Fréttablaðið - 14.10.2007, Qupperneq 10
Tilkynningar um merkisatburði má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
„Ég hef reynt að lesa dag-
lega í Biblíunni, jafnvel þó
að ég hafi ekki tíma fyrr en
seint að kvöldi.“
Bergur Felixson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Leikskóla Reykjavíkur,
fagnar sjötugsafmæli sínu í dag ásamt
nánustu fjölskyldu og vinum. „Við
erum búin að minnka við okkur þannig
að við erum ekki með neitt rosalegt
húsnæði og bjóðum bara heim þeim
nánustu í dag,“ segir Bergur og bætir
því við að það leggist alveg ljómandi
vel í hann að komast á áttræðisald-
urinn. „Ef maður hefur góða og stóra
fjölskyldu, þá er maður lánsamur. Ég
er líka heilsuhraustur þannig að það
er ekki hægt að kvarta yfir þeim gangi
lífsins.“
Bergur lét af störfum sumarið 2005
eftir þrjátíu ára starf hjá Leikskólum
Reykjavíkur og hefur haft nóg fyrir
stafni síðan. „Ég fór smávegis í skóla
og hef verið að skrifa svolítið um leik-
skólana, með áherslu á þessi þrjátíu ár
sem ég var í þessu,“ segir hann. „Það
var mjög góður tími og ofboðslega
hröð þróun í sambandi við þessi mál.
Það var margt sem gerðist, gífurleg-
ar byggingar og skortur á starfsfólki,“
bætir hann við og hlær.
Bergur segir ósköp gaman að horfa
til baka yfir liðna tíð. „Ég fór í kúrsa
í Háskólanum veturinn 2006-2007. Það
voru tveir sögukúrsar, annars vegar
hjá Vali Ingimundarsyni um heims-
málin frá árinu 1937 og hins vegar Ís-
landssaga frá sama tíma. Það var mjög
skemmtilegt að fara í gegnum þetta
og þetta var skemmtilegur tími. Mér
fannst líka svo skemmtilegt að kynn-
ast þessu háskólalífi og því frábæra
unga fólki sem stundar þar nám í þús-
undavís,“ segir Bergur og bætir því
við að gaman sé að sjá hve góðu standi
unga fólkið sé í hér á landi.
Spurður hvað sé fram undan núna
segir Bergur: „Það eru vonandi bara
rólegheit fram undan en við höfum
verið að kynnast barnabörnunum
betur og meira undanfarið og að-
stoða unga fólkið eitthvað við það. Svo
fórum við hjónin í það á gamals aldri
að kaupa okkur sumarbústað.“ Berg-
ur segir eiginkonu sína, Ingibjörgu S.
Guðmundsdóttur, vera mjög áhuga-
sama um ræktun en lítið hafi verið
um slíkt eftir að þau fluttust í blokkar-
íbúð. „Við vorum svo lánsöm að detta
niður á ágætis sumarbústað á hentugu
verði í fyrravor þannig að það verð-
ur viðfangsefni á vorin og sumrin hér
eftir,“ segir hið sjötuga afmælisbarn
að lokum.
King hlýtur Nóbelsverðlaun
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Jóna Fanney Gunnarsdóttir
kjólameistari, Bólstaðarhlíð 41,
lést á Droplaugarstöðum þriðjudaginn 9. október.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
18. október kl. 13.00.
Jón Helgason Salóme H. Magnúsdóttir
Gunnar Helgason Inga Arndís Ólafsdóttir
Sigríður Halldórsdóttir Þorbjörn Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát
og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Erlu Kristjánsdóttur
hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, áður til
heimilis að Einholti 7, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilis
Skógarbæjar fyrir auðsýnda umhyggjusemi og alúð.
Guðrún Gunnardóttir
Eyvör Gunnarsdóttir Björgvin R. Leifsson
Hreinn Gunnarsson
Benjamín Gunnarsson Dagbjört Þórhallsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
40 ára afmæli
Í dag, sunnudaginn 14. október, verður
Pétur Stóribjór
40 ára!
Pétur er Man Utd aðdáandi #1 og mun hann
halda upp á afmælið sitt laugardaginn
20. október þegar Aston Villa tekur á
móti Manchester United. Þeir sem langar
að verða boðið í afmælið hafi samband á
kason@simnet.is
Okkar kæri faðir, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi,
Baldur Björnsson
dvalarheimilinu Uppsölum,
áður Kaupvangi, Fáskrúðsfirði,
lést fimmtudaginn 11. október. Útförin fer fram
frá Fáskrúðsfjarðarkirkju föstudaginn 19. október
kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Björgvin Baldursson Anna Þóra Pétursdóttir
Birna Baldursdóttir Bæring Bjarnar Jónsson
Hrefna Björnsdóttir
afabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar,
Vilhelmína Sigurjónsdóttir
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn
11. október.
Sigrún, Þóranna, Bjargey og Halldóra Eyjólfsdætur.
Okkar ástkæri
Haukur Þorvaldsson
matreiðslumaður, Veghúsum 31,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 2. október á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi. Jarðarförin fer fram frá
Neskirkju þriðjudaginn 16. október kl. 13.00.
Björg Jóhannsdóttir
Björgvin Margeir Hauksson
Agnes Björk Hauksdóttir
Hermann Haukur Hauksson Auður Jónsdóttir
Þorvaldur Hauksson
Jóhanna Clara Jónsdóttir
Jón Knútur Jónsson Eva Hillerz
og barnabörnin.
MOSAIK
Ástkær eiginkona mín,
Kristín Eggertsdóttir
Búhamri 21, Vestmannaeyjum,
lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 10. október síðast-
liðinn.
Útför auglýst síðar.
Jósúa Steinar Óskarsson