Tíminn - 08.03.1981, Blaðsíða 3

Tíminn - 08.03.1981, Blaðsíða 3
Sunnudagur 8. mars, 1981. 3 262 ker eru i verksmið.iu númer tvö, og þar er oft miður gott loft. Forráðamenn álverksmiðjanna eru tregir til þess að lofa þvi. Iivenær horfið verður að vinnsluaðferðum, er minni mengun fylgir. Það virðist fylgja álverum, að kring um þau er órói, og fyrst og fremst vegna þeirrar meng- unarhættu, sem þeim er talin fylgja. Nú stendur styr um svo- nefnt Granges-álver i Sundsvall i Sviþjóð, þar sem farnar hafa verið mótmælagöngur vegna umsóknar verksmiðjustjórnar um leyfi til þess að endurnýja verksmiðjur sinar. „Það er mestu mistökin við Granges-álverið i Sundsvall, að það er aðeins hálfan fjórða kiló- metra frá miðbæ borgarinnar og verksmiðjur og ibúðarhús rétt utan við girðinguna um verksmiðjulóðina”, segir Svenska dagblaðið. Þetta gat kannski gengið i upphafi, árið 1942, þegar fram- leiðslan var aðeins hluti af þvi, sem nú er, segir blaðið enn- fremur. Nú kunnum við að vera komin yfir þau mörk, sem við verðum að setja heilsufars okkar vegna, þótt við vitum það ekki. Það býr bak við þessi orð, að margir óttast, að efni i reyk úr fimm griðarlega háum verk- smiðjustrompum geti valdið krabbameini. Það getur tekið tuttugu eða þrjátiu ár, að krabbameinið komi fram, og það er einmitt talið, að þess geti senn hvað liður farið að gæta, ef svo er, að teflt hafi verið á of tæpt vað. í Grangesverksmiðjunum eru nú framleidd 83 þúsund tonn af áli á ári i tveimur verksmiðjum. Onnur þeirra er orðin úr sér gengin, og i hinni eru einnig við- hafðar vinnsluaðferðir, sem orðnar eru á eftir timanum. Verksmiðjufélagið vill i fyrsta lagi fá að reisa nýja fjörutiu þúsund lesta verksmiðju til þess að leysa elsta hlutann af hólmi, en siðan aðra siðar á áratugn- um. Nú er gert ráð fyrir, að nýjar verksmiðjur muni bæði hag- kvæmari i rekstri og valda minni mengun en þær gömlu, og sundurþykkja sú, sem upp er komin, snýst um kröfur á um- bæturá þeirri gömlu verksmiðj- anna, sem rekin verður áfram. Ætlast er til, að umbyggingu hennar verði lokið 1990. For- ráðamenn verksmiðjanna eru aftur á móti tregir til að skuld- binda sig til nokkurs, og bera þvi að endurbygging verk- smiðjuhlutans muni kosta 450 milljónir, sænskra krona. Auk þess bera þeir þvi við að ekki sé séö, hvenær enn ný tækni getur komið til sögunnar. 1 ööru orð- inu er svo látið skina i það, að ef til vill verði Grangesverksmiðj- unum lokað, en þar vinna um átta hundrað og fimmtiu manns. Rekstrarleyfi það sem verk- smiðjurnar nú hafa frá um- hverfisverndarnefndinni i Sund- svall, var gefið út árið 1974. Þetta leyfi er nú orðið harla úrelt. Hefðu menn haft hugboð um það fyrir sjö árum, er þeir nú vita um efni i reyknum frá álverinu, hefðu skilyrðin verið allt önnur. Það er sér i lagi margs konar sambönd kol- vétna, sem myndast við brun- ann og eru að jafnaði táknuð með stöfunum PAH, er stuggur stendur af. PAH-magnið frá ál- verinu er sem sé jafnmikið og kemur frá öllum öðrum verk- smiðjum og öllum vélum i Svi- þjóð, og sum viðsjárverðustu efnin, er krabbameini valda, eru þar meiri i andrúmsloftinu en á nokkrum öörum stað á öll- um Norðurlöndum. Hér bætir ekki úr, að þjóðvegur E-4 liggur þvert i gegn um byggðina með mörg þúsund ökutækja umferð á dag. Sums staðar i Sundsvall gætir verulegrar mengunar frá verk- smiðjunum, þótt misjafnt sé eftir vindfari, og i einu borgar- hverfinu hafa mun fleiri van- sköpuð börn fæðst undanfarin ár heldur en með likindum má telja, nánast töfalt fleiri. A hinn bóginn virðist sem sum önnur borgarhverfi ættu að hafa orðið jafnilla úti eða verr, ef mengun frá verksmiðjunum er um að kenna. 1 verksmiðjunum sjálfum kvarta sumir um, að þeim sé æ ofan i æ illt i hálsi. Nú er þess beðið, hvaða skil- yrði um betri hreinsibúnað og meiri mengunarvarnir bæjar- yfirvöld i Sundsvall setja, er þau svara umsókn álfélagsins um byggingu nýrrar verk- smiðju. Leiksýningar og hljómleikar listamanna úr öllum heimshornum eru daglegir viðburðir, farandsirkusar koma ístuttarheimsóknirog víða troða upp ólíklegustu skemmtikraftar - jafnvel þegar þeirra er síst von! Róm - 2ja daga eða vikuferðir Feneyjar - „Hin sökkvandi borg“ Flórens - listaverkaborgin fræga San Marinó - „frímerkja-dvergríkið" ofl. ofl. • Tívolí • Sædýrasöfn • Hjólaskautavellir • Mini-golf • Skemmtigarðar • Leikveliir • Tennisvellir • Hestaleigur aeralmma Adriatic Riviera of Emilia - Romagna (Italy) RIMINIAICPOCT # Rimini - ein af allra vinsælustu baðströndum Evrópu - iðandi af lífi og fjöri allan sólarhringinn. Veitingastaðir, diskótek, skemmtistaðir og næturklúbbar skipta þúsundum og alls staðar er krökkt af kátu fólki. • Go-cars kappakstursbrautir • Rennibrautasundlaugar Samvinnuferóir-Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 Einstaklega ódýrir og góðir veitinga- staðir ásamt fyrsta flokks íbúðum og hótelum fullkomna velheppnað sumar- leyfi á Rimini. Reyndir fararstjórar benda fúslega á alla þá fjölbreyttu mögu- leika sem gefast til stuttra ferða meðfram ströndinni. Endalaus líf og fjör allan sóla

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.