Fréttablaðið - 25.09.2007, Síða 36
FRUMS
ÝND 28
. SEPT
EMBER
S ÓLR Ú N BRAGADÓTT IR S I GUR ÐUR F LO SASON
TÓNLEIKAR
Laugarneskirkju
mið. 26. sept. kl. 20:30
Forsala: midi.is
Klarínettuleikarinn Guðni
Franzson og píanóleikarinn
Geoffrey Douglas Madge
frumflytja tvö ný verk
eftir Atla Heimi Sveins-
son í Salnum í Kópavogi á
morgun.
Guðni Franzson hefur svo ræki-
lega sett svip á íslenskt tónlistar-
líf undanfarin ár að hann þarf
vart að kynna. Hann hefur starfað
mikið við hljómsveitarstjórnun
og tónsmíðar að undanförnu og
því ber vel í veiði að sjá hann
koma fram á einleikstónleikum.
Meðleikari Guðna er ástralski
píanóleikarinn Geoffrey Douglas
Madge, sem er einn af virtustu
píanistum samtímans. Þetta er
ekki í fyrsta skipti sem Madge
kemur fram hér á landi þar sem
hann hélt tónleika í mars 2004
ásamt Kolbeini Bjarnasyni flautu-
leikara. Enn fremur hefur hann
leikið einleik með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands og hljóðritað með
CAPUT-hópnum.
Aðspurður um tilurð þess að
þeir félagar leiki saman á tónleik-
um segir Guðni að ástæðuna megi
rekja nokkuð aftur í tímann.
„Geoffrey vann stórt verkefni
með CAPUT-hópnum fyrir nokkr-
um árum síðan. Það fór vel á með
okkur og við vorum ákveðnir í að
halda áfram að vinna saman. Atli
Heimir Sveinsson hefur lengi
vitað af Geoffrey og þegar hann
hafði veður af því að við hygðum
á frekara samstarf ákvað hann að
semja verk fyrir okkur.“
Um er að ræða tvö verk, Sónötu
fyrir klarínett og píanó og Credo,
sem Guðni segir vera sérsniðin að
einleikaraþörfum þeirra félaga.
Á efnisskrá tónleikanna eru
ekki einungis verk eftir Atla
Heimi, heldur einnig verk eftir
nokkur af athyglisverðustu tón-
skáldum seinni tíma. Flutt verða
Fjögur stykki op. 5 fyrir klarínett
og píanó eftir Alban Berg, Amic-
izia fyrir sólóklarínett eftir Ingv-
ar Lidholm og Ristur fyrir klarín-
ett og píanó eftir Jón Nordal.
Guðni segir verkin sem þeir
flytja á tónleikunum, utan frum-
sömdu tónsmíðanna tveggja, vera
hálfgerð gæluverkefni. „Þetta eru
fjölbreytt stykki, en þó er einhver
þráður sem bindur þau saman,
sérstaklega verk Atla Heimis,
Albans Berg og Jóns Nordal. Það
er einhver samhljómur með
þeim.“
Tónleikarnir fara fram, sem
fyrr segir, í Salnum á morgun og
hefjast þeir klukkan 20. Miðaverð
er 2.000 krónur.
Dulin hæðni Enid Blyton
Kl. 20
Íslensk-belgíska hljómsveitin Sjan
Áron, sem skipuð er Hilmari
Jenssyni gítarleikara, Heiðu Árna-
dóttur söngkonu, Ananta Roosens
fiðluleikara og Joachim Badenhorst
klarinettuleikara, heldur tónleika í
Fríkirkjunni í kvöld. Hljómsveitin
leikur frumsamin lög og hefjast
tónleikarnir kl. 20.
Bandaríkjamaðurinn Scott McLem-
ore leiðir tríóið Frisell Projekt á
tónleikum í Salnum í kvöld. Tríóið,
sem skartar Scott á trommum,
Róberti Þórhallssyni á bassa og
Sunnu Gunnlaugsdóttur á 30 ára
Wurlitzer rafpíanó, leikur tónlist
eftir bandaríska gítarleikarann
Bill Frisell.
Þar sem tónleikarnir eru haldnir
til heiðurs gítarleikara vekur það
athygli að slíkan hljóðfæraleikara
vantar í Frisell Projekt. „Við vild-
um ekki fara út í að herma eftir
honum, og það hefði alltaf verið
viss hætta á því ef hljómsveitin
hefði haft gítarleikara innbyrðis.
Við reynum frekar að túlka tónlist-
ina hans og útsetja hana upp á nýtt
fyrir okkar hljóðfæraskipan. Við
höfum þó lagt okkur eftir að við-
halda tilfinningunni sem er í lögun-
um hans,“ segir Sunna Gunnlaugs-
dóttir píanóleikari.
Bill Frisell er um margt sérstak-
ur tónlistarmaður þar sem erfitt
er að skilgreina tónlist hans. Hann
hefur sótt efnivið í ýmsar tónlist-
artegundir, en þó má greina í tón-
list hans sterk áhrif frá banda-
rískri þjóðlagatónlist og blús
ásamt nútímaklassík, djassi og
rokki.
„Tónlist Frisells er hálfgerður
hrærigrautur, enda hefur hann
unnið með margs konar og ólíkum
tónlistarmönnum í gegnum tíðina.
Hún fellur þó hugsanlega best
undir skilgreininguna djass, vegna
þess að í djassinum er allt leyfi-
legt. Frisell hefur sjálfur sagt í við-
tali að hann reyni að flytja tónlist
sem máir út menningarmun og
sem gerir hlustendum ómögulegt
að heyra hvort flytjendurnir eru
svartir eða hvítir, en í Bandaríkj-
unum vilja slíkar kynþáttaskil-
greiningar gjarnan loða við tón-
list,“ segir Sunna.
Tríóið hefur túlkun sína á Bill
Frisell kl. 20.00 í kvöld og er miða-
verð 1.500 kr.
Viðhalda tilfinningunni
Platan „Kona á mínum aldri“ er
komin út á vegum útgáfufyrirtæk-
isins Brunnklukkur sf. Þar syngur
Íris Jónsdóttir lög og texta eftir
Hörð Torfa, Halla Reynis og Orra
Harðarson, auk þess sem titillagið
er eftir Ingimund Óskarsson.
Upptökur og útsetningar ásamt
öllum hljóðfæraleik fyrir utan
bassa og trommur voru í höndum
Vilhjálms Guðjónssonar. Platan er
seld í Hagkaup og munu 500 krón-
ur af hverju seldu eintaki renna til
styrktar Þórdísi Tinnu Aðalsteins-
dóttur sem á í harðri baráttu við ill-
vígan sjúkdóm.
Ný plata Írisar