Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.09.2007, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 25.09.2007, Qupperneq 13
[Hlutabréf] Jean-Claude Trichet, banka- stjóri evrópska seðlabank- ans, gagnrýndi opinbert fjáraustur franska ríkisins harðlega í útvarpsviðtali á sunnudag. Hann sagði eyðslu Frakka áhyggjuefni og yrðu þeir að endurskoða stefnu sína. Allt stefnir í að ekkert annað land eyði jafnmiklu í hlutfalli við landsframleiðslu innan Evrópusambandsins á árinu, að mati Trichets. Í síðustu viku sýndu opin- ber gögn fram á að fjárlaga- halli franska ríkisins hefði aukist á milli ára. Í kjölfarið sagði Francois Fillon, for- sætisráðherra Frakka, að fjárhagsstaða franska ríkis- ins væri afar slæm. Stjórn- völd stefndu að því fyrir nokkru að eyða fjárlagahall- anum á næstu þremur árum. Þau hafa nú fært markmiðið aftur til 2012 í skugga aðstæðna á fjármálamörkuð- um. Ríkisstjórn Frakklands hefur gagnrýnt stýrivaxta- stefnu Evrópubankans upp á síðkastið og segir hátt vaxta- stig hafa leitt til minni hag- vaxtar í Frakklandi auk þess sem sterk evra hafi komið harkalega niður á frönskum útflutningi. Frakkar eyða of miklu Stjórn Alfesca fékk á aðalfundi félagsins í gær heimild til að skrá hlutafé félagsins í evrum. Miðað verður við kaupgengið 87,04 á hlut við skráningu hlutafjárins í evrur og mun eitt atkvæði fylgja hverri evru í hlutafé í stað hvers evrusents í hlutafé. Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Alfesca, segir þetta verða gert eins fljótt og hægt er. „Við erum klár í slaginn og skráum hlutaféð þegar kauphöllin er tilbúin,“ segir hann og vísar til þess að málið hafi strandað á tækni- legum örðugleikum við skráninguna hjá Kauphöll Íslands. Straumur ætlaði að skrá hlutafé sitt í evrum frá fimmtudegi í síðustu viku en því var frestað eftir að Seðlabankinn gerði lögfræði- legar og tæknilegar athugasemdir við skráninguna nokkrum dögum áður en breytingin átti að taka gildi. Ólafur er samhljóða William Fall, forstjóra Straums, að evruskráningin muni auka áhuga erlendra fjárfesta á þeim félögum sem skrái hlutafé sitt í evrum. Stjórnendur Alfesca hafi fundið fyrir því á kynningarferðum á dögun- um í Ósló í Noregi og í Lundúnum í Bretlandi. Viðbrögðin voru afar góð, að sögn Ólafs. „Þegar kauphöllin verður hluti af stærra svæði verður Alfesca sýnilegra og því gerum við okkur vonir um að fleiri erlendir aðilar komi inn í hluthafahópinn,“ segir hann. Alfesca reiðubúið fyrir evruskráningu Félög í eigu Íslendinga hafa tryggt sér 13,5 prósenta eignarhlut í bresku verslanakeðjunni Deben- hams. Baugur Group á 6,7 prósent og Unity Investment, sem er í eigu Baugs, FL Group og Kevin Stan- ford ráða yfir 6,8 prósentum. Til- kynnt var í ágúst síðastliðnum að þessi félög réðu yfir 11 prósenta eignarhlut í Debenhams. Frá sumarbyrjun hafa þau verið að bæta við sig hlutum í félaginu. Í hálffimm fréttum Kaupþings í gær sagði að verðmæti 13,5 pró- senta hlutar væri tæpir fjórtán milljarðar króna. Gengi félagsins hefði lækkað mikið á þessu ári. Athyglin beindist meðal annars að því hvað stjórnendur Baugs myndu gera. Í júlí hefði félagið til- kynnt að það hygðist ekki gera yfirtökutilboð í Debenhams. Það bindi hendur Baugsmanna fram í janúar. Kaupa meira í Debenhams

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.