Tíminn - 11.01.1981, Side 12

Tíminn - 11.01.1981, Side 12
12 Sunnudagur 11. janúar 1981. Sunnudagur 11. janúar 1981. 21 kartöflustofna. Nær allar kartöflur, sem sett- areru niður, eru sýktar aðeinhverjumarki af ýmsum sjúkdómum, sem fylgt hafa kartöflu- ræktinni nokkuð lengi. Þetta eru veirusjúk- dómar af ýmsum stofnum og stöngulsýki. Þetta er seinunnið verk, sem f elst í því að ein- angra ósýktar kartöflur, og rækta þær. Til þess að einangra kartöflurnar hefur verið reist hér sérstakt hús til vetrargeymslu. — Síðan er óli Valur Hansson að rækta ýmsa berjarunna hér úti í garðinum, rifsber, sólber, stöngulber og fleira sem flutt hefur verið inn, um þrjátíu mismunandi afbrigði, sem á að bera saman og sjá hvað best hæfir íslenskum aðstæðum. Þessu skýrði Jónatan Hermannsson frá. Hann er einn af vísindamönnunum, sem koma öðru hverju í Korpu frá RaLa (Rannsóknar- stofnun landbúnaðarins) til að sinna ýmsum rannsóknum. Jónatan aðstoðar meðal ann- ars Þorstein við kornrannsóknir hans. Rabbarbari óskast — Við fáumst einnig við að ræka rabarbara með því markmiði meðal annars að ná stofni. sem ekki er súr. Við hof um auglýst eftir rabar- bara — að f ólk sendi okkur rabarbara, sem er i nágrenni þess úti um landið. Við fáum lík- lega það verkefni að varðveita náttúrulegan genastofn rabarbarans fyrir svonefndan gen- banka á Norðurlöndunum. Þetta er gert til þess, að úrval það, sem náttúran hefur leitt fram, hverf i ekki við það, er menn taka jurtir og rækta þær og kynbæti. Svo getur farið, að þau afbrigði, sem þannig koma fram, verði óhæf, bregðist eða úrkynjist, og þá er gott að hverf a af tur til þess, sem náttúran býður okk- ur. Við höf um ekki fengið mikið af rabarbara, og viljum helst, að fólk sendi okkur meira. Þessu er hér með komið á framfæri. Af ofanskráðu er Ijóst að mikil og margvísleg starfsemi fer fram við tilraunastöðina að Korpu í garðrækt og grasrækt, þótt ekki fari hátt. Líklega vilja dagblaðsritstjórar þessa lands stöðina dauða, en slíku má líkjavið, að horfið verði aftur til öryggisleysis litlu ísaldarinnar. Starf rannsóknastöðvanna, sem þjóna íslenskum landbúnaði, hefur orðið til þess að efla og bæta íslenskan landbúnað og gera hann hagkvæmari. Þar með kvaddi ég mennina í Korpu og hélt aftur til borgarinnar. Þegar ekið er upp í Mosfellssveit úr Reykja- vík, sjá menn undarlegt hús nálægt Korpúlfs- stöðum. Það líkist ofvöxnum sumarbústað, en með hárri og brattri burst, grænmálað. I kring eru stór tún með ýmsum grasvexti. Þetta er ekki neinn rikisbubbasumarbústaður, heldur tilraunastöð fyrir gras- og garðrækt. Staður- inn ber nafnið Korpa, og er útibú frá Rannsóknarstofnun landbúnaðarins. Þegar blaðamaður Tímans leit þar við á dögunum til að forvitnast um stöðina, var þar fyrir Ásgrímur Jónsson, yfirmaðurinn á staðnum, en Þóroddur Sveinsson, sem er hinn starfsmaðurinn, var ekki við. Hann var að smala fé sem haft er í stöðinni til ýmis konar þarfa vísindanna og átti að fara að setja það inn fyrir veturinn. — Ég byrjaði hjá atvinnudeild háskólans ár- ið 1947, segir Ásgrímur. Þá vorum við á Úlfarsá, þar sem nú er útibú frá Klepps- spítala. Ég hafði þá verið í námi í Bandaríkj- unum. Við þessa stofnun, atvinnudeildina, sem síðar varð að rannsóknarstofnun land- búnaðarins, störfuðu þá ýmsir sérfræðingar, Halldór Pálsson í búf járrannsóknum, Ingólfur Davíðsson var að rannsaka jurtasjúkdóma og Áskell Löve í jurtakynbótum. Aðallega var fengizt við grasrækt og búf járrækt, en einnig voru gerðar tilraunir með um 90 tegundir af kartöflum og fengist við að rækta jarðarber og fleira. Þarna var lögð undirstaða að því, sem síðar var gert, og er verið að gera í þessum rannsóknum. Stöðin var flutt að Varmá 1951 og síðan að Korpu 1961. Ásgrímur tók við stjórn tilraunastöðvarinn- ar 1973. Ég spurði hann, hvernig starf ið gengi. — Við höfum góða aðstöðu hér, gróðurhús, þar sem við getum sáð inni, og komið þessu áfram og jafnvel hlaupið yfir ársfíð með lýs- ingu og öðru slíku. Síðan er þessum jurtum plantað út i spildur hér á landinu kringum Ásgrímur Jónsson tilraunastjóri með fjögurra punda rófu af norskum stofni. Tímamynd: ge! stöðina. Þetta eru stofnar af ýmsum grösum, svo sem túnvingli og öðrum túngrösum. Það er leitast við að fylgjast með, hvaða einstakling- ar skara fram úr, vaxa betur og hafa meira fóðurgildi en aðrir. Af þessum einstaklingum er síðan safnað fræi. Ungmennafélagstilraunir og aðrar tilraunir. Ásgrímur sagði, að þetta væri aðeins einn af mörgum þáttum tilraunastarfsins. Meðal annars er unnið að meltanleikarannsóknum með aðstoðsauðf járins, sem haft er í stöðinni. Á veturna er f remur rólegt þar, það eru aðeins þeir tveir Ásgrímur og Þóroddur, en á sumrin er líflegra. Þá eru frá 5-8 manns starfandi, ungt skólafólk. Eitt sumarið var meira að segja stofnað ungmennafélag á staðnum og reynt að blása nýju lífi í ungmennafélagshug- sjónina, sem er f remur dauf núna að minnsta kosti hér á höf uðborgarsvæðinu. Þessi tilraun gafst þó ekki sérlega vel. En aðrar tilraunir, framkvæmdar af meiri nákvæmni og kunnáttu, eru vísar til að bera árangur. Til dæmis er Þorsteinn Tómasson, einn vísindamannanna á RaLa með korn- ræktartilraunir, sem ætlað er að gera korn- rækt mögulega hér á landi. Þessar tilraunir urðu fyrir áfalli kalda sumarið 1979, og í vor spíraði aðeins lítill hluti fræsins frá árinu áð- ur. En fátt er svo með öllu illt o.s.f rv., því lík- legt er, að þau af brigði, sem stóðust hið erf iða sumar, séu einmitt sterkustu afbrigðin og lík- legust til að dafna við íslensk skilyrði. Jónatan fór að búa til meira kaffi, en Ásgrímur sagði mér frá tilraunum, sem Sigurgeir Ólafsson er að gera: Uppskerutíð i görðunum í Korpu. Tímamynd:GE. — Sigurgeir fæst við að rækta ósýkta Strandreyr, heldur vöxtuleg jurt, sem verið er að prófa. Sandfax, ættað af Geitasandi á Rangárvöllum, þar sem það hefur lifað á f jórða tug ára. Heimilisfang Ég óska eftir að fá sendan Kays pöntunarlista i póstkröfu á kr. 49.— . Vferslíð ódýrt KAYS pöntunarlistinn frá Bretlandi, er verslun samankomin í einni bók, sem þú, fjölskylda þín og kunningjar eruð viðskiptavinirnir, sem allt snýst um. Vor og sumarlistinn 1981 er kominn. Síðasti móttökudagur pantana úr vetrarlista er 20. janúar KAYS PÖNTUNARLISTINN KORPA — einn af burðar- ásum framfara í íslenskum landbúnaði Árni Daníel Júlíusson ræðir við Ásgrím Jónsson

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.