboðsleg væri sú tilhugsun ef verið væri að lita mann í snarpheitum litunarpotti. En annað eins og það gerist aðeins í gömlum helgisögum. Enginn maður er litaður, engin kona lituð og ekkert barn litað. Hins vegar er gott og gilt íslenskt mál að segja að hattur sé einhvernveginn litur, húfa einhvernveginn lit og vesti einhvernveginn litt. Og hrúturinn er einlitur eða misHtur, ærin einlit eða mislit og lambið einlitt eða mislitt. Kýr geta verið þrí- litar og þóttu metfé áður f yrr. Þegar á þarf að halda að greina fólk sundur eftir hörundslit er rétt að tala um hvíta menn (þótt þeir séu reyndar sjaldnast alveg hvítir) og lita menn. „Coloured people", — orð sem er upphaf ógæfunnar — útleggst á íslensku litir menn: „Á Islandi eru fáir litir menn, en þó bregður þar f yrir á götu litum manni eða litri konu og í skólum eru nokkur lit börn. í London er hins- vegar fjöldi litra manna." Lýsingarorðið litur er auðvelt í meðförum og beygist eins til dæmis feitur og heitur. Enginn þarf að hræðast það eða firrast fyrir þá sök að það fellur saman við nafnorðið litur. Slíkt er algengt í málinu, eins og til dæmis óður og hagur, svo að eitthvað sé nefnt, orð sem ýmist eru nafnorð eða lýsingarorð og valda þó engum vandræðum. Ef farið yrði að nota orðið litur í þeirri merkingu sem hér er mælt með, mun öllum finnast það í alla staði eðlilegt eftir skamman tíma. Litaður í þessu sombandi verður hins vegar alla daga óeðli- legt, og raunar beinlínis óhugnanlegt. Litir menn um víða veröld hafa sannarlega orðið fyrir nógu ágauði af hálfu hins hvíta kyn- stofns þó við (slendingar vekjum ekki það hugboð með óþörfum orðalepp að þeir hafi verið litaðir, jafnvel ístórum potti sem minnir á polstulann Jóhannes þegar hann var soðinn í viðsmjörinu. Hæfilegtvirðist að klykkja þessa umræðu út með Ijóðlínum eftir séra Matthías. Þótt ortar séu af öðru tilefni gætu þær eins vel átt við fordóma hins hvíta kyns í garð litra manna vegna litarháttar þeirra: Og svo gjörir heimskan og heimurinn sitt: hugsar meðaugunum: „Hvernig er það litt?"

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.