Tíminn - 08.02.1981, Qupperneq 13
Suiimidagur ,8. febrúar 1981
r-13
og nú, en mafian á Sikiley
reyndist bæði fljöt að átta sig og
fengsæl, svipað og þeir, sem
fara nú að dæmi hennar á Suð-
ur-ítaliu. Þannig endurtekur
sagan sig.
En hvaö um það, sem á eftir
kemur — eða á að koma. Hvers
má vænta af þvi viðreisnar-
starfi, sem fólki i Mezzogi-
orno-héraði hefur verið hátið-
lega lofað?
Það er kannski vert að hyggja
að þvi, er orðið hefur á Sikiley,
ef sagan kynni lika að endur-
taka sig i þvi efni. Og megin-
þættir þeirrar sögu fléttast af
seinlæti og tómlæti skrifstofu-
valdsins i stjórnkerfinu, röng-
um ákvörðunum, fjárdrætti og
spillingu. Enn þann dag i dag
eru rústirnar i Gibellina, einu
þeirra nitján þorpa, sem jöfnuð-
ust við jörðu, eins og við þær var
skilið, þegar fólks hafði verið
leitað i þeim, nema hvað árin og
timinn hafa unnið sitt verk. Þær
eru nú hálfgrónar, og hingað og
þangað standa olifutré, kýprus-
viðir og kaktusar upp úr þessu
minnismerki slóðaskaparins.
Enn þann dag i dag býr helm-
ingur þeirra fimm þúsund, sem
eitt sinn byggðu þorpið i léleg-
ustu gerð bragga, sem hrúgað
var upp i skyndi til bráðabirgða.
Sömu sögu er að segja um hin
þorpin átján. Fjörutiu þúsund
manna, gamalmenni og börn og
allt þar á milli, hirast i ömur-
legustu bráöabirgðaskýlum, og
þar er eins og að vera i ofni á
sumrin, en frystiklefa að vetrin-
um.
Þegar landskjálftinn reið yfir
Beliza-dalinn var Giuseppe
Saragat, heimsírægur stjórn-
málamaðurm forseti Italiu.
Harmi lostinn hraðaði herra-
maðurinn sér til Sikileyjar, hélt
ræður uppi á múrsteinahrúgum
og grét opinberlega af vorkunn-
læti og samúð með vesalings
fólkinu, sem lent hafði i þessum
raunum. Tylft ráðherra, tylftir
embættismanna fóru að dæmi
forsetans — tárvotir af hryggð
lýstu þeir þvi, hversu atburð-
irnir á Sikiley hefðu gengið
þeim til hjarta, og þegar þeir
höfðu þerrað augum með silki-
klútunum sinum, létu þeir ekki
sitt eftir liggja að hugga alþjóð
með þvi, sem gert yrði fyrir
þetta fólk, sem uppi stóð i mikl-
um þrengingum.
Samúðinni gekk þó seint að
ummyndast i áþreifanlega
hjálp. Aðvisu voru fljótlega út-
veguð tjöld,og seinna var hrófl-
aðbröggum —þessum,sem enn
er búið i. Annars lét stjórnin
bjóða fólki farseðla aðra leið til
iðnaðarborga á Norður-ítaliu,
og grunaði flesta, að þar myndi
hjálp og fyrirgreiðslu lokið, ef
við þeim væri tekið.
Innan framkvæmdamála-
ráðuneytisins i Róm var þó
mynduð sérstök landskjálfta-
deild, sem átti að sjá um endur-
reisn landskjálftasvæðisins á
Sikiley. Og fé var lagt fram,
mikil ósköp. Nú að þrettán ár-
um liðnum hefur jafnvirði sex
milljarða nýkróna runnið i
framkvæmdasjóðinn i tið niu
framkvæmdamálaráðherra —
og vonir þess fólks, sem beðið
hefur allan þennan tima fyrir
löngu kulnaðar.
Satt er það, að sex ný þorp
hafa verið reist, en alls staðar
vantar eitthvað á. Sums staðar
hefur lent i útideyfu að byggja
skóla, annars staðar hefur það
gleymst, er við varð að hafa til
þess, að fólk fengi nokkurn veg-
inn hreint vatn, og slökkvibún-
aður hefur yfirleitt setið á hak-
anum, svo að nokkuð sé nefnt.
Hvað er að? Bæjarstjórarnir i
Beliza-dalnum fórna höndum,
þegar þeir eru spurðir: „Engin
afsökun til! Þeir hafa allt —
peninga, efnivið, tæknimenn.
Það er bara eins og allt fari i
handaskolum hjá. þeim’'.
Það vilja margir vera kokkar,
þar sem peningar eru annars
vegar. Framkvæmdir voru
faldar fyrirtækjum i Róm og á
Auglýsið í
Timanum
Norður-ttaliu, þar sem menn
hafa harla óljósar hugmyndir
um lif og þarfir i dölum á Sikil-
ey.
Þessum mönnum datt til
dæmis i hug að hrúga fólkinu i
Beliza-dalnum saman i fjöl-
menna bæi, þar sem við mátti
koma að byggja stórt. Hug-
myndir komu einnig upp um
málmbræðslu, sementsverk-
smiðju og leirkerjasmiöju, þvi
að matur hefði verið fyrir verk-
takafyrirtæki að fást við þess
konar framkvæmdir.
Þessar hugmyndir voru send-
ar ráðuneyta á milli og deild úr
deild innan ráðuneyta, til ráð-
gjafarfyrirtækja og alls slags
sérfræðinga. Og timinn leið, og
flestir urðu að hafa nokkuð fyrir
sinn snúð.
Aftur á móti tók það bæjar-
stjórann i Gibellina þrjú ár að fá
náðarsamlegast leyfi til þess að
hefjast handa um byggingu nýs
þorps i grennd við ræktunar-
land bændanna, sem þar höfðu
átt heima. Þá var verðbólgan
farin að höggva skörð i það fé,
sem upphaflega hafði verið lagt
fram, og kostnaðaráætlanir
stóðust ekki lengur, svo að hvað
eftir annað rak allt i strand.
Verra var þó annað. Alls stað-
ar voru maðkar i mysunni, og
með timanum urðu þeir fleiri og
fleiri, sem vildu mata krókinn.
Sumt af fénu var lika lagt i allt
annað en það var ætlað til, ef
nógu áhrifamiklir menn reru
þar undir. Dæmi um það er
steinsteyptur vegur.sem gerður
var fyrir landskjálftapeningana
milli bæjanna Trapani og Maz-
ara. Hann er utan landskjálfta-
svæðis og þvi óviðkomandi, og
um hann er nálega engin um-
ferð.
En voldugir menn, sem vildu
fá þennan veg komu ár sinni
vel fyrir borð hjá Kristilega
demókrataflokknum og stjórn-
inni i Róm, og fólkið i
Beliza-dalnum, sem missti hús
sin og býr enn i ömurlegum
bráðabirgðaskálum, getur horft
niður á þennan veg, ef að
gengur fram á fjallsaxlirnar.
Flestir, sem um sárt eiga að
binda vegna jarðskjálftanna á
Sikiley fyrir þrettán árum, hafa
lagt árar i bát, og það eru bara
mestu þverhausarnir, sem enn
eruaðargast i háyfirvöldunum i
Róm, og vita þó, að það muni
engan ávöxt bera, nú fremur en
áður.
Einn slikra manna kom skila-
boðum til fólksins i Mezzo-
giorno-héraði, er missti sitt i
landskjalftunum i haust. Og tal-
aði af reynslu:
„Rekið burtu þessa andskot-
ans útsendara stjórnarinnar,
sem eru að sniglast hjá ykkur —
allan þennan skýrslugerðarlýð,
sem lofar öllu fögru, en mun
aldrei efna neitt. Axlið sjálf
ábyrgðina og reyniö aö reisa
það úr rústum, sem þið megnið,
þvi annars verður allt látið
dankast. Annars standið þið i
sömu sporum um næstu alda-
mót og við hér i Beliza stöndum
nú”.
Það er við búiö, að þeir, sem
svo tala hafi lög aö mæla.
LAUFAS
SÍM! 82744
Húsafell — Sumarbústaöir
Höfum fengið til sölumeðferóar nokkur hús Kristleifs Þorsteinssonar
í Húsafellsskógi. Húsin eru af ýmsum stærðum og fylgir þeim
byggingarréttur á allt að 45 ferm. heildarstærö húss á hverri lóö.
Húsunum fylgir allur búnaöur sem í þeim er, s.s. húsgögn,
rúmstæði, eldunartæki, búsáhöld o.s.frv.
Húsin eru öll tengd með rafmagni og rafmagn er til eldunar og
Ijósa. Hverju húsi fylgir leigusamningur um lóðarréttindi til 20 ára.
Grunnverö húsanna er frá 63 þús. upp í 175 þús.
Húsin og sú aðstaða sem boöiö er uppá er tilvalin fyrir
félagasamtök og starfshópa.
Við höfum einnig fengið til leigumeöferöar land í næsta nágrenni
þjónustumiöstöövarinnar í Húsafellsskógi ætlað undir bústaði, en
leyft verður aö hafa hjólhýsi á þessum lóöum til að byrja með.
Þetta er mjög gott tækifæri fyrir einstaklinga.
Þessi þjónusta er nú þegar fyrir hendi á staönum: Sundlaug,
Ijósaböð, sauna, verzlun, benzínsala, flugvöllur, hestaleiga, veiði-
leyfi á Arnarvatnsheiði, merktar gönguleiðir, varöeldasvæði, eftirlit
með sumarbústöðunum o.fl. o.fl.
Á framkvæmdaáætlun er: Heilsuhæli, ráöstefnuaðstaða, mótel,
bætt íþróttaaðstaöa, golfvöllur, skíðalyfta o.fl. o.fl.
Þar sem fjölmargar pantanir liggja fyrir um dvöl í húsunum næsta
sumar er áskilinn réttur til að afgreiða þær pantanir ef sala hefur
ekki farið fram fyrir febrúarlok og þá yrði afhending húsanna til
kaupanda ekki fyrr en í sept. n.k.
Uppdrættir og nánari uppl. á skritstofunm.
Guðmundur Reykialín. viðsk fr
NýW-
900.000
450-000
480.000
A 980 000
5265000
98 368.00°
f2452.000
lH
^*£*****
ar aS tnn«ur i
ö ^TTl ^ > ^n’ng“ s,nnings-
.ngsvo.***££**-
JJ
argus