Fréttablaðið - 25.09.2007, Qupperneq 4
Í öllum stærstu sveitarfé-
lögunum utan höfuðborgarsvæð-
isins bíður fólk þess að komast í
félagslegt húsnæði.
Með hækkandi íbúðar- og leigu-
verði hefur ásókn í félagslegt hús-
næði víða aukist.
Nokkur sveitarfélög stefna þó á
að fækka félagsíbúðum sínum. Í
Vestmannaeyjum eru til dæmis
áform um að selja helming
þeirra.
Í Ísafjarðarbæ eru alls engar
félagslegar íbúðir. Fasteignafélag
í eigu bæjarins rekur þær íbúðir
sem áður flokkuðust undir félags-
húsnæði og leigir þær út á almenn-
um markaði.
Einungis tveir njóta sérstakra
húsaleigubóta á Ísafirði og félags-
málastjóri þar telur að fólk í
bænum geri sér ef til vill ekki
grein fyrir réttindum sínum.
Fleiri þurfi líklega aðstoð en sæki
um hana. Einn umsækjandi bíður
sérstakra bóta hjá bænum.
Á Akureyri eru 89 á biðlista og
er það minna en í meðalári. Bær-
inn bætti sex nýjum íbúðum í
félagslega kerfið árið 2006. Þar
getur biðtími verið eitt til tvö ár.
Hlutfallslega kemur Akureyri
næst Reykjavík ef litið er til fram-
boðs á félagslegum íbúðum. Þar
eru 15,15 íbúðir á hverja þúsund
íbúa, en hlutfallið er hæst í
Reykjavík, 16,14.
Í Árborg bíða 22 þess að komast
í félagshúsnæði, en af þeim fá
fimm sérstakar húsaleigubætur.
Akranesbær á átján félagsíbúð-
ir og er með tólf til viðbótar á
leigu. Þær eru framleigðar til
fólks sem ekki getur leigt á
almennum markaði. Ekki stendur
til að kaupa fleiri íbúðir í bráð á
Akranesi.
Fjarðabyggð á 53 íbúðir og verð-
ur þeim fækkað í 45 á næsta ári.
Byggðin átti áður allan leigumark-
að sveitarfélagsins og rak 90 íbúð-
ir en sú starfsemi er nú í auknum
mæli í höndum leigufyrirtækja. Á
biðlista eru 18 og bjóðast þeim
sérstakar húsaleigubætur, sem
annars staðar. Tíu félagsíbúðir
eru á Fljótsdalshéraði og sá sem
lengst hefur beðið íbúðar þar sótti
um fyrir fimm mánuðum.
Í Vestmannaeyjum lengist bið-
tími umsækjenda í ljósi þrengri
og dýrari húsnæðismarkaðar. Þar
bíða þó einungis þrír.
Vestmannaeyjabær átti áður
rúmlega 120 íbúðir, en hefur fækk-
að þeim og gerir ráð fyrir að eiga
um fimmtán íbúðir í framtíðinni.
Biðlistar um allt land eftir
félagslegu íbúðarhúsnæði
Í átta stærstu sveitarfélögum landsins utan höfuðborgarsvæðisins bíða fjölskyldur eftir að komast í félags-
legar íbúðir. Margt bendir til að eftirspurn aukist í góðæri vegna dýrari leigu. Sveitarfélög fækka þó íbúð-
unum frekar en hitt, Vestmannaeyjabær stefnir til dæmis að því að reka fimmtán íbúðir en átti 120 áður.
www.lyfja.is - Lifið heil
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
Y
F
3
89
96
0
9.
20
07
Acidophilus Bifidus + FOS
Mjólkursýrugerlar, góðir fyrir meltinguna.
Champignon DETOX + FOS og Spirulina
Hreinsaðu líkamann – eyðir óæskilegri lykt.
Milk Thistle DETOX
Hreinsaðu líkamann að innan.
Psyllium Husk Fibre
Rúmmálsaukandi, gott fyrir
meltinguna.
30% afsláttur
af Vega vítamínum
George W. Bush
Bandaríkjaforseti segir það skýr-
an vitnisburð um frjálsræði og
mikilfengleika Bandaríkjanna að
Mahmoud Ahmadinejad Íransfor-
seti hafi fengið tækifæri til að tjá
sig í Kólumbíuháskóla í New York.
„Ég meina, maðurinn er leiðtogi
ríkis sem styður hryðjuverk,“
sagði Bush. „Við höfum nægilegt
sjálfsöryggi til þess að leyfa honum
að koma og lýsa skoðunum sínum.
Við skulum bara vona að hann segi
sannleikann.“
Ahmadinejad kom til Bandaríkj-
anna á sunnudaginn og mun í dag
flytja ræðu á allsherjarþingi Sam-
einuðu þjóðanna. Í gær hélt hann
ræðu í Kólumbíuháskóla í New
York og sat þar jafnframt fyrir
svörum.
Í viðtali við AP-fréttastofuna
sagði Ahmadinejad að Íranar ætl-
uðu sér alls ekki að ráðast á Ísrael
né nokkurt annað land.
„Íranar munu ekki ráðast á nokk-
urt land,“ sagði Ahmadinejad í
viðtali við AP-fréttastofuna. Hann
segir að Íran hefði ávallt haft
varnarstefnu, ekki árásarstefnu og
hefði „aldrei reynt að stækka land-
svæði sitt“.
Hann sagðist ekki heldur trúa
því að Bandaríkin væri að búa sig
undir stríð við Íran. „Ég held að
slíkt tal spretti fyrst og fremst af
reiði. Í öðru lagi þjónar það kosn-
ingatilgangi heima fyrir í þessu
landi. Í þriðja lagi breiðir það yfir
mistökin í Írak.“
Sýnir styrk Bandaríkjanna
Eldur varð laus í
húsnæði fyrirtækisins Rafhitunar í
Kaplahrauni í Hafnarfirði um
klukkan 2.30 í fyrrinótt. Að sögn
slökkviliðs var tilkynnt um reyk
undan þakskeggi.
Húsið var mannlaust þegar að
var komið, en reykkafarar
fjarlægðu tvo gaskúta áður en
slökkvistarf hófst.
Eldurinn logaði í millilofti á
skrifstofu, og gekk vel að ráða
niðurlögum hans. Að sögn varð-
stjóra hjá Slökkviliði höfuðborgar-
svæðisins hefði getað farið mun
verr hefði eldurinn borist út undir
bert loft, enda mikið hvassviðri á
höfuðborgarsvæðinu í nótt.
Logaði í milli-
lofti á skrifstofu
Allri skreiðarverk-
un fyrirtækisins Samherja á
Hjalteyri hefur verið hætt. Að
sögn Gests Geirssonar, fram-
kvæmdastjóra landvinnslu
Samherja hf, er þetta fyrsta
skrefið til að bregðast við minnk-
andi veiðiheimildum í þorski en
ljóst sé að minna verði af fiski til
að vinna á næsta ári. Niðurskurð-
inum verði mætt með hagræðingu,
nýsköpun og öflugu markaðsstarfi.
Ellefu manns hafa unnið við
skreiðarverkunina á Hjalteyri og
mun öllum bjóðast vinna í öðrum
deildum fyrirtækisins.
Samherji bregst
við niðurskurði
Gordon Brown, for-
sætisráðherra Bretlands, segir að
Bretar muni áfram vera nánir
bandamenn Bandaríkjanna í bar-
áttunni gegn hryðjuverkamönnum.
Hann sagði þó engan veginn nóg að
beita valdi í þeirri baráttu.
Í baráttuna þarf „meira en hern-
aðarafl og við munum vinna með
bandamönnum okkar að því að ein-
angra öfgafólk og við munum sigra
í baráttunni um huga og hjörtu
fólks,“ sagði Brown. Þetta sagði
Brown í fyrstu ræðu sinni á flokks-
þingi breska Verkamannaflokksins
eftir að hann tók við leiðtogaemb-
ættinu af Tony Blair í sumar.
Ekki nægir að
beita hervaldi