Fréttablaðið - 25.09.2007, Page 19

Fréttablaðið - 25.09.2007, Page 19
Sú venja hefur skapast að tileinka októbermánuð konum með brjósta- krabbamein. Hefð þessi á rætur að rekja til Charlotte Haley sem byrj- aði á því að framleiða og selja fjólu- bláa borða til styrktar bandarísku krabbameinsmiðstöðinni (The National Cancer Institute) fyrir lið- lega fimmtán árum og Evelyn Lau- der sem breytti litnum í bleikan (Pink Ribbon) og markaðssetti í snyrtivöruverslunum fyrirtækis síns til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini. Í framhaldi af þessu hefur hinn bleiki borði orðið einkennistákn hinna ýmsu samtaka áhugafólks um baráttu gegn brjósta- krabbameini. Helgun ákveðins dags og mánaðar er einkum til að vekja athygli á brjóstakrabbameini og auka meðvitund kvenna og almennings á sjúkdómnum og örva konur þannig til sjálfsskoðunar, nýta sér Leitar- stöðvar og fara í brjóstamyndatöku. Jafnframt er tilgangurinn að safna fjármagni til rannsókna á orsök og meðferð brjóstakrabbameina og síðast en ekki síst til að styðja við konur og fjölskyldur kvenna með brjósta- krabbamein. Í ár er mánudagurinn 22. október hinn eiginlegi alþjóðlegi dagur brjóstakrabbameins og er meginþema hans að örva hreyfingu og líkamsrækt meðal kvenna, en sýnt hefur verið fram á að regluleg hreyfing minnkar líkur á brjósta- krabbameini. Tíðni brjóstakrabba- meins hefur hækkað síðastliðna áratugi og ein af hverjum níu til tíu konum í hinum vestræna heimi fær brjóstakrabbamein. Þrátt fyrir hærri tíðni hafa lífslíkur kvenna með brjóstakrabbamein aukist verulega undanfarinn áratug vegna snemmgreininga og aukinna mögu- leika í eftirmeðferð. Eftirfarandi krabbameinslæknar ákváðu í tilefni af brjósta- krabbameinsdeginum að skrifa ellefu stuttar greinar um sjúkdóminn og munu þær birtast í Fréttablaðinu næstu vikurnar. Fullorðnir Bretar eru svo tregir til líkamsræktar að yfirvofandi hætta á ótímabærum dauða dugar engan veginn til að koma þeim upp úr sófunum. Þetta kemur fram í niðurstöðum breskrar rann- sóknar á vegum British Heart Foundation, þar sem aðeins 38 prósent aðspurðra sögðust hreyfa sig meira ef lífið lægi við. Sérfræðingar BHF hafa varað við að hreyfingarleysi sé lífs- hættulegt öllum; einnig þeim sem eru í kjörþyngd. Hreyfing og offita séu tveir ólíkir áhættuþætt- ir, því þótt menn séu grannir auki þeir hættu á krabbameini og hjartasjúkdómum með hreyfing- arleysi. Rösklegur göngutúr reyndist vinsælasta hreyfingin meðal þeirra 2.100 sem spurðir voru og kom á undan dansi, sundi og ferð á líkamsræktarstöð. Aðeins fjögur prósent sögðust njóta þess að hreyfa sig. Þriðjungur sagðist mundu æfa meira ef þeir sæju af sér niðrandi mynd eða heyrðu útundan sér að þeir væru feitir, en í samanburði sögðust aðeins þrettán prósent karla og sjö prósent kvenna stunda hreyfingu til að viðhalda heil- brigði hjartans. Afsakanir fyrir hreyfingarleysi voru ávallt tiltækar og sveifluðust frá tímaleysi til slæmrar veður- spár. BHF, sem nú hrindir af stað herferð til að hvetja fólk til þrjá- tíu mínútna hreyfingar á dag, stað- festir að á korters fresti deyi einn Breti vegna hreyfingarleysis og því sé vandamálið orðið dauðans alvara. Geta drepist úr leti YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, s. 5885711 og 6946103 YOGA YOGA YOGA Líkamsæfingar, öndunaræfingar slökun og hugleiðsla Sértímar fyrir barnshafandi og kraftyoga Allir yoga unnendur velkomnir www.yogaheilsa.is • yogaheilsa@yogaheilsa.is 30. september 2007 WORLD HEART FEDERATION® A H E A R T F O R L I F E Co-sponsored by: Heilbrigt hjarta með samvinnu Þema Alþjóðlega hjartadagsins í ár heilbrigt hjarta með samvinnu hvetur fólk til að vinna saman að því að skapa heilbrigt samfélag án hjartasjúkdóma. Hornsteinar samfélagsins svo sem fjölskyldan, skólarnir, vinnustaðirnir og félagasamtök stuðli að reyklausu umhverfi, reglubundinni hreyfingu og bættu mataræði. Stöndum saman og tökum þátt í Alþjóðlega hjartadeginum þann 30. september. W or ld He ar tF ed er at io n. © Lo is Gr ee nf ie ld Supported globally by: Supported locally by: kl. 18.00 Dr. Vilmundur Guðnason forstöðulæknir Hjartaverndar. Fundarstjóri – Séra Hjálmar Jónsson. kl. 18.15 Ólöf Elmarsdóttir hjúkrunarfræðingur Hjartavernd. kl. 18.30 Þórarinn Sveinsson, dósent í lífeðlisfræði við Háskóla Íslands. kl. 18.45 Ingibjörg Gunnarsdóttir, dósent í næringarfræði við Háskóla Íslands. kl. 19.30 Margrét Bárðardóttir sálfræðingur. kl. 19.45 Karl Andersen yfirlæknir Hjartarannsóknar. kl. 20.00 Hróbjartur Darri Karlsson hjartalæknir Hjartavernd. kl. 20.15 Margrét Albertsdóttir félagsfræðingur SÍBS. 27. september 2007 Hjarta dagurinn Kópavogur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.