Tíminn - 11.01.1981, Side 17

Tíminn - 11.01.1981, Side 17
Sunnudagur 11. janúar 1981. 25 sinum myndir af sér með eigin- handaráritun. Sterkari maður var ekki I öllum Vesturbotn- num. Og Kurt, hann var einu sinni sænskur meistari i einni grein lyftinga. Það verður ekki auðhlaupið að þvi fyrir pappirsbúka og borgarapa að færa þá bræður nauðuga úr kofanum þeirra. Þvi er að visu ekki að leyna, að ekki er ávallt friðsamlegt við bústað þeirra. Alls konar íýöur kemur til þess að sjá þá og skoöa hibýli þeirra, sem gæti veriö fyrir sig, en sumir eru meö tilbekkni og glósur og þá slær i svarra, og hafa ekki allir sloppið við ákomur, þvi aö það er eins og annað, að þaö má varla við þetta koma, svo að ekki sjái á. En aðrir átt fótum sinum fjör að launa. Sixten er nú sextiu og átta ára, en Kurt bróðir hans sext- ugur. Kurt annast samskiptin við veröldina, sækir lifeyri þeirra og kaupir það, sem til búsins þarf, og er forstjóri heimilishaldsins. Hann sýöur, sækir vatn og þvær og tekur til. Þegar það er gert. Sixten er afturá móti ekki allur, þar sem hann er séður — hann er ekki aðeins afarmenni aö burðum eins og þeir bræður báöir, heldur listamaöur, sem málar og yrkir ljóð. Myndir hans eru limdar og negldar upp um allar þiljur, og karlarnir hans eru karlar I krapinu og aldeilis ekki úrkynjaðir eins og sparigris- imir, sem velferðarþjóðfélagið klekur út. — Við förum héöan aldrei, segja bræðurnir báðir einum rómi. Þakið á kofanum þeirra er að visu farið aö svigna til muna, hann er orðinn söðulbakaöur, málningin fyrir löngu flögnuð af, reykháfurinn hruninn og fyrir suma gluggana hefir oröið að negla. En h’ann er góöur samt, kofinn þeirra — margfaldlega nógu góður. Þó ekki sjáist lengur, að i honum er reyndar timburgólf, þá er það ekki neinn galli, þvi að þá er mykja undir fæti,og Sixten gengurað jafnaði berfættur eins og hraustum manni sæmir. Vatn hefur aftur á móti aldrei verið leitt i þessi hibýli, það verður aö sækja langt út í skóg, og ekki hefur heldur kostað upp á fráræsi.En það er einstaklega heimilislegt að kasta af sér vatni upp við húshornið, bæði við sólarupprás aö morgni og undir kvöldið og ef menn þurfa að ganga öma sinna, þá er skógurinn — lengi tekur hann viö. — Að lepja vatn úr krana, segir Sixten þmmuröddu — þeim ferst að tala, þessum borgaröpum, sem eru aö drepast úr skit og flúor. Og ætli það sé mikilla bóta, þetta sem það kallar salemi, og allt látið gossa i árnar og vötnin? þaðan segi ég að heilsuleysið komi. Náttúran á rétt á aö fá allt þess slags, þar sem henni kemur bezt. Skógurinn á heimt- ingu á þvi, og grösin þarfnast þess. Þar á það heima og þangaö skal það— staöur fyrir hvern hlut, og hver hlutur á sinum stað. Það er lóöið. Sixten er tvö hundruð og átta- tiu pund, og enn liggur viö að hnappamir hrjóti úr skyrtunni, þegar hann þenur brjóstið. Ef hann léti skó á fætur sér, yrðu þeiraö vera númer 49 og kraga- númer á skyrtum hans er 53. Ummál úlnliða er hálfur tutt- ugasti og fimmti sentímetri. — Hver getur sýnt verklegri fót, segir hann og sperrir nokk- uð blakka hófana tilskiptis upp I loftið. — Það fást hvergi skór, sem Sixtenkemsti.segir Kurt, gam- alvanur að kynna ágætí hans. En þá stærstu, sem ég hef kom- izt yfir, getur hann þó notað, ef hann sker framan af þeim, og lætur tærnar standa út úr. — Og sjáiö á mér lúkurnar, segirSixten, — vitíö þiö um ein- hvern, sem er jafnstórhentur? Leggi ég lófann á kvennmanns- rass, þá má hann vera fyrir- ferðarmikill, ef ég þek hann ekki ailan eins og hann kemur fyrir —- þær em ekki meira vaxnar en það, þessar ungu. En þær höfðu sumar af nokkm að má hér fyrr á árum. Og það var ekki laust við, að þeir mældu þær nokkrar innan klæöa og eins og þær komu fyrir af skepnunni. Markaður i Kivik, hann var alltaf óskastaður þeirra Landby-bræöra, maður guðs og lifandi. — Þaðvareins ogaðkoma inn I miðaldir, segja þeir, morandi af þessu fina kvenfólki. Þeir höfðu hvergi komist i annað eins ger af kvenfólki, annað eins guðs blessaö stóð, og þetta var digurt kvenfólk og þvengmjótt eins og áramaðkur, sem þræðist tæpast á öngul, smátt og stórt, það er nú likast til — kvenfólk af öllum gerðum og skapnaöi, og þó allt eins að þvi leytinu, sem miklu varöar á Kvenfólkið flykktist utan um Sixten (ó, markaðirnir i Kivík, kvenfólk af öilum gerðum og skapnaði) til þess að eignast af honum áritaðar myndir. ósviknum markaöi. Hjú-U, maöur! Nú eru bræöumir hættir ferö- um sinum um þjóövegi Svi- þjóðar, og þar kemur tvennt til, aldur og skattar. Þaö eru um- skipti, en þeir eru ekki neitt vansælir. Aflraunirnar hafa þeir aö mestu leyti lagt fyrir róða, en rækta i þess stað lista- mannseðli sitt. Þaö eru ekki nema tiu ár sið- an Landby-bræöur fóru um landiö þvert og endilangt og sýndu þrekraunir sinar. Þeir komu fram á sviði samkomu- húsa, dróguaö sér skara fólks á mörkuðum og meira að segja á torgum bæja og á vegamótum úti á landi, þar sem fjölfariö var. Sixten hantéraöi tíu tomma naglagaura eins og aðrir leika sér meðeldspýtur, og hann lyfti þungum hlutum með því aö krækja undir þá yzta köggli löngutangar. Kurt var lika naut- sterkur og auk þess var hann auglýsingamaður og samninga- , mabur af guðs náö. Og söng og spilaöi. — Það eru ekki likamsburö- imir einir, sem okkur eru gefnir. Við erum ekki með tóman kollinn, segja þeir. Þeir velta fyrir sér gátum lifsins, Kurt syngur og spilar á gitar — Sixten yrkir og málar. Hvort tveggja er i hressileg- asta lagi, en kynni að hneyksla viðkvæmar sálir, ef flutt væri eöa sýnt i söngleikjahúsum og sýningarsölunum. Jafnvel á þessari miðsæktu upphefðaröid naflans og krikans. Þegar þá gesti ber aögarði, er Sixtan vill eiga orðastað við, setzt hann á heimasmiðaðan Bræöurnirsterku, Kurt Landby, sextiu ára, og sem syngur og spilar á gitar, og Sixten, sextfu og átta ára, sem yrkir og málar krassandi myndir af körlum, sem eru hlaönir meiri orku en nokkru tali tekur. bekk i skógarjaörinum, sið- hærður og með band um enni og sterkan svip af Indiánahöfö- ingja, og les ljóð sin. Röddin er hrjúf og mikil, og þaö eru tilþrif i kvæöum hans, sumt gaman- samt, sumt torskiliö. Stundum eru þau herskárri enKurt finnst viö hæfi, og þá reynir hann að halda aftur af bróöur sinum. Þó að hann dáist að honum, þá fy lgir hann honum ekki út á yztu þröm, og Sixten tekur það ekki neitt illa upp: — Kurt er svo djöfull naskur aö sjá, hvaö passar að segja, segir hann. Úti á hlaðinu er stór pottur á hlóðum. Þar þvær Kurt af þeim bræörum, náttúrlega hóflega oft, þvi að þrálátum þvotti fylgir mikið fataslit. — Það á ekki aö sóa og sukka — nei, þaö er engin skynsemd I þvi að hafa allt I sukki. Enginn hefur horn i siðu þeirra bræöra á bæjunum, sem næstir eru kofa þeirra. En sumir segja sögur af þeim. Það er til dæmis Sixte, sem aldrei hefúr unniö handtak á ævi sinni — hann ætlaöi einu sinni aö hjálpa einum bóndanum. En það fór i handaskol, þvi að verk- færin voru ekki viö hæfi manns, sem var jafnmikils máttar. Skaftiöá heygafflinum brotnaöi og dyraumbúnaöur á_ hlöðunni laskaðist. Kurt var mörg ár skógar- nóggsmaöur öörum þræöi, Þeir, sem með honum voru, segja að hann hafi veriö mikilvirkastur og sterkastur allra þeirra fé- laga, og gott að vinna með hon- um. Þaðerualltaöriren nágrann- arnir, sem þeir bræður eiga i útistöðum við, og fyrirlitning Sixtens á þeim lýö á sér engin takmörk. — Þetta er hyski, sem ekki kannaö gleðjast og ekki þekkir mannlega hlýju, segir hann. Og ætla að egna fyrir okkur með rafmagni og sima og útvarpi og sjónvarpi — skelfing er nú litil hugsun á bak við bað. En þeir eru ókviðnir, þótt óvelkomnir gestir geri sér ferð til þeirra: — Við blásum bara á þetta dót.ogþá fýkur það i allar áttir. Þetta er eins og hænsni i stormi, þegar vindar i rassinn á þeim. Auglýsingaspjald frá þeim dögum, er bræðurnir ferðuðust um Svfþjóð, sýndu aflraunir og buðu hverjum sem verkast vildi að reyna við sig.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.