Fréttablaðið - 14.10.2007, Page 11
Gallery Kína er verslun í Ármúla
42 sem selur kínverska listmuni
frá mismunandi tímaskeiðum í kín-
verskri listasögu. Þar er þó boðið
upp á meira en kínverskan varning
þar sem nú eru að hefjast þar nám-
skeið í kínversku.
Námskeiðin eru tveggja tíma
námskeið í þrjú skipti þar sem
áhersla verður lögð á menningu og
sögu Kína um leið og undirstöðu-
atriði kínverskrar tungu og letur-
gerðar verða kynnt. Á námskeið-
inu verða til dæmis nokkrir list-
munir í versluninni teknir fyrir og
tákn þeirra og gerð útskýrð þannig
að allir ættu að hafa gagn og gaman
af.
Tveir kínverskir leiðbeinend-
ur munu halda námskeiðið sem fer
fram á íslensku.Námskeiðin verða
á sunnudögum og er fyrsti tíminn í
dag sunnudaginn 14. október klukk-
an 11.00 til 12.30. Frá hálfeitt til eitt
verður frjáls tími þar sem þátttak-
endum gefst færi á að spyrja leið-
beinendurna nánar um kínverska
menningu og sögu.
Þetta námskeið er tilvalið fyrir þá
sem þurfa og hafa áhuga á að kynn-
ast kínverskri menningu og vilja
læra undirstöðuatriði kínversku.
Skemmtileg leið til
að læra kínversku
Fjórði bekkur Menntaskólans að
Laugarvatni hefur í haust plant-
að rúmlega 29 þúsund trjám í landi
Gunnarsholts á Rangárvöllum.
Trén eru af nokkrum tegundum
svo sem blágreni, birki og stafafuru
og hefur gróðursetningin verið á
vegum Landgræðslu ríkisins.
Í fjórða bekk eru 19 galvaskir
nemendur sem unnu allir saman
við gróðursetninguna og lögðu
metnað í verkefnið enda er það
fjáröflun fyrir útskriftarferð
bekkjarins og jafnframt framlag
til kolefnisjöfnunar.
Menntskælingar
rækta skóg
Nýttu þér netið
Kynntu þér málið á spron.is
SILFURnet GULLnet PLATINUMnet
A
RG
U
S
07
-0
54
2
NJÓTTU
netsins!
Hamingju-
samir Ís-
lendingar
Samkvæmt rannsókn, sem gerð
var af samtökum sem kallast
New Economics Foundation and
Friends of the Earth, eru Íslend-
ingar hamingjusamastir Evrópu-
búa. Norðurlandabúar komu
hlutfallslega best út úr rannsókn-
inni og var Svíþjóð í öðru sæti og
Noregur í því þriðja. Danmörk
var einnig ofarlega á listanum, í
sjötta sæti. Könnunin náði til 30
landa innan Evrópu og var meðal
annars mæld lífsgleði Evrópubúa.
Það er spurning hvort veður hafi
haft áhrif á lífsgleði Íslendinga en
einmuna blíða ríkti hér á landi
þann tíma sem könnunin var
gerð á meðan rigndi eins og hellt
væri úr fötu á frændur okkar.
Einnig hefur verið bent á þá stað-
reynd að sífellt fleiri Íslendingar
ganga til viðskipta við SPRON
og eins og alþjóð veit er ánægjan
hvergi meiri en meðal
þeirra.
Þvílík
heppni!
Kona í Sandgerði, sem óskar
nafnleyndar, varð fyrir því óláni
nýlega að týna hundinum sínum
á ferðalagi um Norðurland. Hún
lýsti eftir hundinum í Degi og
fékk svar um hæl. Kona á bónda-
bæ í nágrenni við Grenivík lét
vita af hundi sem hafði verið
að sniglast í kringum heimili
hennar og lýsingin í blaðinu gat
átt við. Konan fékk hundinn
sinn og ákvað í framhaldinu að
koma við í versluninni Jónsabúð
á Greni-vík og fá sér bita. Hún
keypti auk þess skafmiða og
borgaði með SPRON-kortinu
sínu. Það má með sanni segja að
hún hafi verið hundheppin því
að á skafmiðanum var vinningur
upp á eina milljón. Ekki fylgir
sögunni hvað konan ætlar að
gera við peningana en það má
gera ráð fyrir að hundurinn verði
verðlaunaður á einhvern hátt.
Er nema von að viðskiptavinir
SPRON séu jafnánægðir og raun
ber vitni?
SPRONnet
Nýr hagstæður debetreikningur á netinu