Tíminn - 01.03.1981, Qupperneq 10
10
Sunnudagur 1. mars 1981
SSSSÍSÍÍSSSSSÍÍÍ:
SíSS-SSSSSSSSS:
• •íS-SÍ'KS.SS:'SSSSis
mmmmmmmmmmmmm
•ÍXvX'XvXvÍ
xWvXyXvX
.
SsSwwwwðWSw
xwnmm
■' o :<:4
sssss
v.vX
.
XvX;
sssss
M
fl7*M
/7«
'
im
.
::::::::::
m
m
m
■v.v.
SgSSSSjgSSSSSSS
■SSSSSS:
«ssSsSSSSSSSSS:
vXvX;:;
: '
WSSSSSS:
•:•:<•:•:
.v.v.
x*:*x*x,:,x
* i j
Mörg börn sem lifaö hafa af hina hræöilegustu atburöi f El Salvador, svo sem árásir þjóövaröliöa Presturinn Higinio Alas er sjálfur flóttamaöur. Hann er formaöur mannréttinda-
hægrimanna og f jöldamorö, eru illa haldin andlega. nefndar, og einn þeirra, sem hjálpar fólki frá E1 Salvador, er þaö kemur til Costa
Rica.
Flótti undan morðum,
brennum og pyndingum
Árið 1979 söfnuðust sextíu
þúsund flóttamenn frá Nicara-
gua saman í Costa Rica og biðu
þar þess/ að einræðisherranum
Somoza væri steypt af stalli. Á
siðasta ári tók flóttafólk frá El
Salvador að streyma til þessa
litla lands/ sem iðulega hefur
orðið athvarf þeirra/ sem ekki
var vært í nágrannalöndum
þess. Costa Rica hefur sem sé
þá sérstöðu í Mið-Ameríku/ að
þar getur heitið lýðræði og
sæmilegt stjórnarfar.
Þaö fólk sem nú flýr inn i Costa Rica
undan hersveitum einræöisstjórna
þeirra, sem Bandarikjamenn styðja i E1
Salvador og Guatemala, og einkum siö-
an Reagan tók við stjórnartaumunum,
er oftast annaðhvort menntafólk eða úr
rööum landbúnaöarverkafólks. Þeir,
sem komiö hafa frá E1 Salvador siðustu
mánuði, segja mikla ofsóknaröldu
ganga yfir landið með brennum, fjölda-
morðum og grimmilegum pyndingum i
fangelsum. Fram undir þetta hefur þó
verið tregöa á þvi viöast hvar aö viður-
kenna menn frá E1 Salvador pólitiskt
flóttafólk.
Stuðningur sá, sem fólkiö frá E1
Salvador hefur notið i, Costa Rica, er
ekki heldur jafneindreginn og þeir urðu
að njótandi, er flúðu undan Somoza.
Þessu veldur ótti við, aö flóttafólkið
muni mynda skæruliðasveitir.
Þeir sem flúið hafa yfir landamærin
inn i Hondúras hafa fengið hinar óblið-
ustu móttökur. Herinn þar hefur marg-
sinnis rekið þá til baka. Svipað hefur
hent flóttafólk, sem komizt hefur til
Bandarikjanna, — það hefur verið sent
heim til E1 Salvador með flugvélum.
Það þýðir, að þetta fólk lendir i klóm
lögreglunnar við komuna til heima-
landsins, og þá er ekki að sökum að
spyrja. Presturinn Higinio Alas, sem
sjálfur er flóttamaöur, fullyrðir að þess
biði ekki annaö en dauðinn.
Það ber oft við, að fólk flýr i ofboði án
undirbúnings, þegar fréttir berast af þvi
að hersveitir stjórnarinnar eða þjóð-
varðliðar, morðsveitir hægrimanna, séu
i námunda. Þá verður ekki við komið aö
vara við þeim löndum, þar sem sizt er
miskunnar að vænta. En oft eru sögu-
sagnir á kreiki um það meðal almenn-
ings hvar hjálparstöövar eru. 1 Costa
Rica er auðvelt aö fá dvalarleyfi, og þar
dreifir biskupakirkjan fatnaði og mat og
getur hjálpað sumum um húsaskjól.
Meðal annars hafa flóttamenn fengið að
hafast við i kirkjum eða safnaðarhúsum
utan við San Jósé, höfuðborg Costa
Rica. En þröngt er viða búið, þvi að fjöl-
skylda með átta börn fær til dæmis ekki
nema tólf fermetra gólfrými fyrir sig.
Margt af þessu fólki á ekki aftur-
kvæmt til E1 Salvador i náinni framtið,
nema breyting verði þar á stjórnarfari.
Sumt er úr þorpum sem eytt hefur verið
skipulega með ikveikjum og eldi, ýmist
vegna gruns sem stjórnarvöld hafa
fengið á fólkinu þar eða þá til þess að
hræöa aðra. Landbúnaðarverkafólk er
yfirleitt litillægt og látið sæta afarkost-
um, en hörðustum ofsóknum verður það
fyrir i héruðum, þar sem skæruliða-
sveitir eru öflugastar. Gagnvart prest-
um, læknum og kennurum eru ofsókn-
imar einstaklingsbundnari og tengdar
þvi, hvort þeir þykja hafa sýnt almenn-
ingi samúð i viöureigninni viö stjórn.