Tíminn - 08.03.1981, Side 12
12
Sunnudagur 8. mars, 1981
Cation
Sértilboð
Eigum nokkur
MICROFILMU-LESTÆKI
(Standard Fich-stærð)
Og verðið Kr. 2.960
Heppileg fyrir varahlutaverslanir
og alla aðra, sem nota þessa tækni
u
ShrifuÉlin tif
o G
Suöuriandsbraut 12.
Simi 85277 — 85275
Gjöf
Jóns Sigurðssonar
VerðlaunanefndGjafar Jóns Sigurðssonar
hefur til ráðstöfunar á árinu 1981 um 130
þús. kr. Samkvæmt reglum skal verja
fénu til „verðlauna fyrir vel samin
visindaleg rit, og annars kostar til þess að
styrkja útgáfur merkilegra heimildar-
rita”. Heimilt er og að „verja fé til viður-
kenningar á viðfangsefnum og störfum
höfunda, sem hafa visindarit i smiðum.”
Öll skulu rit þessi „lúta að sögu íslands,
bókmenntum þess, iögum, stjórn og
framförum.”
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar
auglýsir hér með eftir umsóknum um
fjárveitingar úr sjóðnum. Skulu þær
stilaðar til verðlaunanefndarinnar, sem
senda íorsætisráðuneytinu, Stjórnar-
ráðshúsi 01 Reykjavik, fyrir 1. mai 1981.
Umsóknum skulu fylgja rit, ritgerðir eða
greinargerðir um rit i smiðum.
Reykjavik i marsmánuði 1981.
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sig-
urðssonar.
Magnús Már Lárusson
Óskar Halldórsson
Þór Vilhjálmsson
„Samvinnuferðir eru ekki í samkeppni við Flugleiðir”
„Seljum fjölskylduferðir,
ekki stakar flugferðir,,
Segir Eysteinn Helgason forstjóri Samvinnuferða
AB — Það hefur sjálfsagt ekki
farið fram hjá mörgum að
miklar deilur hafa risið upp um
réttmæti leiguílugferða þeirra
sem Samvinnuferðir—Landsýn
bjóða viðskiptavinum sinum
uppá á sumri komanda, til Dan-
merkur og Möltu. Hafa gagn-
rýnisraddirnar verið hvað
háværastar frá Flugleiðum.
Timinn hafði samband við
Eystein Helgason forstjóra
Samvinnuferða og spurði hann
nokkurra spurninga i þessu
sambandi.
— Hvers vegna hafa Sam-
vinnuferðir—Landsýn ákveðið
að taka upp leiguflug með er-
lendu flugfélagi i sumar?
— Markmið Samvinnuferða
er að bjóða viðskiptavinum sin-
um upp á sem allra hagkvæm-
ust kjör á orlofsferðum sinum.
Mjög stór hluti ferðakostnaðar,
nú á timum hækkandi oliuverðs,
er einmitt flugkostnaöurinn.
Það hefur jafnan veriö stefna
fyrirtækisins að beina viðskipt-
um sinum til innlendra aðila,
en þegar verð þeirra er mun
hærra, en verð það sem erlendir
aðilar bjóða, er það skylda
okkar að taka hagkvæmasta
verðinu, sem i þessu tilviki
reyndist vera frá Sterling.
1 sumar munum við fljúga
reglubundnu leiguflugi til
Toronto i Kanada. 1 þvi tilviki lá
fyrir erlent tilboð, en islenskt
leiguflugfélag, þ.e.a.s. Arnar-
flug kom með tilboð sem var
sambærilegt við það erlenda, og
var þvi gerður samningur viö
Arnarflug.
Á þessu sést að við erum sjálf-
um okkur samkvæmir i þeirri
stefnu að beina viðskiptum
okkar til innlendra aðila, þá er
þeir reynast samkeppnisfærir.
— Nú hefur Sterling ekki cnn
fengiö flugleyfi til að fljúga
hingað leiguflug. Hvað viltu
segja um það?
Eysteinn Helgason.
— Við reyndum til siðustu
stundar aö fá Flugléiöir til að
mæta hinni erlendu samkeppni,
og það var ekki fyrr en i siðustu
viku þegar ljóst er að þeir
myndu ekki mæta henni, aö
stjórn Samvinnuferða—Land-
sýnar samþykkti að taka tilboöi
Sterling. Samningurinn var þvi
fyrst frágenginn i siðustu viku.
Flugleiðir hafa reynt að gera
það tortryggilegt að ferðir
þessar séu auglýstar, án þess að
leyfi flugmálayfirvalda liggji
fyrir, en á það má benda að
slikar leiguflugferðir eru ekki
einungis fyrirhugaðar með Is-
lendinga til Danmerkur, heldur
og með Dani til Islands. Þá má
einnig minna á orð samgöngu-
ráðherra, þar sem hann segir að
gagnkvæmir loftferðarsamn-
ingar séu á milli íslands og
Norðurlandanna, og þvi sé
hæpið að hægt sé að banna slikt
flug.
Ennfremur má benda á að is-
lensk flugmálayfirvöld hafa enn
ekki veitt leyfi fyrir sólarlanda-
flugi ferðaskrifstofanna næsta
sumar, — þ.e.a.s. fyrir þeim
ferðum sem ferðaskrifstofurnar
keppast við að auglýsa þessa
dagana.
— Hvað vilt þú segja um þá
fullyrðingu Flugleiða að Stérl-
ing sé með undirboði að kaúpa
sig inn á islenskan rnarkað?
— Það er fásinna aö ætla að
erlent flugfélag, sem býður upp
á sambærileg, og jafnvel betri
kjör til annarra áfangastaða
sinna, sé að kaupa sig inn á is-
lenskan markað, sem er, og
verður alltaf mjög takmark-
aður.
Ég álit' að Flugleiðum væri
hollara, i stað þess aö halda á
lofti slikum sleggjudómum að
staldra við og ihuga hvers
vegna þeir eru ekki sam-
keppnishæfari heldur en þetta
og mörg önnur dæmi sýna.
— Hvað segir þú um þá stað-
hæfingu Flugleiða að hcilsárs-
flug félagsins geti verið i húfi,
komi til þetta leiguflug?
Ég álit að þessi fullyrðing sé
röng, og að hún eigi ekki við rök
að styðjast. Þær ferðir sem við
bjóðum upp á, á sumri kom-
anda, eruað verulegu leyti við-
bót við þann markað sem Kaup-
mannahöfn hefur veriö og
verður alltaf. Við erum ekki að
bjóða upp á stakar flugferðir,
heldur bjóðum við upp á fjöl-
skylduferðir til Danmerkur og
Möltu, þar sem viö njótum
ávaxtanna af samstarfi við
ferðaskrifstofur i eigu almenn-
íngssamtaka á Norðurlöndum.
Ef hins vegar þetta heilsárs-
flug Flugleiða til Kaupmanna-
tiafnar er slikur baggi á félag-
inu, og það vill vera láta, þá vit-
am við um marga aðila, þ.á.m.
islenska aðila, sem eru reiðu-
Dúnir að halda uppi þessari
þjónustu, á ekki siður sam-
keppnisfæru verði en Flug-
.eiðir gera i dag.
Þakka hjartanlega auðsýndan vinarhug
með gjöíum skeytum og heimsóknum að
heimili sonar mins Þóris og Arnfriðar
konu hans á 90 ára afmæli minu 28. febr.
s.l.
Guð blessi ykkur öll.
Oddný A. Methúsalemsdóttir.
v___________:___________________________________J
Útför stjúpmóður okkar
Ólafiu Valdimarsdóttur
Alftamýri 36
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 9. mars kl. 13.30.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið eða aðrar
liknarstofnanir.
Sigriður Þúrdís Bergsdóttir
Jón Bergsson
Þórir Bergsson
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
Birgitta Einarsdóttir
Fffuhvammsvegi 45, Kópavogi
andaðist 23. febrúar s.l.
Útförin hefur farið fram i kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þorsteinn Jónatansson, Heiðrún Steingrfmsdóttir
llalldór B. Jónatansson, Anna Stefánsdóttir
Ragnar Jónatansson, únnur Þorleifsdóttir
Gróa Jónatansdóttir, Kristmundur Ilalldórsson
og barnabörn.
Leikfélag Selfoss
Stalín er ekki hér
Undirtektir áhorfenda langvarandi og
innilegar að lokinni frumsýningu
A Selfossi hefur leiklistin
staðið með miklum blóma sið-
ustu áratugina. Þar hafa mörg
viðamikil leikhúsverk verið á
fjölunum og margir góðir leik-
arar komið við sögu og gert
garðinn frægan.
Siðasta viðfangsefni Leikfé-
lagsins er STALIN ER EKKI
HÉR, eftir Véstein Lúðviksson.
Hér er boðið uppá sýningu sem,
i gamni og alvöru, sýnir leik-
húsgestum eina af myndum
hins mannlega samfélags,
sem ef til vili blasir viðar við en
margur hyggur, ef grannt er
skoðað.
Leikstjóri er Asdis Skúladótt-
ir.Leikmynd geröi Hildigunnur
Daviðsdóttir. Ljósameistari
Gunnar Jónsson.
Hlutverkin eru 6, öll viðamikil
og krefjast mikils af leikendum.
Sú fjölskylda sem hér er i sviðs-
ljósinu er ærið sundurþykk til
orða og athafna. Heimilisfaðir-
inn Þórður, sem Arni Vaidi-
marssonleikur er fastastæðan i
öllu stressinu. Sáttasemjari
sem styður flokkinn sinn af óbif-
anlegri sannfæringu, les flokks-
blaðið af sannfæringu og leitast
við að samræma ólik sjónarmið
— halda friði innan fjölskyld-
unnar i lengstu lög. Árni er
byrjandi á leiksviðinu og má
segja um frammistöðu hans á
frumsýningunni að hann hafi
svo gott sem komist fullmótaður
frá frumsýningarstressinu.
Heiðdis Gunnarsdóttir, skilar
hlutverki Munduráðskonu.þess-
ari brosmildu hógværu konu,
sem kann vel að meta kaffisop-
ann og heimilsifriðinn af vand-
virkni og sannfærinau.
llulda, sem Katrin Inga
Karlsdóttir leikur, er margræð
veraldarvön kona, heima og
heiman og hefur stóru hlutverki
að gegna á „kærleiksheimil-
inu”.
Björk Mýrdal sem leikur
Svandisi og Arni Pétursson,
Kalli, eru bæði byrjendur á
sviðinu. Þaufengu veröugt lófa-
klapp og þakklæti hjá frumsýn-
ingargestum. Árni gerði slikan
ekta prakkara úr Kalla, að eftir
er munað.
Ketill Högnason, skilar hlut-
verki Stjána af hressilegri
vandvirkni. Hann hefur áður
vakið athygli á sýningum L.S.
og hrifið leikhúsgesti með leik
sinum.
Það þarf bjartsýni og kjark að
taka til sýningar verk sem hér
um ræðir. FrumSýningin i Sel-
fossbiói þann 27. febrúar sl.
sýndi það og sannaði aö sam-
hugur og samstarf mega sin
mikils ef forustan er til staðar.
Helmingur leikendanna hefur
ekki áður á leiksvið komið.
Þrátt fyrir það hefur leikstjór-
anum og hans fólki tekist að
skapa mynd sem er eftirminni-
leg, og skemmtileg tilbreyting i
önn daganna.
Leikfélag Selfoss á þakkir
skilið fyrir þetta framtak.
Stjas.
AUKUM ÖRYGGI
I VETRARAKSTRI
NOTUM ÖKULJÓSIN
ALLAN
SÓLARHRINGINN
nlxFERÐW