Fréttablaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 17
Dagana 29. september til 2. október mun
Daninn Stanley Rosenberg halda námskeið hjá
Félagi höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara um
aðferðir til að hjálpa einhverfum úr innilokun
sinni og koma þeim til félagslegrar virkni.
Gunnar Gunnarsson sálfræðingur hefur sérhæft
sig í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun og unnið
við fagið samhliða sálfræðinni í tíu ár. Hann segir
höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnarann Stanley
Rosenberg telja að svipaðar streitutengdar, líf-
fræðilegar forsendur geti legið að baki einhverfu,
þunglyndi og öðru firrtu ástandi.
„Stanley vill ekki meina að einhverfa sé meðfædd
heldur verði hún langoftast til við eitthvert áfall
hvort sem það er fyrir fæðingu, í fæðingu eða eftir
fæðingu og telur hann jafnvel að bólusetningar geti
valdið því að börn hrökkvi svona inn í sig,“ segir
Gunnar og bætir því við að það sama geti gerst
þegar fullorðnir verði fyrir áfalli. „Þá getur fólk
hrokkið svona inn í sig með þeim afleiðingum að
það hættir að geta tjáð sig en það er yfirleitt kennt
við mjög djúpt þunglyndi.“
Gunnar segir aðferðina til að losa fólk út úr þessu
ástandi nást með höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfn-
un. „Aðferðin byggist á því að virkja á ný höfuð-
taugarnar sem stjórna heyrn, sjón, andlitsvöðvum,
tungu og fleiru til að opna fyrir samskipti á ný,“
segir Gunnar og nefnir sem dæmi drenginn William
sem hefur náð sér ótrúlega vel af einhverfu. „Þótt
maður geti aðeins merkt að hann sé stirður í tali þá
er hann í framhaldsmenntun og á kærustu þannig
að hann er farinn að lifa lífinu.“
Námskeiðið er öllum opið en Gunnar segir þá
ganga fyrir sem hafa lært höfuðbeina- og spjald-
hryggsjöfnun. Nánari upplýsingar má finna á vef-
síðunni www.cranio.cc.
Út úr einhverfunni
• Bútasaumsefni
• Saumavélar
• Námskeið
Saumahelgar !!!
Örfá sæti laus
12.—14. Október.
Skráðu þig strax í síma
894-7979. Kennsla,
matur, gisting og
frábær félagsskapur
Höfum opnað í Reykjavík
Kleppsmýrarvegi 8 Reykjavík
Eyrarvegi 2a Selfossi
Símar: 533-5880 /482-4241