Fréttablaðið - 25.09.2007, Síða 18

Fréttablaðið - 25.09.2007, Síða 18
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO mælir með brjóstagjöf til tveggja ára aldurs og það gera íslenskar ljósmæður líka, þótt enn virðist fast stimplað í ís- lenska þjóðarvitund að eitthvað ósæmilegt sé við mjólkandi mæður barna sem orðin eru ársgömul. „Kostirnir við að halda áfram brjóstagjöf eftir að barnið er orðið eins árs eru ótvíræðir og margir,“ segir Katrín Edda Magnúsdóttir, hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir og brjóstagjafarráðgjafi á kvennadeild Landspítalans. „Því lengur sem kona hefur barn á brjósti minnka líkurnar á brjósta,- legháls- og eggjastokkakrabba- meini, auk þess sem hún minnkar til muna hættuna á að fá beinþynningu. Barnið nýtur þess að fá áframhald- andi vörn gegn ýmsum sjúkdómum, og eftir því sem barn er lengur á brjósti styrkist ónæmiskerfi þess meira. Móðurmjólkin hefur þá enn mikið næringargildi, því þótt börn séu farin að borða alla fæðu um eins árs aldur þurfa þau enn á mjólk að halda og alltaf er það betri kostur að gefa þeim brjóstamjólk en kúa- mjólk. Móðurmjólkin er hin full- komna fæða því samsetning hennar aðlagast jafnóðum aldri barnsins,“ segir Katrín Edda, en mörgum er innprentað að brjóstagjöf skuli hætt í síðasta lagi um eins árs aldur. „Það liggur mikið að baki þessar- ar yfirlýsingar Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar og að sjálfsögðu horfum við til sömu markmiða. Í náttúruumhverfi mjög stórs hluta mannkyns er eðlilegt að mæður séu með börn á brjósti til þriggja til fjögurra ára aldurs, eða þar til þau venja sig sjálf af. Í því samhengi eru tvö ár ekkert ógurlegur tími, en maður þorir varla að horfa lengra því fólki stendur ógn af framlengdri brjóstagjöf,“ segir Katrín Edda og talar um skápabrjóstagjöf. „Það er þegar konur eru hættar að segja öðrum frá því að þær séu enn með barnið á brjósti vegna nei- kvæðs þrýstings frá fjölskyldunni, vinum og þjóðfélaginu öllu. Það er ótrúlegt hvað fólk getur verið leið- inlegt við þessar konur, en miklu réttara væri að setja þær á stall. Börnum er eðlislægt að venja sig af brjósti fái þau óheftan aðgang að brjósti móður sinnar við eðlilegar aðstæður, þótt í langflestum tilfell- um velji konur að venja börn sín af brjósti á löngum tíma, því það virð- ist ákveðin tilhneiging hjá konum að vilja stjórna öllu frá A til Ö,“ segir Katrín Edda og leggur áherslu á að brjóstagjöf sé aldrei bara spurning um næringu, því hún sé svo margt annað líka. „Stór hluti brjóstagjafar er nánd og hinn andlegi þáttur. Sumir halda því fram að börn verði ósjálfstæð og of háð móður sinni, en þvert á móti koma þau út sem mun sjálfstæðari einstaklingar en ella. Þetta er engin tilgáta heldur niðurstöður rann- sókna,“ segir Katrín Edda og tekur fram að brjóstagjöf sé alltaf einka- mál móður og barns. „Þetta er þeirra einkamál, hvern- ig sem á það er litið. Það er geysi- lega erfitt að eiga við fordóma ann- arra gagnvart konum sem kjósa að halda áfram að ala börn sín á brjósti eftir eins árs aldurinn, en mikilvægt að styðja þær andlega og félagslega. Hver og ein kona verður hafa trú á sjálfri sér og göfuga sjálfsmynd, ásamt því að vera sterk til að þola mótlætið. Mjólkandi mæður ættu hvarvetna að fá viðurkenningu fyrir að gera það besta sem mögulegt er fyrir barn sitt,“ segir Katrín Edda og talar um kynslóðabil í skoðana- skiptum. „Það er ekki langt síðan allt annar andi var í þjóðfélaginu gagnvart brjóstagjöf, en þá var því virkilega trúað og treyst að þurrmjólk stæði jafnfætis brjóstamjólk. Nú er þekk- ingin meiri og alltaf að koma fram nýjar upplýsingar og rannsóknir sem styðja lengri brjóstagjöf. Og í dag er sem betur fer fullt af ömmum og langömmum smábarna sem styðja dætur sínar í gegnum þykkt og þunnt. Það finn ég vel í mínu starfi.“ Mjólkandi mæður á stall Vesturlandsvegur Reykjavík Mosfellsbær Húsasmiðj an Nóatún Toppskórinn Margt Smátt Vínlandsleið Sport Outlet Vínlandsleið 2–4, efri hæð Grafarholt PUMA ÚLPA blá eða svörtVerð áður: 9.990 Stærðir: 116–XXL e inkatímar · hóptímar hugræn teygjuleikfimi tai chi · kung fu S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w. h e i l s u d r e k i n n . i s

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.