Tíminn - 01.03.1981, Page 2

Tíminn - 01.03.1981, Page 2
2 Sunnudagur i. mars 1981 99 Fáeinarlaglegarvisurárýmsumáttum: Þar sem stóðhross standa í höm í stórhríðum og svellalögum 99 Eins og fólk rekur tvimælalaust minni til átti Ingimundur Einars- son á Selfossi I nokkru vfsna- þjarki viö Þingeyinga út af eld- fjölium i kring um áramótin. Slö- an friður var saminn i þvi striöi hefur veriö hljótt á bökkum ölfusár og engu likara en menn heföu ofgert sér, likt og iöulega hendir i styrjöldum, jafnvel þótt stórveldi eigi i hlut. Nú kemur upp úr kafinu, aö Sunnlendingar eru ekki dauöir úr öllum æöum. Þeir hafa bara gefiö sér góöan tima til þess aö hugsa sitt ráö, áöur en þeir leggja til nýrrar atlögu viö Norölendinga. Og hvert skyldu þeir svo beina geiri sinum i þetta skiptiö? — Jú, aö Húnvetningum. Og veröur ekki sagt, aö þar sé á garöinn ráöizt, er hann er lægstur. 1 bréfi frá Ingimundi er fyrst vikiö aö þeirri frægö, sem Hún- vetningum hefur hlotnazt af stóö- merum, einkanlega þeim, sem hvorki hafa i hús komiö né veriö bandaöar. Mesta ótemjan þeirra, segir Ingimundur, er þó Blanda, og dylgjar um, aö Húnvetningar séu ekki á einu máli um hana frekar en sumar stóömera sinna. Sjálfur lætur hann ekkert uppi um, hvort honum finnst bezt fara á þvi, aö Guölaugsstaöakyniö hafi einnig lögsögu yfir þessari ótemju, eöa hvort hann getur unnaö Akurliljunni rauöu aö smokra á hana beizli. En visur sendir Ingimundur, og þær eru svona: Sú er bóndans brotalöm bæöi fyrr og nú á dögum, þar sem stóöhross standa i höm i stórhriöum og svellalögum. Oft má heyra hávært raus, héruö full af ráöum slyngum. Enn er Blanda beizlislaus og býsna svalt i Húnaþingum. Nú er forsetinn, Vigdis Finn- bogadóttir, á hvers manns vörum á ný vegna Danmerkurferöarinn- ar. Breiöfirzkur bóndi (sem gerir sér ofurlitiö dælt viö forsetann) kvaö þetta: Viggu sýnir sanna lotning, sóma, kurt og vinarhug Margrét önnur Danadrottning, dyggöum prýdd og hágöfug. Frá Tónlistarskóla Húsavíkur Skólastjóra og kennara vantar að skólan- um frá 1. sept. n.k. Umsóknarfrestur er til 6. april. Upplýsingar eru gefnar i sima 41440 hjá skólanefndarformanni og i sima 41697 hjá skólastjóra. Simi skólans er 41560. Skólanefnd. Hveragerðishreppur Eftirtalin störf eru laus til umsóknar: 1. Tæknifræðingur, sem jafnframt er byggingarfulltrúi. 2. Verkstjóri. 3. Áhalda og birgðavörður. 4. Innheimtumaður. 5. Féhirðir. 6. Bókari. 7. Almennt skrifstofustarf. 8. Fóstra. Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 10. mars. Nánari uppiýsingar á skrifstofu Hvera- gerðishrepps simi 4150. Tilkynning frá Tryggingarstofnun ríkisins varðandi fæðingarorlof Konur, sem alið hafa börn eftir 1. okt. 1980 og ekki hafa fengið greiðslur i fæðingaror- lofi, kynmð yður reglur um fæðingarorlof hjá Tryggingastofnun rikisins eða bæjar- fógetum og sýslumönnum. Tryggingastofnun rikisins. Kona, sem sýnilega hefur veriö henni fylgjandi, Lóa Þorkelsdótt- ir, sendi þættinum þessa visu, sem hún gerði þegar kosninga- hriöin stóö sem hæst: Engin litmynd á sér stað, ekkert skrum i blööum. Samt mun Vigdis hleypa i hlaö heim aö Bessastööum. Seinna jók Lóa hér viö, og var tilefnið þrálátar vangaveltur fólks yfir þvi, hvort Vigdis þarfnaöist ekki manns til þess aö styðjast viö. Einhvern tima svar- aði Vigdis spurningu af þessu tagi á þá leiö, að maður, sem ætti þjóöhöföingja aö konu, væri ekki öfundsveröur, þvi aö hann yrði alia jafna aö standa bak viö hana. En visur Lóu eru þessar: Vigdis heillar mey og mann, mörgum kostum búin. Þvi er von, að hann og hann sé hjartans friöi rúinn. Já, ef hún vildi eignast mann, það ætti aö gerast núna. Svo að vesalings, vesalings hann venjist bak viö frúna. Þá er aö taka upp annan þráö. Ingólfur Daviösson hefur sent okkur bréf, þar sem segir af mæt- um presti, er sat aö spilum, en var oröinn helzt til seinn fyrir, þvi aðhansbeiö aö gefa saman þrenn hjón. En svostóðá, aöbágt var aö hlaupa snögglega frá spilunum: Hann var að vinna hörkugrand, hann var aö kynna gaman, hann var aö spinna hjónaband, hann var aö tvinna saman. Nú lyktaði spilinu nógu snemma til þess, aö prestur næöi bil, sem gekk til kirkjunnar. A leiðinni þangaö var sitthvaö spjallaö um mannlifsduttlunga og hjónabönd. Þá kvað Ingólfur: Ræður kannski óþekkt X, einhver þokki nefndur sex, úrslitum, hvort ástin vex eöa leiöi, kvöl og pex? Nú er ekki nema skammt liöiö á góu. Eigi aö siöur er stutt til vor- jafndægra, svo aö yfir skamm- degið erum viö að minnsta kosti komin. Þess vegna má skjóta hér að visu eftir Magnús Jónsson i Grenivik, er svo orti, er hann horföi til vorsins: Lengist dagur, lyftist sól, lifnar fagur gróöur, blómgast hagur, hlotnast skjól, hljómar lag og óöur. Mjög likur er boðskapurinn i visu Hjartar Gislasonar á Akur- eyri, er kveöin hefur veriö þegar sá fram úr: Eftir vetrarveðrin hörö vakna blóm úr dvala. Máriuerlur messugjörö mér i eyra hjala. Og það er einmitt þessi náðartiö náttúrunnar, sem minnisstæöust verður. Svo orti Höskuldur Einarsson frá Vatnshorni: Sporin gleymast, munir mást, manna eymist gengi, vorin heima, æskuást, ýmsa dreymir lengi. En þá er lika skammt i, aö svo sékveöið eins og Jón Þorvaldsson á Geirastöðum geröi: Ellin skorðar lif og liö, leggst að borði röstin. Ég er oröinn aftan viö ungra sporðaköstin. En hvaö um það — allt gengur sinn gang svo sem áskapaö er, og þess vegna orti Ólina Jónasdóttir á Sauöárkróki: Epli á kvistum anga senn, Edens vist ei dvinar, fróöleiksþyrstar eru enn eðlissystur minar. Þar látum við staöar numiö og hnýtum aöeins við þeirri frómu ósk, aö „eðlissystrum” Ólinu veröi vel ágengt i fróöleiks- leit sinni. — JH. Oddný Guömundsdóttir: Orðaleppar (þýðingamálfar) Norrænu þjóðirnar kalla það að „yfirsetja", sem við köllum að þýða. Það orð er öðruvísi hugsað. Erlendar fréttir virðast oft „yfir- settar" orðrétt. Alkunnugt dæmi er fréttin, sem hefst eitthvað á þessa leið:: Hinn tuttugu og f imm ára gamli N.N.---. Þessi danski siður, að hef ja frásögn á aldri manns, þó að aldurinn sé aukaatriði, er hlálegur á islenzku. Brétritarar blaðanna kallast gjarn- an, samkvæmt danskri málvenju: Ein forvitin eða Einn í vanda. Tíminn tal- ar um „einn forliðinn dag." Blaða- menn og útvarpsmenn segja oft „að- skil janlegir", í stað nokkrir eða ýmsir. Einn þeirra talaði um „aðskiljanlegar stúlkur". Þær hafa þá ekki verið ólæknandi Síamstvíburar. Ingólfur Margeirsson talaði um „aðskiljanlega listhópa og hefðbundnar spælingar" (Þjóðv.) . Ég veit ekki, hvað hefð- bundin spæling er. Unglingabækur hafa oft goldið þýð- enda sinna. Oftast er auðvelt að sjá, úr hvaða máli sagan er þýdd. Hvernig er þessi setning á ensku: „Hvað er í Bennetthuganum í dag?" (Or sögunni Rósa Bennett). Á íslenzku væri hægt að segja: Um hvað ertu að hugsa núna, Rósa mín?. Og hver skilur þetta: „Hann sagði sjálfur, að hann hafi verið talinn eyðimörk"? „Hann hvarf inn í líf konu sinnar", segir í þýddri ævisögu, og er líklega átt við kvonríki. önnur ævisaga segir: „Það voru tveir menn í lífi hennar". (Mikið, ef þessar blessaðar manneskj- ur hafa ekki fengið lífhimnubólgu). „Andlit hans var mér þúsund sinn- um minna óþekkt, en andlit B." Hing- aðtil hefur verið sagt kunnuglegur, en ekki „lítið óþekktur". „Þeirtóku yfir landið" (slógu eign sinni á) segir í sjónvarpskvikmynd. Hvað merkir þessi setning (úr Vísi): „Fólk er að búsa heima hjá sér"? (Er það, ef til vill.sama og busy?) Þegar sagt er á íslenzku í dag, merkir það ekki annað en það, sem orðin benda til. i dag hefur, að réttu lagi, ekki merkinguna nú á timum, eða um þessar mundir. Enskan, to day, villir hér um fyrir mönnum. En svona er talið í útvarpi og öllum blöð- um. Sú erlenda málvenja að nefna jafn- an lönd, þegar ætti að nefna þjóð, krefst stundum mikillar trúgirni. „öll lönd AAiðjarðarhafsins koma saman í Barcelóna," sagði Þjóðviljinn einu sinni. Þau hljóta að hafa náð langt út fyrir borgina, jafnvel þó að þeim hafi verið hlaðið hverju ofan á annað. Sagt var í útvarpsumræðum, að ákveðin húsagerð „gangi þvert á okk- ar veðráttu". Þar er átt við, að hún hæfi ekki veðráttunni. Oddný Guðmundsdóttir.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.