Fréttablaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 11
Kennarar í almenn-
ingsskólum í Búlgaríu lögðu niður
störf í gær í kjölfar vikulangra
mótmæla í höfuðborginni Sofíu.
Kennarar krefjast 100 prósenta
launahækkunar og að framlag til
menntamála verði að minnsta
kosti fimm prósent af vergri
landsframleiðslu.
Meðallaun almenningsskóla-
kennara í Búlgaríu eru tæpar
20.000 krónur á mánuði. Stjórn-
völd hafa boðið tvær fimmtán
prósenta launahækkanir í janúar
og júlí næstkomandi.
Menntamálaráðherra Búlgaríu
segir kröfur kennara „ófram-
kvæmanlegar.“
Verkfall kenn-
ara í Búlgaríu
Viðey? Himinn o
g
h
af
/
S
ÍA
-
9
0
7
1
0
9
6
Hugsaðu um heilsuna!
Svalandi,
próteinríkur
og fitulaus
Frískandi, hollur
og léttur drykkur í dós
Gamla góða
Óskajógúrtin
– bara léttari
Silkimjúkt,
próteinríkt
og fitulaust
Fitusnauðar
og mildar ab-vörur
– dagleg neysla stuðlar að bættri
heilsu og vellíðan
Ban Ki-moon,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, segir að „tíminn fyrir
efasemdir sé
liðinn“ og nú sé
aðgerða þörf til
að draga úr
útblæstri
gróðurhúsaloft-
tegunda. Þetta
sagði hann á
harla óvenju-
legum leiðtoga-
fundi á vegum
Sameinuðu
þjóðanna, sem
hófst í New York í gær.
Þangað mæta forsetar og
forsætisráðherrar um 80 ríkja til
að ræða hlýnun jarðar og finna
leiðir til að draga úr henni. Einnig
mættu á fundinn þeir Arnold
Schwarzenegger, ríkisstjóri
Kaliforníu, og Al Gore, fyrrver-
andi varaforseti Bandaríkjanna.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti tekur þó ekki þátt í samkom-
unni, en hann ætlar að halda sinn
eigin leiðtogafund síðar í vikunni.
Þangað er boðið leiðtogum þeirra
sextán ríkja sem mest menga.
Hlýnun ekkert
vafamál lengur