Fréttablaðið - 14.10.2007, Qupperneq 22
6 sport
B rynjar Björn býr við þann munað að vera mjög fjölhæfur leikmaður og hefur hann spil-
að margar stöður á vellinum með
liðum sínum í gegnum tíðina. Með
Reading í ensku úrvalsdeildinni hefur
Brynjar Björn spilað sem miðju-
maður, miðvörður og bakvörður. Listi
hans yfir fimm erfiðustu andstæðing-
ana endurspeglar þennan fjölbreyti-
leika, enda er þar að finna vængmann
(Ronaldo), sóknarmann (Crouch) og
miðjumenn.
Brynjar einskorðaði val sitt við
leikmenn í ensku úrvalsdeildinni og
leikmenn sem eru enn að spila. „Þeir
sem eru ekki á listanum en hefðu lík-
lega verið þar eru leikmenn á borð
við Zinedine Zidane, Roy Keane og
fleiri sem ég hef spilað
gegn með landsliðinu í
gegnum árin. En þetta
eru erfiðustu leikmenn-
irnir sem ég er búinn að
spila við að undanförnu,“
segir Brynjar.
Hver er best klæddur?
Andy van der Meyde er alltaf flottur í
tauinu, spilaði með Inter á sínum tíma
og hefur heldur betur komist inn í
tískuna í Mílanó.
Hver er verst klæddur?
Phil Neville án efa. Klæðist bara
íþróttagöllum, oftast of stórum. Það
versta við þetta er að hann heldur að
hann sé best klæddur.
Hver hlustar á verstu tónlistina?
Alan Stubbs, hlustar bara á ömurlegt
heavy metal.
Hver á flottasta bílinn?
Þeir eru nokkrir flottir. Cahill og Arteta
standa upp úr, Cahill á flottan Ferrari
og Arteta á flottan Porsche.
Hver á ljótasta bílinn?
Það á eigin-
lega enginn
ljótan bíl. Við
ungu strák-
arnir eigum
ódýrustu og kannski þar af leiðandi
ljótustu?
Hver er stæltastur?
Þótt ég sé ekki mikið að horfa á aðra
í liðinu þá er Joleon Lescott mjög
köttaður.
Hver er alltaf á síðustu stundu?
Joseph Yobo. Hann gleymir sér
stundum.
Hver eyðir mestum tíma fyrir
framan spegilinn?
Victor Anichebe, vill líta vel út. Tjáir
manni oft hversu fallegur honum
finnst hann sjálfur vera.
Hver er hjátrúar-
fyllstur?
James McFadden.
Getur ekki farið út
á völl án þess að
hlusta á „I Wanna Be
(500 Miles)“ með The
Proclaimers og kyssa
mynd af William Wallace.
Hversu góður er þjálfarinn þinn í
fótbolta, á skalanum 1-10?
Þjálfarinn (David Moyes) myndi fá 5.
Hefur ekki mikinn hraða og er ekkert
rosalega teknískur.
Með Bjarna Þór Viðarssyni
ÍBÚNINGS-
KLEFANUM
PAPA DIOP
Félag: Portsmouth
Aldur: 29 ára
Líklega ekki besti
leikmaðurinn í
þessum hópi en það
er rosalega erfitt að
eiga við hann. Hann
er vel yfir 190 cm á
hæð og örugglega
yfir 100 kíló en getur
samt hlaupið upp
og niður völlinn
eins og hver annar
meðalmaður. Vegna
þess hversu stór og
sterkur hann er, þá
er erfitt að komast
nálægt honum og ná
af honum boltanum.
Svo er hann líka
mjög hættulegur í
öllum hornum og
aukaspyrnum.
STEVEN GERRARD
Félag: Liverpool
Aldur: 27 ára
Þegar hann spilar
vel spilar Liverpool
vel. Er duglegur,
bæði varnarlega
og sóknarlega, og
þess vegna mjög
mikilvægur fyrir
liðið. Þegar ég var
í Watford spiluðum
við gegn Liverpool
í undanúrslitum
deildarbikarsins þar
sem liðið var alls ekki
að spila vel. Gerrard
skoraði hins vegar
eitt mark í hvorum
leik, heima og að
heiman, og kom
þeim áfram í úrslita-
leikinn.
PETER CROUCH
Félag: Liverpool
Aldur: 26 ára
Ég spilaði einn leik
sem miðvörður á
síðasta tímabili gegn
Liverpool. Crouch
er rosalega erfiður
vegna þess hversu
stór hann er, en svo
er hann lúmskt góður
með boltann líka. Það
var alveg sama hversu
oft maður reyndi
að vinna skallabolta
– það var bara ekki
möguleiki. Í eitt
skiptið þegar hann
fékk boltann í fæturna
voru olnbogar hans
í höfuðhæð við mig.
Hann sló úr mér tönn,
labbaði framhjá mér
og skoraði.
RONALDO
Félag: Man. Utd.
Aldur: 22 ára
Hann er gríðarlega
fljótur og góður
með boltann en svo
er hann einnig stór
og sterkur. Einn af
fáum leikmönnum í
dag sem geta unnið
leiki upp á eigin
spýtur. Þó hann spili
á kantinum er mikil
hreyfing á honum og
hann kemur mikið
inn á miðjuna til að
fá boltann og skapa
sér pláss. Maður
verður bara að vona
að hann eigi slæman
dag til að eiga ein-
hverja möguleika á
móti honum.
PAUL SCHOLES
Félag: Man. Utd.
Aldur: 32 ára
Er búinn að vera einn
besti miðjumaðurinn
á England í mörg ár.
Hefur allt sem góður
miðjumaður þarf.
Heldur boltanum
vel, gefur góðar
sendingar og skorar
alltaf nokkur mörk
á hverju tímabili.
Hann er ekkert
sérstaklega fljótur en
hann hreyfir sig vel
og skapar sér alltaf
pláss þegar hann
fær boltann. Þess
vegna er mjög erfitt
að komast nálægt
honum. Einn af
mínum uppáhalds
leikmönnum.
Brynjar Björn
Gunnarsson, leik-
maður Reading í ensku
úrvalsdeildinni, er
margreyndur lands-
liðs- og atvinnumaður
sem spilað hefur gegn
mörgum af bestu leik-
mönnum heims. Sport
fékk Brynjar til að velja
þá fimm erfiðustu sem
hann þurft að kljást
við.
ERFIÐUSTU
ANDSTÆÐINGARNIR
ERLENDIR LEIKMENN
HERTAKA ENSKA BOLTANN
Enska úrvalsdeildin er alþjóðlegasta knattspyrnudeild Evrópu en 55%
leikmanna deildarinnar hafa ríkisborgararétt utan Englands. Þetta
er langhæsta hlutfall erlendra leikmanna í evrópskri knattspyrnu,
en þýska úrvalsdeildin kemur næst í röðinni með 44,8% leikmanna
ættaða frá löndum utan Þýskalands. Til samanburðar má nefna að
34,3% leikmanna spænsku úrvalsdeildarinnar eru útlendingar en hlutfallið er ekki
nema 28,9% í ítölsku Serie A deildinni. Þessar upplýsingar koma fram í árlegri skýrslu
stéttarfélags evrópskra knattspyrnumanna.
Fulltrúar íþróttamála í stjórnsýslunni í Bretlandi eru allt annað en sáttir með stöðu
mála og íhuga að grípa til aðgerða, t.d. með því að setja þak á fjölda erlendra
leikmanna í úrvalsdeildinni. Rétt er að geta þess að um er að ræða tölur frá síðustu
leiktíð, en fastlega má gera ráð fyrir að hlutfallið sé
töluvert hærra á þessu tímabili, enda voru
fjölmargir erlendir leikmenn keyptir til enskra
félagsliða í sumar. Þess má geta að aðeins
37% þeirra leikmanna sem tóku þátt í 1.
umferð ensku úrvalsdeildarinnar í ágúst
voru Englendingar. Arsenal stendur sig
sýnu best í alþjóðavæðingunni, en
tveir enskir leikmenn eru í aðalliðinu
– Theo Walcott og Justin Hoyte. Báðir
eru þeir varamenn.
Í ensku úrvalsdeildinni er að finna
leikmenn frá hverju heimshorni.
Aðalfundur í Valsmönnun hf. verður haldinn miðvikudaginn 17. október. n.k.
kl. 20:00 að Hlíðarenda.
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins og lögum um hlutafélög nr. 2/1995
2. Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins.
3. Tillaga um heimild til aukningar á hlutafé félagsins. Gert er ráð fyrir að hluthafar falli frá forkaupsrétti.
4. Tillaga um heimild stjórnar Valsmanna hf. til að selja hlutafé Hlíðarfótar ehf.
5. Önnur mál.
Hluthöfum félagsins er jafnframt boðið að vera viðstaddir formlega stofnun
styrktarsjóða Vals, sem samþykkt var að stofna á síðasta aðalfundi félagsins.
Athöfnin fer fram á Hlíðarenda og hefst kl. 19:00
Aðalfundur Valsmanna hf
Dagskrá: