Fréttablaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 38
Tónlistarmaðurinn Brynjar Már Valdimarsson, eða BMV, er dottinn niður í annað sæti vinsældalista grísku útvarpsstöðvarinnar Radio 1 Serres með lag sitt In My Place, eftir að hafa setið í toppsætinu í tvær viku. Á meðal þeirra sem eru fyrir neðan Brynjar Má á listanum eru ekki ómerkari flytjendur en James Blunt, Turin Brakes, Babyshambles og Amy Winehouse. Eins og komið hefur fram í Frétta- blaðinu ætlar Brynjar að gefa út þriggja laga smáskífu í Grikklandi til að fylgja eftir vinsældum sínum þar í landi. Hugsanlega heldur hann síðan tónleika þar í framhaldinu. BMV niður í annað sæti Óhapp! er annað tveggja nýrra íslenskra leikrita sem frumsýnd voru í Þjóðleikhúsinu um helg- ina. Verkið er eftir Bjarna Jónsson, en Stefán Jóns- son leikstýrir. Frumsýningargestir voru sællegir að sjá, enda miklu að fagna þegar leik- hússtarfið hefst að nýju að hausti. Leikarinn Tom Cruise og starfslið kvikmyndarinar Valkyrie minntust þeirra Þjóðverja sem börðust gegn nasistum í síðari heimsstyrjöldinni með einnar mínútu þögn. Var athöfnin haldin áður en tökur hófust í Bendlerblock í Berlín þar sem andspyrnumennirnir voru teknir af lífi. Cruise og félögum hafði upphaflega verið meinað að taka upp þarna, það þótti ekki við- eigandi, en á endanum var banninu aflétt. Fyrst var talið að ástæðan væri sú að Cruise er fylgismaður vísindakirkjunnar en þýsk yfirvöld neituðu því. Kvikmyndin Valkyrie fjallar um hershöfðingjann Claus Graf Schenk von Stauffenberg sem var tekinn af lífi fyrir að hafa reynt að ráða Adolf Hitler af dögum árið 1944. Einnar mínútu þögn Íslenskt stjórnborð Íslenskar leiðbeiningar Stórt hurðarop 20 ára ending Eirvík kynnir sportlínuna frá Miele AFSLÁTTUR 30% Miele gæði ÞVOTTAVÉL frá kr. 99.900 Sýningar á leikritinu Pabbinn eftir Bjarna Hauk Þórsson verða haldnar í Íslensku óperunni frá og með 25. október næstkomandi. Með því að færa sig þangað má segja að Bjarni Haukur sé kominn heim aftur því leikrit hans Hellisbúinn var sýnt í Íslensku óperunni meira en tvö hundruð sinnum. Pabbinn hefur notið mikilla vinsælda síðan sýningar hófust 29. ágúst síðastliðinn. Um síðustu helgi var leikritið sýnt á Akranesi við mjög góðar undirtektir. Hefur verið ákveðið að efna til aukasýningar þar í bæ næstkomandi fimmtudag og fer miðasala fram í Pennanum. Pabbinn í Óperuna Jack White úr rokkdúettinum The White Stripes söng með átrúnaðargoði sínu Bob Dylan á tvennum tónleikum í Nashville fyrir skömmu. Á þeim fyrri sungu þeir saman lagið Meet Me in the Morning og á þeim síðari sungu þeir Outlaw Blues og One More Cup of Coffee. White, sem hefur oft sung- ið sínar útgáfur af lögum Dylans, hefur miklar mætur á meistaranum. „Ég á þrjá feður. Líffræðilegan föður minn, guð og Bob Dylan,“ lét hann eitt sinn hafa eftir sér. Söng með Bob Dylan

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.