Tíminn - 11.01.1981, Síða 5

Tíminn - 11.01.1981, Síða 5
Sunnudagur 11. jariúar 1981. 5 MMlíiaMl Minning Ólöf Þórðardóttir Fædd 8. janúar 1963. Dáin 14. desember 1980. Nú árið er liðið I aldanna skaut og aldrei það kemur til baka, nú gengin er sérhver þess gleði og þraut, það gjörvallt er runnið á eillfðar braut, en minning þess vist skal þó vaka. Oft hefur það komið fyrir á ár- inu 1980, sem nú er nýgengið, að maður hefur spurt sjálfan sig að þvi i einlægni, til hvers við séum eiginlega að fæðast f þennan heim, heim sem stundum er svo fullur af fjandskap, grimmd og sársauka. Svarið hef ég ekki en einhver hlýtur tilgangurinn að vera, þó við skiljum ekki og vilj- um e.t.v.ekki skilja hann. Vel má það vera að best fari á þvf að vita sem minnst og hugsa sem minnst um það. Og enn einu sinni brýst þessi spurning fram á varimar þegar þú, Ólöf Þórðardóttir, ert skyndi- legahrifin burt úr þessum heimi, svo ung og lffsglöö, þegar leiðir lágu til allra átta og þú áttir allt lifið framundan — að þvi er manni virtist. Það fer þá ekki hjá þvi að maður standi eftir ráð- þrota og djúpt særður og reyni að leita svara við ofangreindri spurningu. Fátt verður um svör og hinn ti'ttnefndi tilgangur virð- ist dcki vera neinn. Það var eins ogað sliSckva ljós- in, svo snöggt og óvænt kom þetta reiðarslag. Hverjum hefði dottið i hug, að morgunn sunnudagsins 14. desember væri sfðasti morg- uninn á stuttri en bjartri lffsleið þinni. Hverjum hefði dottið það i hug þegar verið var að borða há- degismatinn, án efa undir fjörug- um umræðum um hrossin sem átti að fara að sækja, að þú sem varst svo hress og kát myndir verða örend áður en sól hnigi til viðar það dimma vetrarkvöld. Enginn, og sist af öllu þú sjálf, myndir hafa látið þér detta svo fáránleg vitleysa i hug. En svo sem margsannað er, ráðum við ósköp, ósköp litlu um gang lifsins og bilið milli li'fs og dauða er örmjótt. Kannski er allt okkar lif fyrirfram ákveðið, lfkt og i púsluspili, og þegar siðasti búturinn er kominná sinn stað er spiliðbúið. Það spil sem þér hefur verið ætlað hefur haft yfir svo alltof, alltof fáum bútum að ráða og nú ertu farin frá okkur og sfð- asti búturinn i spilinu kominn á sinn stað. Eftir sitjum við hin og viljum ekki trúa þvi sem við vitum að er svo óumdeilanlega satt. Ég rifja upp i huganum minn- ingar frá sjö sl. sumrum og nú siðast einnig frá jólum og pásk- um: upprekstrarferðir á vorin, heyvinna á sumrin, smaia- mennska á haustin og svo ótal- margt fleira. Þó alltaf verði gaman að koma heim f Rip verður það þó aldrei eins og áður þar sem nú vantar þig- Ólöf fæddist 8. janúar 1963 og ólst upp á heimili sínu, Rip, Hegranesi, Skagafirði. Hún var næstyngst af 8 bömum hjónanna Sólveigar Júliusdóttur og Þórðar Þórarinssonar. Ólöf var i alla staði vel af Guði gerð, bæði myndarleg og vel gefin. Ekki var hún gefin fyrir langar skólagöng- ur en vildi heldur njóta æskunnar meðan hún varaði, Gáskinn var rikur i Ollu og meðal félaga var hún hrókur alls fagnaðar. Fjölskyldu sinni allri var ólöf mikils virði og veit ég að miklar vonir voru við hana bundnar og hennar sárt saknað af öllum heima á Ríp. ólöf var mikið gefin fyrir skepnur og þó við værum a marg- an hátt ólikar, þá höfðum við báð- ar mjög gaman af hestum og hestamennsku. Oft vorum viö búnar að ræöa um það okkar á milli, að „það yrði nú ekki hægt að tala um gæðinga i Skagafirðin- um fyrr en búið væri að temja hryssurnar okkar og við færum að riða út á þeim saman”. Ekki átti það samt fyrir Ollu að liggja að taka Blesu til kostanna, en vonandi eru þeir þarna hjá henni gömlu klárarnir sem við áttum svo mikinn vinskap við, Kolur, Mósi, Vindur, Blesi og fleiri. Þann 26. nóvember eignaðist Olla stóra og myndarlega dóttur. Strax í sumar ákvað hún að ef barnið yrði stúlka skyldi hún heita Sólveig i höfuðið á Sólveigu móður sinni. Ekki hafði það nú verið inni f áætluninni að eignast barn, en allan meðgöngutimann var Olla svo glæsileg og bar sig svo vel, að aðdáunarvert var með þvi að fylgjast. Einhvern tima áöur en hún varð ófrisk vorum við að ræða málin svona eins og gengur og gerist. Talið beindist eitthvað inn á hálar brautir fóstureyðinganna. Þá veröur Ollu að orði: „Aldrei myndi ég láta eyða fóstri ef ég yrði ófrisk, — þvi það er maður eins og ég”! Orðum þessum gleymi ég ekki og finnst að marg- ir mættu taka þau sér til fyrir- myndar. Við þessa fullyrðingu stóð hún svo sannarlega sjálf og færði með þvi' ómælda hamingju inn á heimili foreldra sinna og systkina auk þess sem hún skyldí eftir yndislegan minnisvarða um sjálfa sig og stutta dvöl sfna i þessum heimi. A jóladag var svo dóttirin skirð oghenni gefið nafnið Ólöf Sólveig. Jæja, Olla min! í dag, þann 8. janúar 1981 hefðir þú orðið 18 ára ef þú hefðir lifaö. En það var komið að leiðarlokum. Við sem sjáum á bak þér yfir móöuna miklu trúum þvi að þú hafir verið kölluð til æðri starfa i heimi sem við ekki þekkjum en fáum þó öll að kynnast. Ég þakka þér fyrir stutta og ánægjulega samfylgd og tel mig hafa veriö heppna að fá að kynn- ast þér. Þetta sama liggur fyrir okkur öllum hinum og hver veit nema þú takir á móti okkur á hvitum gæöingi þegar við komum yfir. Elsku Doddi, Sólveig, Ólöf Sól- veig, afi, amma og systkini, heima á Rip. Megi Guð senda ykkur þann frið er megnar að græða sárin og gefa ykkur styrk sem mest misstuð. Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár og góðar og blessaðar tiðir, gef himneska dögg gegnum harmanna tár, gef himneskan frið fyrir lausnarans sár og eilifan unað um siöir. 8. janúar, 1981 Sigriður Ævarsdóttir. Kveðja frá Gunnlaugi Þórarinssyni frá Rip og fjölskyldu hans. Hér i heimi er öll við æjum. Afram finnum leiö oft tefta. Ódáins þó akur plægjum ei okkar foriög tekst að hefta. Oftsárt til finnum sorgarkifsins fyrir sjónum skugga, um hugans tómiö. Þá dauðans vald á vori Ilfsins veður fram og kyrkir blómiö. Fljótt er skipt, — þú farin héðan. Fortjald dregið fyrir sviðið. ðglögg skiltil átta. — A meðan upp I huga rifja, iiðið. Oft saman okkar lágu leiðir á liprum fák um tún og haga þá vóru allir vegir greiðir voriðbrosti, ei neitttilbaga. Með búsmalanum best viö undum þá brugðum hnakk á léttan fola þeim aldrei gleymi unaðsstundum, þær öllum leiða burtu skoia. Yndisstundir alltaf vóru að ungu llfi er hlúðu hendur, þá nýfætt lamb og folald fóru frisk á sprett um grónar lendur. Það alit hlýt muna um áraaöir og af þér mynd I hjarta geyma. Gefi þérfrið vor góði faðir. Nú gengurðu um Ijóssins dýrðarheima. Hér hinsta er komin kveðjustundin. Kæra frænka, sofðu I friöi. — Frjáls þú gakk í friðarlundinn égfelþigGuðiog englaliði. EH. nUtn\«S'Atn 'T'te«4*ot“a' oV*»' sva'a endUr"'!U .. T - n“6 fT lir i V>»| f 'sinal,t a» pvvgetu V VVD’ ,túngaS’ .^tátva^ Bie'1 löóa'y* Ojúp'' vAo'e iNQ9ut .v\yád'<ni ,star>9' tÖuös ,nð saoöáf ora's"0'61’ WtiseV • ■, . V. QfimseV pótsw'" Sve"" pMsóó''"- °. O'0uS"®Q 7A65? ú6''í37.. i\óuf s'g c, o Sówe'9 _-vSs'öu ■ aqA( ^ ccnon c nCÁóW' ,9 svn" 1 . f.,5.sín>'4 UWB005' Wie\a5' Giunó Gó'"'a' lflÓ'S^T886jm'8«6 DI a°'' 5QÓaf • ií '986 85P'"01Qó9')"' £Vf3fb A, S3SÖ- Suóó'9a' sim' 'o5'""365,8 ,n9»ió,fl 3'3« l«59°r' i'íé" OaJ'1 ,aPé'u' itsso" 6'3Ó° ,da' 1,3"« sinv SKOffa< Pel',ssa'' „na'W" ,óó'"' "ea Tefeo'9'>'D'T«o. ** °afl"V,l G'óo'8'4" tpsóó'"'' 6' Vj\af9,et S'P" 7V2° 0>a'5V'" GtUfó3' sw^'S"0' eúóa'' ilfó' óa'o' Bóóá" da'ó' ^^SSSS^S^gg , 0"0tC<,s»fl'*’ satotoa 66'° ■fOM k"“'Táv&'ó'" ewu"a'uí Pf9«" F'a'e','1 UÓO'óV” ixsas%ss«5 SSSSbSSSsSS '“•'s-HrE,.- .a's"*"3 1691 Su< 3.S'd" 4' 66 BoWnfla' laa'ló'ó' Sóóaf" vjávn' tfVÍK ,r6ur ■ S..' ' epP' ,ssnes sví0' , W'a(9'e' M»WSl"S H 0e"eÍlTóatö" “ s,9otP\°r9 n vAa'°a< Jó" Bta'Oa50" Po(0'Or"W a'B'aó' t.LV^' 35 síroV 3V76 iVvo'V' - sTfíf'2336 Ha'a'4?fl.V"i'-f ' UWB°w*!a'we" pyKVW'? VAeUa ttlXVV SJ"

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.