Tíminn - 08.03.1981, Blaðsíða 25
Sunnudagur 8. mars, 1981
Y'-
33
Lesendabréf
Nú fer hver að verða siðastur til að sjá málverkasýningu Gunnars
Bjarnasonar i Norræna húsinu. Sýningin hefur staðið yfir i tvær vik-
ur en i dag, sunnudag, er siöasti dagur sem hún er opin.
Aðalfundur Ferðafélags Islands
verður haldinn þriðjudaginn 10.
mars kl. 20.30 að Hótel Heklu,
Rauðarárstig 18. Venjuleg aðal-
fundarstörf. Félagar þurfa að
sýna skirteini 1980 við inngang-
inn.
Að loknum íundarstörfum
sýnir Björn Rúriksson iit-
skyggnur. Ferðafélag Isiands.
örn Snorrason sendi eftir far-
andi visu, vegna framkomu
Dagblaðsins i skrifum um saka-
mál:
Mannleg ógæfa mikilsverð,
Mannskepnan fréttaþyrst.
Dugandi piltar, dágóð ferð:
Dagblaðið varð þvi fyrst.
Að ferðast ódýrt
- Athugasemd frá Ingólfi Guöbrandssyni vegna fréttar í
dagblöðum
Gæðamat Islendinga er miðað
við háan staðal. Reynslan hefur
sýnt, að ekki þýðir að bjóða þeim
annað en góðar flugvélar og góða
gistingu á ferðalögum, enda er
þeim peningum illa varið, sem
fara til kaupa á misheppnaðri
ferð, og gildir þá einu, þótt ferðin
hafi verið boðin með einhvers
konar afslætti. Raunverulegur af-
sláttur af ferðakostnaði næst auð-
vitað aðeins gegnum samninga
traustra ferðaskrifstofa, sem ná
stórlækkuðu verði á vandaðri
gistingu, þar sem viðskipti eru
tryggð til langs tima, svo og hag-
stæðum samningum um flug.
Hingað til hefur Ferðaskrifstof-
unni Útsýn tekist að ná slíkum
samningum um gistingu á jafnvel
enn hagstæðara verði en stóru
ferðaskrifstofunum i Danmörku
og Bretlandi. Um leiguflugið
hefur einnig verið hin ágætasta
samvinna við islensku flugvélög-
in i alda-rfjórðung, og hafa far-
þegar Útsýnar notið þeirra sér-
kjara, sem um hefur samist. En
Útsýn auglýsir ekki ferðir án þess
að tilskilin leyfi og samningar
liggi fyrir. Það er ranghermt i
dagblöðum i dag, að Sterling
fljúgi hingað á vegum Útsýnar i
sumar. Farþegarnir, sem koma
til Islands og Grænlands i sumar
með vélum Sterling eru á vegum
Tjæreborg, og Útsýn hefur að-
eins með dvöl Utlendinganna að
gera meðan þeir dveljast hér, og
Samvinnuferðir selja ekki i þær
ferðir til baka, þvi að Danirnir
ætla aftur heim til sin og munu
ekki hafa i' hyggju að setjast að á
tslandi. Það er einnig ranghermi i
dagblöðum að Samvinnuferðir-
Landsýn sendi farþega áfram
með Tjæreborg, langstærstu
ferðaskrifstofu Norðurlanda, þvi
að Útsýn fer með einkaumboð á
íslandi fyrir Tjæreborg. Þannig
getur Útsýn boðið um 100 mis-
munandi ferðamöguleika Ut Ur
Danmörku, þeim sem endilega
vilja leggja þann krók á sig að
koma þar við á leið sinni suður á
bóginn. Hins vegar hefur það
reynst Islendingum farsælast og
ódýrast að nota leiguflug frá
íslandi beint suður að Miðjarðar-
hafi, enda er Danmörk eitt dýr-
asta land Evrópu. Farþegar Út-
sýnar, sem vilja dveljast i sumar-
húsum í Danmörku eða annars
staðar i álfunni geta keypt sér
slika gistingu á verði sem er hag-
stæðara en aðrir hafa auglýst til
þessa, en það er engin nýlunda,
þvi að sú þjónusta hefur staðið til
boða mörg undanfarin ár. Annars
tolla Danir ekki heima hjá sér á
sumrin fremur en Islendingar,
þvi að þeir vilja lika i sólina og
finnst mannlffið fjölbreyttara og
verðlagið hagstæðara sunnar i
álfunni en i verðbólgunni heima
hjá sér.
Útsýn hefur þvi ekkert erlent
leiguflug til Danmerkur á sinum
snærum, en býður farþegum sin-
um áætlunarflug með okkar
islensku vélum á álika hagstæðu
fargjaldi i staðinn. Allt leiguflug
Útsýnar til sólarlanda verður
með islenskum flugvélum og
islenskum flugáhöfnum eins og
hingað til, enda hljótum við að
standa við bakið á islenskum at-
vinnurekstri, fremur en að ýta
undir erlenda ásælni.
Örfáar sekúndur
%vV‘
||U^1FHRÐAR
Félagslíf
Skagfirðingar með
hlutaveltu
Sunnudaginn 8. mars kl. 3, held-
ur Skagfirska söngsveitin i
Reykjavik hlutaveRu og flóa-
markað i Breiðholtsskóla.
Þetta er einn af fjölmörgum
liðum sem kórfélagar eru með á
prjónunum til þess að fjár-
magna væntanlega söngferð til
Canada i júnf næstkomandi.
Kvenfélag Bústaðasóknar held-
ur fund i Safnaðarheimilinu
mánudaginn 9. mars kl.20:30
stundvislega. Asgerður Ingi-
marsdóttir deildarstjóri segir
frá starfsemi Öryrkjabanda-
lagsins. Skemmtiatriði, fjöl-
mennið og takið með ykkur
gesti. Stjórnin.
Kvenfélag Lágafellssóknar
heldur fund i Hlégarði næst-
komandi mánudagskvöld 9.
mars kl.20.30. Efni meðal ann-
ars: Auður Haralds les Ur verk-
um sinum. Rjómabollur og
kaffi.
Frá Sjálfsbjörg félagi fatlaðra i
Reykjavikog nágrenni. Félagar
munið Bingóið sem verður
sunnudaginn 8. mars kl. 14. Há-
tuni 12 fyrstu hæð. Góðir vinn-
ingar i' boði.
Kirkjuhvolsprestakall.
Sunnudagaskóli I Hábæjar-
kirkju á sunnudag kl. 2. Dalla
Þórðardóttir guðfræðinemi
prédikar. Auður Eir Vilhjálms-
dóttir, sóknarprestur.
Kattavinafélag Islands:
Aðalfundur Kattavinafélags Is-
lands veröur haldinn að Hall-
veigarstööum sunnudaginn 8.
mars og hefst kl. 2.
Stjórnin.
Ferðalög
Sunnud. 8.3 kl. 13
Fjöruganga við Hvalfjörö,
steinaleit, kræklingur, fritt f.
börn m. fullorðnum. Farið frá
B.S.I. vestanverðu. útivist
1. kl. 11. f.h.: Skiðaganga Blá-
fjöll — Kleifarvatn. Fararstj.:
Þorsteinn Bjarnar og Tryggvi
lldórsson.
kl. 13 Ketilstigur — Sveiflu-
[s. Fararstjóri: Sturla Jóns-
í. Verð kr. 40.-. Farið frá Um-
ðamiðstöðinni austanmegin.
rmiðar v/bil.
Ferðafélag tslands
EFLUM
FRAMFARIR
FATLAÐRA
Gíróreikningur 50600-1