Tíminn - 04.01.1981, Side 14
Sunnudagur 4. janúar 1981
::
Umsjón: Magnús Gylfi
Jólamyndirnar í ár:
TONLIST TONLIST
Aö þessu sinni eru óvenju
margar af jólamyndunum svo-
kölluöu tónlistarmyndir, þ.e.
myndir sem byggja aö verulegu
leyti, ef ekki öllu leyti, á tónlist I
söguþræöinum. A Stór-Reykja-
vikursvæðinu einu samaner veriö
aö sýna fimm tóniistarmyndir.
Þáð eru myndirnar „Urban Cow-
boy”, „Xanadu”, „The Jazz
Singer”, „Can’tStop The Music”
og „Mr. Quilp”. Þó svo aö það
falli ekki beint undir verkahring
Nútlmans aö fjalla um kvik-
myndir, þá veröur þaö aö þessu
sinni gert, þar sem hér er um aö
ræða myndir, sem sumar hverjar
hafa, á sinn hátt haft áhrif á tón-
listarsmekk fólks. Mér er til efs
að svona margar tónlistarmyndir
hafi áður verið sýndar samtimis I
Reykjavik, ekki nema þá á gull-
öld HoIIywood dans- og söngva-
myndanna. En voru þá svona
mörg kvikmyndahús I Reykja-
vfk? Engu að slöur er þetta
ánægjuleg þróun og skínandi góð
jólagjöf til poppista.
„Urban Cowboy”
Fáar myndir hafa fariö af stað
hér á landi meö eins miklu pompi
og pragt eins og þessi. Synd aö
hún skyldi ekki ganga lengur.
„Urban Cowboy” olli á si'num
tima straunjhvörfum i banda-
risku tónlistarlifi ásamt mynd-
unum „Honeysuckle Rose” og
„Coal Miners Daughter” en það
var endurreisn „Country” tón-
listarinnar, ef svo má að orði
komast. Þær áttu hvað mestan
þátt i þvi aö á „country” tónlist
var hlustað um gervöll Banda-
rikin og ekki leið á löngu þar til
allur heimurinn hlustaði. Öum-
flýjanlega fylgdi þessu kúreka-
æði sem á skömmum tima náöi
um allan hinn vestræna heim.
Klókir menn reiknuðu það út aö
fyrreða seinna kæmi þessi bylgja
hingaö til tslands og bjuggu allt i
haginn svo að tslendingar yrðu
meðtækilegri fyrir boðskapinn.
Miklar vonir voru bundnar við aö
þessi mynd ylli sömu bylgjunni
hér heima eins og hún hafði gert
út i hinum stóra heimi. En viti
menn, flop. Hvaö veldur? Fariö á
myndina og dæmið sjálf. Skýr-
ingar eru vafalaust margar á
þessu en þó held ég að einna mest
vegi að tslendingar eru yfirleitt
ekki „stemmdir” fyrir svona til-
búin æöi og þeim mun siður ef það
byggist á einni mynd sem veldur
manni vonbrigðum. Hvernig er
hægtað taka mynd alvarlega þar
sem oröaforði allra leikara
myndarinnar virðist vera eitt orð
„shit”. Engu máli virtist-skipta
hverjir áttu i hlut, börn eöa
gamalmenni og hvað verið var að
túlka, viðkvæma senu eða gleði-
rika, alltaf var samaoröið viöhaft
i einhverju sambandi. Þetta væri
verðugt rannsóknarefni fyrir
málvísindamenn og er þetta
vafalaust það orö i enskri tungu
sem hefur hvað flestar
merkingar.
En ekki er allt með öllusvovont
aö ekki boði gott. I þesari enda-
vitleysu er aö finna rjómann af
bandariskri „country”-tónlist.
Tónlistin I myndinni gerir það að
verkum að maður gæti hugsað sér
að sjá hana aftur (meö lokuö
augun). Margir af kunnustu tón-
listarmönnum Bandarikjanna
leggja lag sitt viö myndina. Enda
nýtur maöur hverrar mínútu sem
tónlist er leikin. Af öllum þeim
fjölda listamanna sem við sögu
koma er erfitt að taka nokkra út
ognefna, en til gamans skulu hér
nokkrir nefndir, Kenny Rogers,
TheCharlieDanielsBand, Bonnie
Raitt, Boz Scaggs, Linda Ron-
stadt, Jimmy Dorset, Joe Walsh,
Dan Fogelberg og Bob Seg&r. Af
þessari upptalningu má sjá að hér
er einvala lið á ferð og hvaða
minusar sem myndin kynni að fá
að öðru leyti þá er tónlistin það
stór plús að hún vegur það upp.
Enda fór það svo að ein fimm eða
sex lög úr henni náðu hátt á vin-
sældarlistum beggja vegna
Atlantshafsins.
Sýnd í Hafnarfjarðarbiói.
„Xanadu’
„Þá er Olivia NewtonJohn
komin á kreik á ný. Hún keppir
við gamlan kærasta úr „Grease”
John Travolta, sem nú riður tudd-
um i „Urban Cowboy”.
„Xanadu” eins og „Urban Cow-
boy” er tizkufyrirbrigöi. Sögu-
þráðurinn er mest „fantasia”
sem ekki er ástæða til að íjölyrða
um hér, en myndin byggir að veru
legu leyti á söng og dans.
Eins og áður sagði leikur Olivia
Newton-John i myndinni. Hún
leikur eitt aðalhlutverkið, en á
móti henni leikur enn af „sjarm-
örum” gamla Hollywoods, Gene
Kelly, og mun þetta vera i eitt af
fáu skiptunum sem hann hefur á
siðustu árum sést á hvfta tjald-
inu. En aðalhlutverkið i myndinni
hefur án efa verið tónlistin. Nú
þegarerhún vel þekkthérá landi
vegna þess að gefin var út plata
með lögum úr myndinni fyrr á
árinu (1980), sem þegar naut
mikilla vinsælda. Þetta erhluti af
auglýsingahringnum, sem svo er
nefndur, en það er þegar þekktii
listamenn gefa út plötu og selja
hana vel og með þvi kynna þeir
væntanlega mynd, myndin fær
góða aðsókn og þar með er hún
góð auglýsing fyrir plötuna, eða i
stuttu máli, listamenn selja plötu,
plata auglýsir mynd, mynd selur
plötu.
að halda uppi nafni hljömsveit-
arinnar um ókomin ár. En vel er
það flutt af þeim og Oliviu og af
þessu má hafa þó nokkra
skemmtan. Eitt er það sem ekki
verðurlátiðógetið um i sambandi
við þessa mynd. Hún er fyrsta
myndin sem sýnd er her á landi
eftir að fullkomin Dolby-hljóm-
tækjabúnaður hefur verið komið
fyrir i biöinu. I raun er hún ekki
sýnd i Dolby, heldur spiluð. Þetta
hefur það i för með sér að áhorf-
andinn hefur það á tilfinningunni
að hann sitji i sama herbergi og
sá sem syngur. Slikt eykur enn á
áhrif tónlistarinnar i myndinni.
Sýnd i Laugarásbiói.
,,Can’t Stop The Music”
t „Xanadu”er þaðhljómsveitin
E.L.O. sem hefur gert meirihlut-
ann af lögunum og þeir flytja alla
tónlist i' myndinni. E.L.O. er með
betri hljómsveitum 1 dag en ekki
Jjy’kir mér þessi tónlist likleg til
Þessimynder gerð fyrirhljóm-
sveitina „Village People” og
Valerie Perrine. Söguþráðurinn
er aukaatriði, en eitthvað fjallar
þetta um tónlist. Tónlistinni er
flutt að mestu leyti af „Village
People”, en þó er það ekki ein-
Shecna Easton
Oary Numan
Upp komast
svik um síðir
Mörg eru leyndarmálin i
þessum hcimi. Óhætt er þó að
fullyröa aö ekkert þeirra hefur
veriö eins vel varöveítt og þaö
scm Nútimanum hefur nú tekist
aö afhjúpa, Hér er átt viö þá
staöreynd aö Sheena Easton og
Gary Numan eru ein og samá
manneskjan! Grunsemdir I
þessa átt vöknuöu snemma hjá
umsjónarmanni Nútimans, cn
ekki þótti ráöiegt aö varpa
þcssu fram fyrr en búiö væri að
afla gagna er styddu þessa full-
yrðingu. Nú hefur sem sagt tck-
ist aö afla sönnunargagna og
eins og sjá má af meöfylgjandi
myndum fer þetta ekki á milli
mála.
Sheena Easton varð vinsæl á
siðasta sumri (þið munið þegar
sólin skein) meö lögunum „9 to
5” og „One Man Woman”. Gary
Numan þarf ekki að kynna fyrir
islenskum poppistum.
Þegar myndirnar eru skoðað-
ar nánar sést að svipurinn leyn-
ir sér ekki. Bæði eru þau rauö-
birkin og kinnfiskasogin með
þetta fjarræna augnaráö. Enn-
fremur er það staðreynd að þau
hafa aldrei sést saman á tón-
leikum og þaðan af siður saman
á almannafæri. Enda þykjast
menn verða varir víö vtssa
fylgni á milli tónleikahalds
Gary og Sheenu, þ.e. þegar ann-
að hætti þá fer hitt af stað.
Þar með er það upplýst.
Lesendur geta verið þess full-
vissir að ekkert fer fram hjá
haukfránum sjónum og heyrn
umsjónarmanns þáttarins og
hann mun af fremsta megni
reyna að varna þvi að islenskir
poppistar verði plataðir. Að lok-
um er rétt að geta þess að ómet-
anlega hjálp við þessa rannsókn
veittu mér þau Páll, linda,
Albert, Tbmmi og verði ykkur
aö góðu
Neil Diamond
Olivia Newton-John
úr „Xanadu”
einu atriöi
hh'tt. Mestmegnis er það disco-
tónlist og það af léttara taginu.
Þetta er söng og dansmynd a la
Hollywood eins og þær gerast
bestar eða verstar, allt eftir þvi
hvernig þú litur á það, en ágætis
afþreying engu að siður.
Sýnd i Regnboganum.
„Mr. Quilp”
Hér er á ferðinni ein létt bresk
sem ætluð er fjölskyldunni allri.
Ekki er að efa að hún er sauð-
meinlaus skemmtimynd sem
Bretanum er einum lagið að
framleiða. Það er virðingatvert
aö ein mynd i öllu þessu jólaflóði
skyldi vera ætluð fjölskyldunni
allri, en það hefur aðeins eitt bió
reynt að gera hingað til, Gamla
BIó.
Tónlistina gerði Anthony
Newley,-en hann leikur aðalhlut-
verkið í myndinni. Myndin er
gerð eftir sögu Charles Dickens
„The Old Curiosity Shop’
(„Skranbúðin”).
Sýnd i Regnboganum.
„The Jazz Singer”
Þessi mynd var frumsýnd hér á
landi um leið og hún var frum-
sýnd'I Bandarikjunum og Bret-
landi. Nýrri geta þær ekki orðiö.
En fleira er það sem gerir þessa
mynd merkilega. Hér stigur sin
fyrstu spor á leikarabrautinni
hinn heimsfrægi söngvari og
lagahöfundur Neil Diamond. Og
hann ræðst ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur. Fyrir utan
það að leika aðalhlutverk
myndarinnar þá hefur hann
samið alla tónlist fyrir myndina.
Myndin ber sama heiti og sú
mynd sem gerði A1 Jolson frægan
á sinum tima og var fyrsta tal-
myndin sem framleidd var. Jass-
söngvarinn Neil Diamonds hefur
................................... í