Fréttablaðið - 25.09.2007, Síða 14

Fréttablaðið - 25.09.2007, Síða 14
greinar@frettabladid.is Hvað er verið að byggja hérna á móti?“ spurði matargestur á sunnudagskvöld. Ég hrökk aðeins við, því sem sannur borgarbúi vil ég alls ekki láta byggja á móti hjá mér. Það má þétta byggð, ég er voða hrifin af því, en alls ekki í næsta nágrenni við mig. Hér er allt eins og það á að vera. Ég leit út um gluggann og sagðist halda að þetta ættu að vera blómaker á nýja torginu við kirkjuna. Ég er nýbúin að vera hjá fótaaðgerðafræðingnum mínum og hefði því verið búin að frétta ef eitthvað stæði til. Ég viðurkenni að þó ég hafi sérstakan áhuga á hverfinu mínu og á skipulagsmálum almennt hafa einstaka auglýsingar um breytt skipulag á ýmsum reitum samt farið fram hjá mér. Iðulega hafa það verið vökulir grannar sem hafa vakið mig upp af Þyrnirósarsvefni mínum. Ef ég sæi um kynningarmálin hjá borgarskipulagi myndi ég endurskoða vinnubrögð mín því það er ekki einleikið hvað þetta fer fram hjá fólki, það er ekki fyrr en vinnuvélarnar mæta sem við áttum okkur á því að eitthvað standi til. Þannig hafði ég samband við kirkjuna þegar stórvirkar vélar fóru að ryðja trjám um koll á túninu fyrir framan hana. Ég hélt að bílstjór- inn hefði misst stjórn á tækinu, en fékk þær upplýsingar að til stæði að leggja hér tilkomumikið torg. Hafi það farið í grenndar- kynningu fór hún fram hjá mér. Ég skrifaði undir mótmælaskjal gegn turninum á Grand hóteli eftir að hann hafði farið í grenndarkynningu þannig að mótmæli voru of seint fram borin og ekkert hægt að gera. Ég vildi að grannar mínir nytu sólar alla daga og þó ekki síður koma í veg fyrir að annað eins ferlíki rísi í kjölfarið á Blómavalslóðinni. Turninn á Grand hóteli var sagður kallast á við Hátúnsblokk- irnar og turninn á Blómavalslóð- inni verður sagður kallast á við nágranna sinn Herra Grand. Eins og ég sakna Blómavals þá get ég samglaðst íbúum í Sigtúni sem segja að þetta sé allt annað líf því það dró svo mikið úr umferð í götunni þegar verslunin flutti. Hverfisbúar höfðu kannski mestar áhyggjur af sólinni en okkur barst skyndilegur liðsauki þegar farið var að ræða um réttindi fólks til útsýnis. Allir sem aka Kringlumýrar- braut í átt að sjónum hafa misst töluvert af Esjunni. Það er líklega tímabært að standa vörð um Esjuna eða réttara sagt um þann „rétt“ fólks að geta séð til hennar sem víðast. Við sem kjósum að búa í borg afsölum okkur kannski útsýninu út um gluggann hjá okkur, en við hljótum þó að mega sjá Esjuna án þess að þurfa að fara upp í Hallgrímskirkjuturn eða niður á Sæbraut. Háhýsalengjan við strandlengjuna og turninn á Grand hóteli þrengja sjóndeildar- hring borgarbúa. Fótaaðgerðadaman, sem býr í hverfinu og gjörþekkir það, tjáði mér að við yrðum að standa vaktina því það væri þrengt að Laugardalnum úr öllum áttum. Ef heldur áfram sem horfir verður ekkert eftir nema Grasagarður- inn og túnið kringum Þvottalaug- arnar. Ég ver drjúgum tíma í Laugardalnum. Ég geng staf- göngu um hann að minnsta kosti tvisvar í viku, dæturnar æfa skauta, skylmingar og fótbolta þar og sjálf hef ég verið við- skiptavinur Lauga frá opnun. Laugardalurinn iðar af lífi alla daga, börn að leik og fólk á göngu, hjólum eða skokkandi. Það eru fleiri en íbúar hverfisins sem nýta sér þetta fallega útivistarsvæði enda er það í miðri borginni. Mikil umferð fylgir Laugum þannig að Reykjavegurinn er oft erfiður gangandi vegfarendum á leið í dalinn. Íbúar við Laugateig komast varla á bíl út úr götunni, að minnsta kosti ekki þeir sem ætla að beygja til vinstri. Reykjavíkurborg gæti haft dágott upp úr því að hafa mann alla daga við Lauga til að sekta þá sem leggja ólöglega, því margir virðast helst vilja aka alveg að hlaupabrettinu og leggja því upp á gangstétt við innganginn. Ég er mjög ánægð með Laugar og með gömlu og góðu Laugardalslaug- ina. Ég verð þó að taka undir með vökulum granna mínum að mér er til efs að það verði Laugar- dalnum til framdráttar að leggja tjaldstæðið undir heilsuhótel. Það er frábært að hafa tjaldstæði inni í miðri borg og það fer vel að hafa það í nágrenni við Farfugla- heimilið. Ég geng þarna bæði sumar og vetur. Á sumrin er það sem kallast iðandi mannlíf og þykir mjög eftirsóknarvert í miðbænum að degi til og á vetrum er þarna kærkomið autt svæði þar sem börn geta leikið sér eða kerlingar gengið við stafi. Hér með mótmæli ég því að heilsuhótel komi í stað tjaldstæð- isins og treysti því að vinir Laugardalsins, ekki síst nágrann- ar hans sem sitja í borgarstjórn, standi vörð um Laugardalinn. Verndum Laugardalinn Ingi F. Vilhjálmsson reiðir hátt til höggs í nýju menningarblaði Fréttablaðsins á sunnudaginn. Ingi hefur lesið Aldingarðinn eftir Ólaf Jóhann Ólafsson og Valentines eftir sama höfund, og komist að því að þetta er sama bókin! Það hefur hingað til ekki verið sérstakt launungarmál, en Ingi kemst að þeirri „huglægu niðurstöðu“ að Ólafur Jóhann hafi „hugsað“ sumar setningarnar á ensku en „þýtt“ þær svo á íslensku. Nú er það svo að Ólafur Jóhann vinnur náið með þýðanda sínum, Victoriu Cribb, og hugsar þá vonandi á ensku. Hitt get ég staðfest, og þar með létt af Inga F. „tilfinningu“ hans um annað, að Aldin- garðurinn er skrifaður á íslensku. Ingi F. hefur sjálfsagðan fyrirvara á lestri sínum, segir að þau málfarsdæmi sem hann taki úr bókunum séu „yfirleitt ekki röng, aðeins óíslensku- leg og óþjál“. Þeim mun furðulegri eru hinar hlálegu ályktanir sem hann hrapar að í lokin. Það er rétt hjá Inga F. að þau dæmi sem hann tekur úr bókinni votta ekki um rangt mál. Og fjarri því. Það er ekkert rangt við að segja „markaðurinn tók dýfur“,„maður panikerar og frýs“, eða að stúlka „brosi hálfu brosi“ eins og hún hefði getað „hlegið hvellum hlátri“. Það vill svo til að sjálfur er ég „gamall keppnismað- ur á skíðum“ og gott ef ég var ekki líka einhvern tíma sagður „fuglslegur“, án þess að ég áttaði mig á því að þetta væri enska. Ingi F. misskilur líka orðalagið þar sem því er lýst þegar „ský líða fyrir mánann“. Vissulega merkir orðasambandið „að líða fyrir e-ð“, að þjást vegna einhvers, en í sögu Ólafs er sögnin „að líða“ notuð í merkingunni „að svífa“, og með forsetningunni „fyrir“ í stað „um“. Þessi skipti á forsetningum hafa mér vitanlega ekki verið bannfærð í íslensku. Hingað til hefur Ólafi Jóhanni fremur verið lagt til lasts að skrifa vandað mál í bókum sínum. Aðfinnslur Inga F. eru því nýlunda fyrir Ólaf Jóhann en lengi skal manninn reyna. Hitt er alveg ljóst að með svona „rökfærslum“ gæti Ingi F. leitt undir sína fallöxi ekki bara þorra íslenskra rithöfunda heldur einnig flesta þá sem skrifa á íslensku. Höfundur er rithöfundur og fyrrverandi útgáfustjóri sem gaf meðal annars út Aldingarðinn. Að gefnu tilefni U ndanfarna daga hafa ýmsir orðið til þess að velta fyrir sér hvort kominn sé tími til að auka vægi enskunnar í íslensku samfélagi. Innan fjármálageirans hafa heyrst hugmyndir um að taka ensku upp sem vinnumál og á laugardag skrifaði Ágúst Ólafur Ágústsson, varafor- maður Samfylkingarinnar, hugleiðingu í Morgunblaðið þar sem kom fram að rétt væri að „huga að tvítyngdri stjórnsýslu, íslenskri og enskri“. Yfir þessu mætti eflaust súpa hveljur ef þetta væri ekki nú þegar nákvæmlega sá veruleiki sem starir í augun á okkur í gráum hversdagsleikanum. Eða réttara sagt glymur í eyrunum á okkur á hverjum degi; þegar við förum út í búð að versla, á kaffihús að panta okkur drykk, í leik- og grunnskólana að sækja börnin okkar eða á sjúkrahúsin og elliheimilin að heimsækja þá sem eru veikir eða gamlir. Alls staðar mætir okkur fólk sem hefur aðra tungu en þá íslensku að móðurmáli og enskan er gjarnan það samskiptatæki sem gripið er til. Ekki er langt síðan sigldir Íslendingar gátu sagt sögur af því að hafa fengið far með túrbanklæddum leigubílstjórum í New York sem voru illa mæltir á tungu heimamanna, og þótti merki um fjöl- breytileika heimsborgarinnar. Hverjum hefði dottið í hug að svip- uð staða gæti komið upp hér? Umheimurinn hélt sem sagt í innrás til Íslands á sama tíma og athafnamennirnir fóru í sína útrás. Og vissulega hefur þetta valdið ákveðnum vanda. Það skilja ekki allir, í orðsins fyllstu merkingu, breytingarnar. Sá sem hér skrifar var staddur í bakaríi fyrir skömmu þegar inn kom maður og vildi kaupa kjallarabollu. Afgreiðslustúlkan skildi ekki óskina og enskan lék ekki á tungu mannsins, sem var kominn yfir miðjan aldur. Viðskiptin leystust sem betur fer friðsamlega en þeim var ákveðin vorkunn hvort sínum megin við afgreiðslu- borðið. Hvað er eiginlega kjallarabolla á ensku? „A cellar bun“? Í raun og veru er málið ekki lengur spurningin um hvort taka skuli upp ensku í auknum mæli – stundin fyrir þá ákvörðun fór fram hjá okkur fyrir allnokkru án þess að við hefðum nokkuð um hana að segja – heldur hvernig við bregðumst við komu hennar. Ein leið er með geðvonsku og leiðindum eins og útlendingar í þjónustustörfum mega þola á hverjum degi og sagt er frá í Frétta- blaðinu í dag. Hin er með jákvæðni og vissum skammti af þakklæti. Staðreyndin er sú, og nauðsynlegt er að allir hafi hana á hreinu, að ef ekki væru hér þúsundir útlendinga að störfum þá væri Ísland óstarfhæft. Í því samhengi er líka rétt að ítreka að útlendingar leika meðal annars lykilhlutverk í umönnun aldraðra og barna, og þau störf eru svo sannarlega límið í samfélagi okkar. En auðvitað tala ekki allir ensku og samskiptin geta orðið snúin. Þá er gott að hafa á bak við eyrað að útlendingarnir eru heldur ekki allir sterkir á svellinu í enskunni. Svo er líka hægt að áorka mörgu með bendingum og vænum skammti af brosi. Eða eins og Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahússins orðar það: „Hver og einn getur hjálpað til með því að sýna vinsamlegt viðmót og aðstoða frekar viðkomandi við að læra eitt eða tvö orð.“ Tvítyngdur hversdagsleiki

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.