Fréttablaðið - 25.09.2007, Side 2

Fréttablaðið - 25.09.2007, Side 2
Stefán, er þetta dropi í hafið? Öryggismál á norðurheimskautinu og þar um kring verða efst á baugi á tveggja daga ráðstefnu sem hefst í Tromsö í Noregi í dag. Fulltrúar frá Íslandi, Danmörku, Bandaríkjunum, Rússlandi, Kanada og Noregi sækja ráðstefnuna sem yfirmaður norska hersins boðaði til í byrjun sumars. Málaflokkar sem ræddir verða á ráðstefnunni eru öryggi í orkumálum, öryggi og lögsaga, siglinga- og flutningaleiðir um norðurheimskautið og fiskveiði- eftirlit. Björn Bjarnason dómsmála- ráðherra er einn af fulltrúum Íslands. Öryggi á norð- urslóðum rætt „Allt í einu finn ég bara svakalegt högg sem ríður yfir bílinn hægra megin,“ segir Albert Símonarson, sem ók á grjóthnullung sem hrundi af óvörðum bílpalli á Reykjanes- braut síðdegis í gær. „Hnullungurinn var nánast eins og fótbolti að stærð,“ segir Albert. „Ég tók strax eftir að bíll- inn fer að haga sér asnalega og sé að það er sprungið. Ég er ekki búinn að heyra frá Tjónaskoðun- inni en ég veit að bæði dekkin eru sprungin og báðar felgurnar dældaðar hægra megin. Bíllinn er alveg óökuhæfur eftir þetta.“ Albert tilkynnti lögreglu um málið og höfðu þá þegar borist nokkrar tilkynningar um grjót- hrun af bílnum og var hans leitað. Þá voru nokkrir ökumenn kærðir fyrir sama athæfi í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í gær, en tilkynningum hafði rignt þar inn frá fólki sem kvart- aði yfir því að sandur fyki á bíla þeirra af malarflutningabílum. Varðstjóri lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu segir að alltaf sé eitthvað um að menn passi ekki nægilega vel upp á farm á flutningabílum með þeim afleið- ingum að það hrynur af þeim. Það varðar við lög. „Maður sér aldrei þessar yfirbreiður,“ segir Albert. „Ég veit ekki einu hvort þetta er til í alvörunni eða hvort þetta eru bara sögusagnir.“ Grjóthnullungur eyðilagði bíl Ökumaður sportbíls af gerðinni Chevrolet Corvette brenndist í andliti og á hendi þegar logar gusu framan í hann þegar hann lyfti vélarhlífinni á bíl sínum í fyrrakvöld. Maðurinn, sem er á fimmtugs- aldri, varð var við reyk frá bílnum þar sem hann ók í Eyjafirði við afleggjarann að Kristnesi skammt frá Akureyri, að sögn lögreglu. Hann stöðvaði bílinn og leit undir vélarhlífina, en þá gaus upp eldur á móti honum. Ökumaðurinn var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri þar sem gert var að sárum hans. Bíllinn er gjörónýtur, enda mikið af plastefnum í yfirbyggingu hans. Ökumaður fékk logana í andlitið Hæstiréttur staðfesti í gær að Bjarni Hrafnkelsson, 35 ára, og Einar Jökull Einarsson, 27 ára, sem grunaðir eru um að skipu- leggja innflutning á rúmlega 60 kílóum af amfetamíni, skyldu vera í gæsluvarðhaldi til 18. október. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald en Bjarni og Einar Jökull kærðu niðurstöð- una til Hæstaréttar. Þeir hafa báðir neitað sök í málinu. Líklegt er að þeir verði í haldi þar til dómur fellur í máli þeirra en það hefur til þessa tíðkast í umfangsmiklum fíkniefnamálum. Eins og greint hefur verið frá í fréttum voru þeir tveir, ásamt átta öðrum, handteknir eftir að upp komst um smygltilraun á Fáskrúðs- firði á fimmtudag en fíkniefnunum var siglt hingað með skútu sem hafði verið tekin á leigu. Alvar Óskarsson og Guðbjarni Traustason, sem handteknir voru um borð í skútunni á Fáskrúðsfirði, kærðu ekki gæsluvarðhaldsúr- skurð héraðsdóms og verða því einnig í haldi til 18. október. Manni um tvítugt, sem átti að vera bílstjóri Guðbjarna og Alvars á Fáskrúðs- firði, verður sleppt úr haldi á föstu- dag að óbreyttu. Þáttur hans er tal- inn veigalítill. Íslensku pari, sem handtekið var í Kaupmannahöfn sama dag og málið kom upp, var sleppt daginn eftir. Það er ekki talið hafa tengst smyglinu. Þá er einn 24 ára Íslend- ingur í haldi í Færeyjum en tvö kíló af amfetamíni fundust í fórum hans þegar hann var handtekinn á fimmtudag. Dana, sem var hand- tekinn með honum, hefur verið sleppt. Loga Frey Einarssyni, bróður Einars Jökuls, hefur einnig verið sleppt úr haldi lögreglu í Noregi en lögreglan grunaði hann um aðild að smyglinu og var hann handtekinn á heimili sínu í Stavanger þess vegna. Fréttavefurinn Vísir greindi frá því í gær að Logi Freyr hefði sýnt norskum lögreglumönnum skútuna Lucky Day en hún var við bryggj- una á Fáskrúðsfirði frá því í sept- ember 2005 til vors 2006. Grunur lék á því að hún hefði verið notuð til smygls og var meðal annars leitað í skútunni með fíkniefnahundi. Logi Freyr hefur neitað allri aðild að málinu. Eins og greint var frá í Frétta- blaðinu í gær er Bjarni Hrafnkels- son grunaður um að skipuleggja og fjármagna smyglið, auk þess að pakka efnunum erlendis. Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldskröfu sem Fréttablaðið hefur undir höndum. Yfirheyrslur vegna málsins hafa staðið yfir undanfarna daga og verður þeim framhaldið í dag. Lög- reglumenn í fíkniefnadeild lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu hafa unnið að málinu erlendis. Þeir munu gera það áfram enda rann- sókn málsins enn á frumstigi, sam- kvæmt upplýsingum frá Stefáni Eiríkssyni lögreglustjóra. Bjarni og Einar Jökull áfram í haldi Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms þess efnis að Bjarni Hrafnkelsson og Einar Jökull Einarsson skyldu vera í gæsluvarðhaldi til 18. október. Þeir eru grunaðir um að skipuleggja smygl á 60 kílóum af amfetamíni. Á Íslandi hefur lengi verið talið alveg nóg að vera með börn á brjósti í eitt ár en Alþjóðaheilbrigðisstofnunin mælir með brjóstagjöf til tveggja ára aldurs og það gera íslenskar ljósmæður líka, að sögn Katrínar Eddu Magnúsdóttur, ljósmóður og brjóstagjafarráðgjafa á kvenna- deild Landspítalans. „Það er geysilega erfitt að eiga við fordóma annarra gagnvart konum sem kjósa að halda áfram að ala börn sín á brjósti eftir eins árs aldurinn, en mikilvægt að styðja þær andlega og félagslega,“ segir hún. Tvö ár lágmark Atli Gíslason alþingis- maður hefur ásamt sjö veiðifélög- um sínum verið útlokaður frá því að kaupa veiðileyfi hjá Stangaveiðifé- lagi Reykjavíkur næstu þrjú ár. Eftirlitsmaður stóð hópinn að því að veiða með maðki í Hítará nú í september þegar þar er aðeins leyfð fluguveiði. Atli hefur sagt að hann hafi ekki vitað um maðka- veiði félaga sinna. Stjórn stanga- veiðifélagsins er á annarri skoðun: „Það er niðurstaða stjórnar SVFR að allir veiðimenn- irnir séu brotlegir, þar sem þeir fjórir sem voru þó á bakkanum vissu af athæfi hinna og eru þannig meðsekir í þessum verknaði.“ Þingmaðurinn vissi um maðka Karl Magnús Grönvold, 29 ára Íslendingur sem handtekinn var fyrir fíkniefnasmygl í Brasilíu í júní, var dæmdur í fangelsi ytra í þrjú ár og ellefu mánuði 18. september síðastliðinn. Karl var handtekinn við komuna til Brasilíu 6. júní og fannst á honum kókaín. Fyrstu fregnir frá þarlendum yfirvöldum hermdu að hann hefði haft sex kíló af kókaíni í fórum sínum, en kílóin munu hins vegar einungis hafa verið um tvö og hálft. Karl Magnús dvelur í útlendingafangelsi um 300 kílómetra frá Sao Paulo. Þar getur hann unnið og stytt með því fangavistina um einn dag fyrir hverja þrjá vinnudaga. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins sagðist Karl hafa átt frumkvæðið að smyglinu og ekki eiga sér neina vitorðsmenn. Í Brasilíu eiga þeir sem verða uppvísir að því að tengjast skipulagðri glæpastarf- semi þunga refsingu yfir höfði sér. Tveir aðrir Íslendingar eru í Brasilíu vegna fíkniefnasmygls. Hlynur Smári Sigurðarson hlaut í fyrra þriggja ára fangelsisdóm fyrir smygl á tveimur kílóum af barnapúðri sem hann hélt vera kókaín. Hann er þó á leið til Íslands í október. Þá hlaut Ingólfur Rúnar Sigurz sex og hálfs árs dóm í apríl fyrir að smygla til landsins rúmlega tólf kílóum af hassi. Tveir karlmenn hafa verið dæmdir í Héraðsdómi Austurlands fyrir harkalega líkamsárás. Mennirnir tveir veittust að hinum þriðja á sjómannadansleik á Höfn, slógu hann báðir hnefahögg í höfuðið, hentu honum í gólfið og veittust að honum þar. Fórnar- lambið hlaut verulega áverka í andliti. Annar árásarmannanna var dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi en hinn í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þeir voru dæmdir til greiðslu sakarkostnað- ar og til að greiða fórnarlambinu 200 þúsund krónur í skaðabætur. Réðust á mann og misþyrmdu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.