Fréttablaðið - 14.10.2007, Page 10

Fréttablaðið - 14.10.2007, Page 10
Tilkynningar um merkisatburði má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. „Ég hef reynt að lesa dag- lega í Biblíunni, jafnvel þó að ég hafi ekki tíma fyrr en seint að kvöldi.“ Bergur Felixson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Leikskóla Reykjavíkur, fagnar sjötugsafmæli sínu í dag ásamt nánustu fjölskyldu og vinum. „Við erum búin að minnka við okkur þannig að við erum ekki með neitt rosalegt húsnæði og bjóðum bara heim þeim nánustu í dag,“ segir Bergur og bætir því við að það leggist alveg ljómandi vel í hann að komast á áttræðisald- urinn. „Ef maður hefur góða og stóra fjölskyldu, þá er maður lánsamur. Ég er líka heilsuhraustur þannig að það er ekki hægt að kvarta yfir þeim gangi lífsins.“ Bergur lét af störfum sumarið 2005 eftir þrjátíu ára starf hjá Leikskólum Reykjavíkur og hefur haft nóg fyrir stafni síðan. „Ég fór smávegis í skóla og hef verið að skrifa svolítið um leik- skólana, með áherslu á þessi þrjátíu ár sem ég var í þessu,“ segir hann. „Það var mjög góður tími og ofboðslega hröð þróun í sambandi við þessi mál. Það var margt sem gerðist, gífurleg- ar byggingar og skortur á starfsfólki,“ bætir hann við og hlær. Bergur segir ósköp gaman að horfa til baka yfir liðna tíð. „Ég fór í kúrsa í Háskólanum veturinn 2006-2007. Það voru tveir sögukúrsar, annars vegar hjá Vali Ingimundarsyni um heims- málin frá árinu 1937 og hins vegar Ís- landssaga frá sama tíma. Það var mjög skemmtilegt að fara í gegnum þetta og þetta var skemmtilegur tími. Mér fannst líka svo skemmtilegt að kynn- ast þessu háskólalífi og því frábæra unga fólki sem stundar þar nám í þús- undavís,“ segir Bergur og bætir því við að gaman sé að sjá hve góðu standi unga fólkið sé í hér á landi. Spurður hvað sé fram undan núna segir Bergur: „Það eru vonandi bara rólegheit fram undan en við höfum verið að kynnast barnabörnunum betur og meira undanfarið og að- stoða unga fólkið eitthvað við það. Svo fórum við hjónin í það á gamals aldri að kaupa okkur sumarbústað.“ Berg- ur segir eiginkonu sína, Ingibjörgu S. Guðmundsdóttur, vera mjög áhuga- sama um ræktun en lítið hafi verið um slíkt eftir að þau fluttust í blokkar- íbúð. „Við vorum svo lánsöm að detta niður á ágætis sumarbústað á hentugu verði í fyrravor þannig að það verð- ur viðfangsefni á vorin og sumrin hér eftir,“ segir hið sjötuga afmælisbarn að lokum. King hlýtur Nóbelsverðlaun Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jóna Fanney Gunnarsdóttir kjólameistari, Bólstaðarhlíð 41, lést á Droplaugarstöðum þriðjudaginn 9. október. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 18. október kl. 13.00. Jón Helgason Salóme H. Magnúsdóttir Gunnar Helgason Inga Arndís Ólafsdóttir Sigríður Halldórsdóttir Þorbjörn Gíslason barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Erlu Kristjánsdóttur hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, áður til heimilis að Einholti 7, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilis Skógarbæjar fyrir auðsýnda umhyggjusemi og alúð. Guðrún Gunnardóttir Eyvör Gunnarsdóttir Björgvin R. Leifsson Hreinn Gunnarsson Benjamín Gunnarsson Dagbjört Þórhallsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. 40 ára afmæli Í dag, sunnudaginn 14. október, verður Pétur Stóribjór 40 ára! Pétur er Man Utd aðdáandi #1 og mun hann halda upp á afmælið sitt laugardaginn 20. október þegar Aston Villa tekur á móti Manchester United. Þeir sem langar að verða boðið í afmælið hafi samband á kason@simnet.is Okkar kæri faðir, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, Baldur Björnsson dvalarheimilinu Uppsölum, áður Kaupvangi, Fáskrúðsfirði, lést fimmtudaginn 11. október. Útförin fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju föstudaginn 19. október kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Björgvin Baldursson Anna Þóra Pétursdóttir Birna Baldursdóttir Bæring Bjarnar Jónsson Hrefna Björnsdóttir afabörn og langafabörn. Elskuleg móðir okkar, Vilhelmína Sigurjónsdóttir lést á Hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 11. október. Sigrún, Þóranna, Bjargey og Halldóra Eyjólfsdætur. Okkar ástkæri Haukur Þorvaldsson matreiðslumaður, Veghúsum 31, Reykjavík, lést þriðjudaginn 2. október á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Jarðarförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 16. október kl. 13.00. Björg Jóhannsdóttir Björgvin Margeir Hauksson Agnes Björk Hauksdóttir Hermann Haukur Hauksson Auður Jónsdóttir Þorvaldur Hauksson Jóhanna Clara Jónsdóttir Jón Knútur Jónsson Eva Hillerz og barnabörnin. MOSAIK Ástkær eiginkona mín, Kristín Eggertsdóttir Búhamri 21, Vestmannaeyjum, lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 10. október síðast- liðinn. Útför auglýst síðar. Jósúa Steinar Óskarsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.