Tíminn - 08.02.1981, Blaðsíða 18
★ ★ ★ ★
■1,1 I 4':\ 1, J-O, .
\i M>< *• >■■*' i
26 ^ÍSWC||Í5J Sunnudagur 8. febrúar 1981
Roger Moore I hlutverki sinu i myndinni „North-Sea Hijack” sem
Laugarásbió hefur nú tekið til sýningar.
John Gielgud og Krystyna Janda i mynd Wajda The Conductor.
MANHATTAN
Tónabíó:
MANHATTAN
Leikstjóri: Woody Allen
Aðalhlutverk: Woody Allen, Di-
ane Keaton, Michael Murphy og
Mariei Ilemingsey.
Myndin Manhattan er
umfram annað óður til New
York borgar eða þess hluta New
York þar sem hinir vel stæðu og
menntamennirnir búa. Þetta er
undirstrikað með frábærri
myndatöku Gordon Willis (i
svart/hvitu) og tónlist Gers-
wins.
Myndin er einnig þróun á hin-
um persónulega stil Allens sem
fyrstleitdagsins ljós i myndinni
Annie Hall, en með henni snéri
hann baki við hinum farsa-
kennda og „hálfklikkaða”
húmor sem er alls ráðandi i
myndum hans áður. (Bananas,
The Sleeper, o.fl.)
Eftir Annie Hall virðist svo
sem Allen hafi verið tekinn inn
sem fullgildur meðlimur i
menntamannakliku New York
borgar og sá grunur læðist að
manni að hann sé öðru fremur
að gera grin að henni þótt það
sé gert á mjög lævisan hátt.
Hægt er að sjá Manhattan
sem framhald á sjálfsævisögu
Allens, frá Annie Hall, og hér,
eins og þar, er mestum hluta
myndarinnar eytt i að greina
frá samskiptum hans við hitt
kynið. Nú er Allen orðinn þrosk-
aðri og hefur vaxið úr grasi á
þessu sviði en vandamálin eru
eftir sem áður margvisleg.
Hann á i ástarsambandi við 17
ára stúlku (Hemingway) eftir
að seinni kona hans hefur yfir-
gefið hann til að búa með
annarri konu, en hittir siðan
viðhald vinar sins og tekur
saman við hana.
Viðhaldið er leikið af Diane
Keaton en hún er hér i hlutverki
sem hún kann greinilega vel við,
þ.e. menntakonu með mikið af
gáfum, en engan heila á bak
við þær. Raunar tala allir i
myndinni eins og orðabók yfir
nútimalistir, og hafa gaman af
að slá um sig yfirborðskenndri
þekkingu sinni.
En vandamálin sem þetta fólk
býr sér sjálft hrannast upp, það
er stokkið úr og i ástarsamband,
til og frá eiginkonum o.s.frv. en
endirinn gefur i skyn að ef til vill
muni yngri kynslóðin læra af
mistökum hinnar eldri.
Það besta við þessa mynd er
handritið, skrifað af Allen og
Marshall Brickman. Það er
mjög fágaðog hrein unun er að
hlusta á sum samtölin i mynd-
inni. Myndin er nokkuð fullkom-
in á sinn hátt, en spurningin er
„Hvað næst Woody Allen?”, þvi
hann virðist stefna i blindgötu i
þessari mynd.
Friðrik Indriðason.
Kvikmyndahornið
■W T • r • ar «T TT T • X
Dagskrá:
F j alakattarins
Eins og áöur hefur veriö getiö
um I Timanum þá er nú hafin
sala kynningarskirteina f
Fjalakettinum á fjórar
myndir, en þær eru Spegiil (A.
Tarkovsky). Alphaborg (Go-
dard), Lolita (Kubrik) og
Græna herbergiö (Truffaut).
Nú er eftir að sýna 16 myndir
á þessum vetri I Fjalakettinum
en margar þeirra eru hreinustu
perlur eins og t.d. Mr. Klein
(Joseph Losey), Vise Blood
(John Huston) og Hiroshima
Mon Amour (Alain Renais).
Þetta eru myndir sem enginn
sannur kvikmyndaaödáandi má
láta framhjá sér fara.
Aðrar myndir sem eftir er að
sýna eru:
„Kvöldstund hjá hennar há-
tign” (PLEASURE AT HER
MAJESTY’S) ieikstjóri
ROGER GRAET England 1976.
„BEGGING THE RING”
leikstjóri COLIN GREGG, Eng-
land 1978.
„Húsvörðurinn’ (THE CARE-
TAKER) leikstjóri CLIVE
DONNER, handrit HAROLD
PINTER, Bretland 1963. (’TIS
Alan Delon I Mr. Klein.
PITY SHE’S A WHORE) leik-
stjóri GIUSEPPE PATRONI
GRIFFI, Italia 1971
„Að komast til manns” (THE
GETTING OF WISDOM) leik-
stjóri BRUCE BERESFORD
(gerði myndina Don’s party,
sem sýnd var í Háskólabiói fyrir
stuttu) Astralia 1977.
„Eitthvað annað” (0 NECEM
JIMEN) leikstjóri VERA
CHYTILOVA, Tékkoslovakia
1963.
„ALEXANDER NEFSKY”
leikstjóri SERGEI EISEN-
STEIN og I. VASSILIEV, Rúss-
land.
Auk þess verða sýndar sjö
EXPERIMENTAL myndir,
eftir hina ýmsu leikstjóra á
einni sýningu.
Aukasýningar verða á 4—5
myndum, og verður hver mynd
sýnd tvisvar á miðvikudögum
kl. 21.00 og á sunnudögum kl.
16.00 og verða þær auglýstar
sérstaklega i Tjarnarbió og i
dagblöðum þegar að þeim
kemur.
Fastir sýningartfmar Fjala-
kattarins eru á fimmtudögum
kl. 20.00., á laugardögum kl.
13.00, á sunnudögum kl. 19.00 og
22.00
SÝNINGAR FARA FRAM 1
TIA DVT ADDfA
Myndir á
Kvikmynda-
hátíð 1981
i gær, laugardag,
hófst þriðja kvik-
myndahátið hér með
sýningu myndarinnar
Perceval of Wales,
leikstýrt af Eric
Röhmer. Eins og áður
hefur verið getið i
Timanum er margt at-
hyglisverða mynda á
hátiðinni og þ.á.m.
myndir frá löndum
sem við ættum ekki
kost á að sjá ef hátiðar-
innar nyti ekki við.
í þessu sambandi má
nefna myndir frá Hong
Kong, Egyptalandi og
Senegal, en þetta eru
myndirnar Raining in
the Mountain,
Alexandria, Hvers
Vegna? og Xala.
Eins og i fyrra þá verður ekki
heildardagsskrá gefin út heldur
einungis tvo daga fram i timann
þar sem enn hafa ekki borist
ailar myndir á hátiöina.
Ekki er útlit fyrir aö gestir
komi á hátíðina erlendis frá ef
undan er skilinn Raymond
Rohamer sem kemur með
myndir Busters Keaton og
heldur fyrirlestur viö upphaf
sýninga á Keaton myndunum
sem verður eftir hádegi i dag.
Þessi hátið er öður fremur
tiieinkuð Buster Keaton þvi
sýndar verða 17 myndir eftir
hann,þar af 8 langar.
Hér á eftir fer listi yfir myndir
á Kvikmyndahátiö.
Frakkiand
Frakkland
Frakkland
Frakkland
A. Þýskaland
Pólland
Pólland
Ungverjaland
Sviss
Sviss
liong Kong
Danmörk
Senegal
Egyptaland
Holland
Sovétrikin
Kanada
V. Þýskaland
Bandarikin
Japan
Bandarikin
Bandarikin
Bandarikin
Bandarikin
Bandarikin
Bandarikin
Bandarikin
Bandarikin
Bandarikin
Bandarikin
Bandarikin
Bandarikin
Bandarikin
Bandarikin
Bandarikin
Bandarikin
Bandarikin
Une Semaine De Vacances B.
Tavernier
Des Enfants Gates B. Tavernier
Perceval Le Gallois E.Rohmer
Les Enfants Du Placard B.
Jacquot
Solo Sunny
Dyrygent
Const-ns
Bizalom
Jonas
Grauzone
Regn á fjallinu
Johnnv Larsen
Xala
Alexandria
Chacha
K. Wolf
A. Wajda
K. Zanussi
I. Szabó
A.Tanner
F. Murer
K.Hu
M. Arnfred
O. Sembene
Hvers Vcgna? Y.
N. Hagen
Haustmaraþon G.Danelia
Mourir A Tue-Tete A-C. Poiricr
im Herzen Des Hurrican H.
Bohm
The Birds
Chikamatsu
Monogatari
Our Hospitaiity
The High Sign
Sherlock Junior
Neighbors
Cops
The Navigator
The Goat
Seven Chances
Paleface
Go West
The Playhouse
Battling Butler
The Boat
TheGeneral
The Blacksmith
Steamboat Bil’.
JR
Oné week
A. Hitchcock
Mizoguchi
Buster Keaton
Buster Keaton
Buster Keaton
Bustcr Keaton
Buster Keaton
Buster Keaton
Buster Keaton
Buster Keaton
Buster Keaton
Buster Keaton
Buster Keaton
Buster Keaton
Buster Keaton
Buster Keaton
Buster Keaton
Buster Keaton
Buster Keaton.