Tíminn - 01.03.1981, Síða 16

Tíminn - 01.03.1981, Síða 16
24 Sunnudagur 1. mars 1981 Umsjón: Magnús Gylfi Steve Winwood varð /»superstjarna" aðeins sextán ára að aldri/ Þá var hann i löngu gleymdri hljómsveit sem hét „The Spencer Davls Group"". Hann naut síðan óvenju- legra vinsælda allt fram á áriö 1975 þegar hann dró sig í hlé. Nú loks eftir langa þögn hefur hann sent frá sér nýja plötu og af þvi tilefni er ekki úr vegi að geta drengsins að nokkru. Hann gekk aðeins fimmtán ára gamall í </The Spencer Davis Group"/ sem starfaði þá i Birmingham, Englandi. Hann var álitinn undra- barn/ því strax á þessum árum bjó hann yfir ótrú- legum tónlistarhæf i- leikum. Ekki nóg með það/ að hann væri svo til jafnvígur á öll hljóðfæri, heldur bjó hann einnig yfir óvenjulegri söng- rödd, sem kölluð var ,/White — soul singing". „The Spencer Davis Group" var um margra hluta sakir merkileg grúbba". Fyrir utan að vera „uppeldisstaður" Steve Winwood þá átti hún verulegum vin- sældum að fagna á árunum 1964-1967. Þeir unnu sér það t.d. til frægðar að verða ein af fáum hljómsveitum sem tókst að ryðja „The Beatles" úr fyrsta sæti vinsældarlistans breska (sem ver ekkert áhlaupa- verk i þá daga). Þetta tókst þeim í janúar 1966 með laginu „Keep on running" (muniði!). Á þessum árum samdi Steve m.a. tvö mjög þekkt lög „ l'm a man" og „Gimme some loving". Árið 1967 yfirgaf hann hljómsveitina til þess að reyna fyrir sér á eigin spýtur. Fljótlega upp úr þessu stofnaði hann ,/Traffic", sem löngum hefur verið talin ein af merkari hljómsveitum Breta. Hún gaf út plötuna „Mr. Fantasy" árið 1968, og gagnrýnendur réðu sér ekki fyrir fögnuði. Hér var komin frumleg og framsækin grúbba af besta tagi. Upprunalegir meðlimir „Traffic” voru Steve Winwood, Chris Wood og Jim Capaldi (og stundum Dave Mason). Frá þessu triói komu öll bestu lög „Traffic”, þó svo að hljóm- sveitin hafi margoft leyst upp og komið siðan saman aftur, þá stóðu verk þeirra þremenning- anna upp úr. bað er af Steve Winwood að segja að hann yfir- gaf hljómsveitina árið 1969 og gekk i lið með Eric Clapton, Ginger Baker, Rich Grech og stofnaði „Blind Faith”. Clapton og Baker komu úr „Cream” og Rich Grech úr „Family”. Þessi kokkteill var af mörgum talin fyrsta „supergrúbban”. Eitt er vist að þarna voru saman- komnir ótrúlega miklir hljóm- listarmenn á einn stað. A fyrstu hljómleikaferö sinni um Bandarikin gerðu þeir storm- andi lukku og við þá voru miklar vonir bundnar. Þeim tókst að senda frá sér eina plötu 1969 Steve Winwood 1981 Einn af fáum Sagt frá ævi og störfum Steve Winwood „Blind Faith” og siðan ekki söguna meir. Platan olli von- brigðum, þvi hún stóðst engan veginn þær kröfur sem gerðar voru til hennar. Að þessu sinni sannaðist þvi hið fornkveðna að „Of margir kokkar spilla súp- unni”. Súpergrúb ban lognaðist út af viö litinn orðstir. Steve gekk aftur i lið með þeim „Traffic” mönnum 1971, en hljómsveitin náði aldrei aftur þeim „standard” sem hún áður var þekkt fyrir. Seinni „Traffic” leystist upp árið 1975 og kom aldrei saman eftir það. Steveá hinn bóginn dró sig út úr skarkala lifsins og settist að á bresku sveitarsetri. Frá honum heyrðist ekkert i mörg ár eða þar til hann settist niður með nokkrum vinum úr fjölskyld- unni og „jammaði” inn á plötu. Um það leyti sem Johnny Rotten skók heiminn, sendi Steve frá sér lag sem Jim Capaldi hafði samið og var kannski dæmigert fyrir hugsunarhátt þeirra og jafn- aldra þeirra „Time is running out”. Siðan ekki orð fyrr en nú. En hver er þessi maður er átt hefur hlut að máli i flestum stórhljómsveitum sjötta og sjöunda áratugsins? Hver er það sem getur starfað allan þennan tima, með mönnum eins og Eric Clapton, Jimi Hendrix, Muddy Waters, Howlin’Wolf, Lou Reed og fleirum og samt haldið haus og komið heill út úr allri þessari pressu? Til þess að fræðast nánar um það skulum við gripa niður i viðtal sem tekið var við hann i sambandi við út- komu nýju plötunnar. „Nú eru þrjú ár liðin síð- an þú sendir síðast frá þér plötu. Ert þú spennt- ur? „Auðvitað er ég það. Þetta er allt min eigin vinna. Mér likar þetta — ljúft. Gæti verið verra, gæti verið verra.” Hann kyssti albúmið. „Hefur séð það? Hvernig likar þér umslagið? ,,Mun einhverjum líka platan?" „Já þarna kemurðu með það. Það er það sem skiptir máli. Salan. Hin miskunnarlausa sönnun. Ég er á leiðinni til Bandarikjanna til að taka upp næstu plötu. Þegar maður er einu sinni byrjaður er ekki hægt að stoppa.” Steve er ekki eins og krakki með nýtt leikfang. Hann er öllu fremur maður sem hefur fundið gamalt uppáhald. Þeir sem fylgst hafa með Steve vita að hann er mikill hæf ileikamaður, en hvað með samstarf við aðra? „Égá erfittmeðað vinna með öðrum, sérstaklega að semja „The Spencer Davis Group” Steve Spencer Davis. „Traffic” Dave Mason, Jim Capaldi, „Blind Faith” Steve Winwood, Rich Grech, Ginger Baker, Eric Clapton. lög. Eftir að Capaldi fluttist til Brasiliu er þetta orðið vanda- mál.” /,Hvað gerðirðu milli þessarar plötu og 1977 plötunnar?" „Ég var mestmegnis i „session”. Ég spilaði á plötu með Marianne Faithfull, Mike Oldfield og ég held George Harrison, já alveg örugglega. Og svona þetta og hitt. Þegar þú ert ,,session”-leikari þá berðu enga ábyrgð.” En það er einmitt þessi ábyrgðsem hann vill axla með nýju plötunni sinni. í leit sinni að hinni full- komnu solo plötu f ór hann einn inn í stúdíóið og gerði allt sjálfur. Hvernig líkaði honum það? „Mmmmm — þaö er ekkert sérlega sniðugt þvi það tekur svo langan tima. Ég var ávallt undir þrýstingi með að klára plötuna. En ég er feginn að ég gerði það. Ég viðurkenni það að ég er takmarkaður sem hljóðfæraleikari. T. d. eyddi ég heilli viku i það að læra upp á nýtt á trommur. Ég var nú meiri dellan .. Ég hefði getað fundið betri trommuleikara en mig. En i músik er hægt að gera

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.