Tíminn - 08.02.1981, Qupperneq 11
Suh'midáglir f
-.’vj'Bbiin.iu
februar 1981
reynsla sem fékkst af sleppingu
smáseiða á vatnasvæði Þjórsár
fyrir nokkrum árum, og nefnt
hefur verið Þjórsárævintýrið, er
mikil hvatning til dáða, hvað
snertir sleppingu seiða á ófisk-
genga hluta laxveiðiánna. Þess
er þvi að vænta, að laxagöngur
muni stóraukast á næstu árum.
Hafbeitin hefur verið i þróun
allt frá þvi, að fyrstu laxarnir
skiluðu sér i Kollafjarðar-
stöðina skömmu eftir 1960 og til
þessa. Sýnt hefur verið fram á
með tilraunastarfinu i Kollafirði
að möguleikar okkar á þessu
sviði er geysimiklir. Þá hafa til-
raunir með hafbeitarbúskap
verið framkvæmdar á fjórum
stöðum á landinu fyrir tilstuðlan
Framkvæmdastofnunar rikisins
og með f járstuðningi frá
Norðurlandaráði. Þýðingar-
mikil vitneskja hefur fengist i
sambandi við þessar tilraunir,
sem enn eru i gangi.
Til fróðleiks má geta þess, að i
ritinu „Fiskeldi”, sem Fram-
kvæmdastofnun rikisins hefur
nýlega sent frá sér, er t.d. gerð
úttekt á hagkvæmni fiskeldis-
stöðvar, sem framleiðir 200 þús-
und gönguseiði og fær 3—4%
endurheimtu á laxi úr sjó og
talið að hún standi undir sér.
Vissulega mun verða lögð rik
áhersla á hafbeit, eins og áður,
og ekki kæmi mér á óvart, að
þróun á þessu sviði yrði bylt-
ingarkennd á næstu árum, með
miklar laxgöngur i hafbeitar-
stöðvar,
Segja má, að tilraunir með að
fóðra fisk i eldiskvium i sjó séu
á byrjunarstigi. Menn binda
vonir við það, að það muni tak-
ast að fá þannig fisk i slátur-
hæfa stærð, þar sem öll skilyrði
séu sem hagstæðust er til þarf.
Sýnt hefur verið fram á, að við
eigum enga möguleika til að
stunda slikt sjóeldi sem Norð-
menn gera i stórum stil. Til
þess er sjórinn of kaldur við
mestan hluta landsins.
Menn telja að við höfum góða
möguleika til þess að afsetja
hluta af gönguseiðaframleiðslu
okkar til Noregs, eins og gert
hefur verið. Vissulega getur
brugðið til beggja vona i þvi
efni, t.d. ef Norðmenn verða
sjálfum sér nógir um gönguseiði
sem þeir reyna vafalaust að
keppa að. Einnig geta önnur at-
riði komið til sögunnar, sem
gera okkur erfitt fyrir i þessum
efnum. Það er vissulega ósk-
andi að þessi hagstæði mark-
aður i Noregi fyrir gönguseiði
megi haldast.
Það eru óneitanlega blikur á
lofti i sambandi við veiðar á laxi
i úthafinu, ekki sist ef veiðar
þessar aukast og veiðisvæðin
yrðu viðáttumeiri en nú er.
Unnið er að þvi að koma i veg
fyrir þessar veiðar með sam-
tökum þeirra þjóða, sem hags-
muna hafa að gæta i þessu efni.
A sinum tima tókst að draga
stórlega úr laxveiðum við
Grænland, og við skulum vona,
að hið sama gerist gagnvart
veiðum á öðrum svæðum At-
lantshafsins.
Einar Hannesson
11
Aöeins
25%
útborgun
Tilboð
Aöeins
25%
útborgun
í febrúarmánuöi bjóöum viö hagstæö greiöslukjör á Electrolux eldavélum. Útborgun
aöeins 'A og eftirstöövar lánaöar í 5 til 8 mánuöi.
5
o
Electrolux eldavélarnar eru
meðal þeirra þekktustu í heimi.
Fyrst og fremst vegna gæða- og
svo auðvitað vegna tækni-
nýjunga. Electrolux hefur oftast
verið á undan samtíðinni í eld-
hústækni.
Þegar þú velur Electrolux eldavél
geturðu valið eldavélagerð, sem
hentar plássi og pyngju. Úrvalið
og möguleikarnir eru margvís-
iegir.
Electrolux
Kynningarbæklingur ókeypis.
Það er óráðlegt, að kaup eldavél
án þess að kynna sér vandlega
hvaða möguleikar standa til
boða.
Vörumarkaðurinn sendir þér í
pósti ókeypis, litprentaðan
mynda- og upplýsingabækling.
Sendu okkur nafn þitt og
heimilisfang, eða hringdu í
Electrolux deildina, sími: 86117
og við sendum þér bækling um
hæl.
ARMULA 1a
LANDSSMIÐJAN Reykjaxík
þurrkun
Eins og undanfarin ár
smiðar Landssmiðjan hina
frábæru H-12 og H-22
súgþurrkunarblásara
Bldsararnir hafa hlotið einróma
lof bænda fyrir afköst og endingu
Sendið oss pantanir yðar sem fyrst
SÚG-
Skrifstofustarf
Viljum ráða hið fyrsta skrifstofumann til
bókhalds- og endurskoðunarstarfa á aðal-
skrifstofunni i Reykjavik.
Starfsreynsla æskileg. Laun samkvæmt
launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknum með upplýsingum um mennt-
un, aldur og fyrri störf óskast skilað fyrir
14. febrúar n.k.
Vegagerð ríkisins,
Borgartúni 7,
105 Reykjavik.
Hreppsnefnd
Egilsstaðahrepps
auglýsir eftir mönnum, sem hugsanlega
hefðu áhuga á að mynda samtök til þess
að standa að byggingu Iðngarða á
Egilsstöðum.
Upplýsingar veita sveitarstjóri
og oddviti Egilsstaðahrepps.
mmmmmmatm c—
Kt Í V.1 -.
* i-. f t v
.4