Fréttablaðið - 25.09.2007, Síða 8
Traust eignastýring Íslenska lífeyrissjóðsins
Lífeyrissparnaður er einn verðmætasti sparnaðurinn þinn og því er mikilvægt að ávaxta
hann rétt. Með traustri eignastýringu hefur Íslenski lífeyrissjóðurinn náð góðri ávöxtun
fyrir viðskiptavini sína og þannig tryggt þeim fjárhagslegt frelsi við starfslok.
Hafðu samband við ráðgjafa okkar í 410 4040 og fáðu nánari upplýsingar
um Íslenska lífeyrissjóðinn.
G
O
TT
FÓ
LK
20%
18%
16%
14%
12%
10%
8%
6%
4%
2%
0%
Líf I
16 - 44 ára
Líf II
45 - 54 ára
Líf III
56 - 64 ára
Líf IV
65 ára og eldri
Nafnávöxtun sl. 5 ár
Nafnávöxtun sl. 12 mán.
Nafnávöxtun á ársgrundvelli miðast við 31. júlí 2007.
PÍTUBAKKI 2.390 kr.
ÁVAXTABAKKI
2.480 kr.
Vínber, melónur, ananas, appelsínur,
perur og fleiri gó›ir ávextir.
N†TT
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
*Frí heimsending gildir a›eins ef panta›ir eru 3 e›a fleiri bakkar.
Tikka masala kjúklingur,
jöklasalatog pítubrau›.
Reykt skinka, eggjasalat,
jöklasalat og pítubrau›.
Nánari uppl‡singar á somi.is
N†TT
„Ég hef orðið fyrir dónaskap frá viðskiptavin-
um fyrir að tala ekki íslensku hér í bakaríinu,“
segir Martina Barandum, háskólanemi frá Austur-
ríki og starfsmaður í bakaríinu Sandholti.
Sandholt hefur nú í fyrsta skipti ráðið til sín
starfsfólk í afgreiðslu sem talar ekki íslensku. Auk
Martinu vinna þar tveir starfsmenn frá Póllandi og
Frakklandi. Martina segir meirihluta viðskiptavina
kurteisan en þó finni hún fyrir pirringi annað
slagið. „Tvisvar hefur það komið fyrir að fólk
hefur gengið út þegar það kemst að því að ég tala
ekki íslensku. Mér leið mjög illa yfir því og fannst
það niðurlægjandi.“
Saga Kjartansdóttir, starfsmannastjóri hjá
Sandholti, segir það hafa komið fyrir að fólk sem
gæti eflaust talað ensku geri það ekki og bíði
frekar eftir afgreiðslu hjá íslenskumælandi
afgreiðslufólki. „Við höfum
tekið eftir þessu meira hjá
eldra fólki. Við höfum
brugðist við með kurteisi og
reynt að halda öllum
góðum,“ segir Saga.
Einar Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðahúss,
segist hafa heyrt að útlensku
afgreiðslufólki finnist
óþægilegt að fá harkalegt
viðmót frá viðskiptavinum.
Hann bendir viðskiptavinum
á að oft og tíðum skilji
afgreiðslufólkið eitthvað í
íslensku og er hugsanlega í íslenskunámi. „Þá má
hugleiða að ef viðkomandi afgreiðslumanneskja
skilji ekki í fyrstu þá þarf ekki endilega að tala
hærra og endurtaka sig heldur umorða eða nota
einfaldara mál.“
Einar bendir á að það sé eitt prósent atvinnu-
leysi á Íslandi og því mikil umframeftirspurn eftir
starfsfólki. „Hver og einn getur hjálpað til með því
að sýna vinsamlegt viðmót og aðstoða frekar
viðkomandi við að læra eitt eða tvö orð.“ Einar
segir menn oft gleyma sér í amstri dagsins í stað
þess að hugsa til lengri tíma hvernig hægt sé að
bæta samfélagið. „Í staðinn fyrir að pirra sig á
einhverju ástandi er betra að hugsa hvað maður
sjálfur getur gert til að hjálpa til.“
Útlensku starfsfólki
sýndur dónaskapur
Algengt er að viðskiptavinir sýni erlendu afgreiðslufólki harkalegt viðmót ef það
talar ekki íslensku og gangi jafnvel út. Austurrískri afgreiðslustúlku segist líða
mjög illa yfir því. Engar eru tölur til um útlendinga í afgreiðslustörfum hjá VR.