Tíminn - 08.03.1981, Qupperneq 27
Sunnudagur 8. mars, 1981
35
flokksstarfið
Stjórnarskrármálið
Ráðstefna sambands ungra framsóknarmanna
verður haldin að Hlégarði, Mosfellssveit dagana
7. og 8. mars n.k.
Fundarstjórar verða:
Davið Aðalsteinsson alþingismaður og Björn Lindal lögfræðinemi
Dagskrá:
Sunnudagur 8. mars
kl. 10.00 Umræðuhópar starfa
kl. 12.00 Hádegisverður
kl. 13.00 Alitsgerð umræðuhópa
kl. 14.00 Flutt álit umræðu hópa
Almennar umræður.
kl. 17.30 Ráðstefnuslit
Reykvikingar - miðstjórnarmenn
Árshátið framsóknarfélaganna i Reykjavik verður haldin i Hótel
Heklu laugardaginn 4. april.
Boðið verður upp á veislukost og stórkostleg skemmtiatriði. Þeim
sem hyggjastvera með er bent á að tryggja sér miða sem allra fyrst
þar sem takmarka verður fjölda gesta við 160.
Þátttaka tilkynnist i sima 24480.
í:
Vinarferð
Farið verður til Vinarborgar i beinu
flugi 14. mai og til baka 28. mai
Takmarkaður sætafjöldi.
Nánari upplýsingar i sima 24480.
Kópavogur
Freyja gengst fyrir félagsmálakennslu 2 kvöld á næstunni. Þau
veröa þriðjudagana 3. og 10. mars i Hamraborg 5 og hefjast kl.20.30
bæði kvöldin. Leiðbeinandi verður Gissur Pétursson formaður
F.U.F. í Kópavogi. Upplýsingar hjá Unni i sima 42146.
Stjórnin.
Borgnesingar — nærsveitir
3ja kvölda félagsvist verður i Hótel Borgarnesi föstudagana 6. mars
20. marsog3. april, oghefst kl. 20.30.
Verðlaun fyrir hvert kvöld, einnig heildarverðlaun.
Aðgangseyrir kr. 20.00. Kaffi eða öl innifalið
Allir. velkomnir
Framsóknarfélag Borgarness
Bingó
að Hótel Heklu Rauðarárstig 18, sunnudaginn 8. mars n.k. kl. 15.
Húsið opnað kl. 14.
FUF i Reykjavik
Árnesingar — Rangæingar
Alþingismennirnir Þórarinn Sigurjónssonog Jón Helgason verða til
viðtals að Laugarlandi, Holtum mánudaginn 9. mars n.k. kl. 21 og
Þjórsárveri Villingarholtshreppi þriðjudaginn 10. mars n.k. kl. 21.
Tvær nýjar bækur frá
Universitetsforlaget
Johan P. Olsen (ritstj.):
Meninger og Makt
Universitetsforlaget 1980.
182 bls.
Höfundar þessarar bókar eru
fimm kennarar og rannsóknar-
menn i félagsvisindum við
Björgvinjarháskóla. Viðfangs-
efni þeirra I þessari bók er
tviþætt: Hvernig myndar fólk
sér skoðanir á málefnum? og,
hvaða þýðingu hafa skoðanir
fólks?
Til þess að leita svara við
þessum spurningum hafa höf-
undar einkum lagt sig eftir þvi
að kanna, hvernig reynt sé að
hafa áhrif á skoðanamyndun,
hvernig fjölmiðlum sé beitt,
hvort skoðanir fólks ráðist af
þjóðfélagsstöðu þess, hvort
hávaðasöm andstaða við
ákveðið málefni geti leitt til
almennrar andstöðu, hverjir
geti notað sér fjölmiðla til
áhrifa á skoðanir annarra og
siðan, hvort opinber umræða
styrki skoðanir fólks eöa breyti
þeim. Loks er rætt allýtarlega
um upplýsingastreymi og þá
ekki sist um þann þátt, sem
kalla mætti öfugt upplýsinga-
streymi, þ.e. hvort og þá hvern-
ig stjórnmálamönnum og öör-
um ráðamönnum samfélagsins
berist vitneskja um viðbrögð
fólks við athöfnum þeirra og þá
um leið, hvort þeir breyti i sam-
ræmi við þá vitneskju.
Þetta er fróðleg bók um efni,
sem er ofarlega á baugi i sam-
félagsrannsóknum okkar tima.
T. Colbjörnsen, O. Korsnes, O.
Nordhaug: Fagbegvegelsen —
Interesseorganisation og Adm-
inistrator.
Universitetsforlaget 1981.
195 bls.
Samtök starfshópa ýmiskonar
eru áberandi i samfélagi okkar
tima og hafa tiðum mikil áhrif
og völd. I þessari bók er að finna
sex ritgeröir, þar sem fjallað er
um þetta þjóðfélagsafl frá
ýmsum hliðum, reynt að gera
grein fyrir tilurð þess, vexti og
áhrifum, jafnframt þvi sem
skipulagning samtakanna er
skýrð. Einnig er skýrt frá starf-
semi þeirra, bæði innri starf-
semi á vinnustööum og viöar
sem og hvernig þau beita áhrif-
um sinum útá við. Eins og gefur
að skilja miðast rannsókn
höfunda mest við norskar
aðstæður, en er engu að siður
athyglisverð fyrir islenska
lesendur. Jón.Þ.ÞÓr.
__Til vióskiptamanna_____
banka og sparisjóóa
Verðtryggð
spariinnlán
til 6 mánaða
Innstæða óhreyfð í 6 almanaksmánuði er að fullu
verðtryggð í hlutfalli við breytingu lánskjaravísitölu
og ber auk þess 1 % ársvexti.
Verðbæturnar færast mánaðarlega á innlánin.
Innstæða er sjálfkrafa laus til útborgunar einn
almanaksmánuð á sex mánaða fresti, óski eigandi
að ráðstafa henni.
Vakin er sérstök athygli á því, að frá 1. apríl geta
eigendur bundinna innlánsreikninga flutt innstæður
sínar án uppsagnar inn á 6 mánaða verðtryggð inn-
lán. Beiðnir um slíka flutninga mega nú berast í
marsmánuði, vegna vísitölutryggingar í apríl. Eig-
andi verður sjálfur að koma í stofnunina (eða maður
með skriflegt umboð hans) til þess að sjá um flutn-
inginn.
Reglur um 3ja mánaða vaxtaaukainnlán eru þó
óbreyttar og kalla á uppsögn sem fyrr.
Binditími tveggja ára verðtryggðra reikninga er
stofnaðir voru frá 1. júlí 1980 hefur verið styttur í sex
mánuði og falla þeir sjálfkrafa undir sex mánaða
verðtryggð spariinnlán.
Félag Framsóknarkvenna i Reykjavík
heldur fund að Hótel Heklu mánudaginn 9. mars n.k. kl.
20.30 i tilefni af Ari fatlaðra.
Ræðumenn: Theódór A. Jónsson, formaður Sjálfsbjargar.
Landssambands fatlaðra, Sigriður Ingimarsdóttir.
Styrktarfélagi vangefinna, Steinunn Finnbogadóttir for-
stöðukona fyrir Dagvistunarheimili Sjálfsbjargar.
Fundarstjóri: Sigrún Sturludóttir. Ritari: Guðrún
Hjartar.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
Starfsfólk banka og sparisjóðaer reiðubúið með leið-
sögn, og skriflegar upplýsingar liggja frammi.
6. mars 1981
Samvinnunefnd bankaog sparisjóöa-