Fréttablaðið - 14.10.2007, Qupperneq 84
Handknattleiksmaðurinn Jaliesky Garcia
er kominn á fullt skrið á nýjan leik eftir
að hafa slitið krossbönd í hné á síðasta
ári. Garcia upplifði erfiðustu tíma ferils-
ins á meðan á langri endurhæfingunni stóð en
leyfir sér nú að dreyma um að spila með íslenska
landsliðinu á Evrópumótinu í Noregi á næsta ári.
Eftir Vigni Guðjónsson
É g er ekki sami leikmaður-inn og áður. Slæm meiðsli hafa áhrif á líkamann en
það þýðir samt ekki að ég sé síðri
leikmaður. Ég finn lítið sem ekk-
ert fyrir eymslum vegna meiðsl-
anna og myndi telja að ég væri
orðinn svona 95% góður. Mér líður
mjög vel og hef aldrei haft jafn
gaman af því að spila handbolta og
nú,“ segir íslenski landsliðsmað-
urinn Jaliesky Garcia, leikmaður
Göppingen í þýsku úrvalsdeild-
inni í handbolta.
Eftir að hafa slitið krossband í
hægra hné í október á síðasta ári
og brotið bein í vinstri hendi í
ágúst er Garcia loksins orðinn
heill heilsu og þykir hann hafa
spilað afar vel í síðustu leikjum
Göppingen. „Ég bæti við mig
nokkrum mínútum í hverjum leik
og er farinn að spila allt að 20-30
mínútur í leik. Þjálfarinn tekur
enga áhættu með mig og vill auka
álagið jafn og þétt. Ég er mjög
sáttur við það.“
Þann 25. október næstkomandi
er eitt ár liðið frá því að Garcia
sneri sig illa á æfingu með
Göppingen með þeim afleiðingum
að krossbandið slitnaði. Garcia fór
í aðgerð nokkrum dögum síðar og
við tók löng og ströng endur-
hæfing sem fól í sér sjúkraþjálfun
og styrktaræfingar. Garcia segir
fyrstu sex mánuði ársins hafa
reynst sér afar erfiða. „Það er
margt sem fer í gegnum hugann á
svona stundum. Það kom fyrir að
ég efaðist um að ég myndi spila
handbolta nokkurn tímann aftur.
Ég held að þeir einu sem átti sig á
því andlega álagi sem fylgir því að
æfa einsamall í yfir hálft ár séu
þeir sem hafa lent í því sjálfir,“
útskýrir Garcia.
GEFUR KOST Á SÉR Í
LANDSLIÐIÐ
Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari
hefur opinberlega lýst því yfir að
Garcia hafi verið sárt saknað í
verkefnum landsliðsins undanfarin
misseri. Garcia spilaði síðast fyrir
landsliðið á æfingamóti í Póllandi
fyrir tæpum tveimur árum, en
hann hefur auk þess misst af
síðustu þremur stórmótum vegna
meiðsla eða persónulegra ástæðna.
„Ég hef saknað þess að spila fyrir
landsliðið,“ segir hann. „Það er
alltaf öðruvísi að spila með
landsliði en félagsliði. Andrúms-
loftið er skemmtilegra og það er
alltaf gaman að hitta strákana.
Auk þess fær maður þá tækifæri
til að koma til Íslands,“ segir
Garcia og hlær en hann hefur
verið í góðu sambandi við Alfreð
allt frá því að endurhæfingin
hófst.
„Við ræðum alltaf saman annað
slagið og förum yfir stöðuna. Mitt
viðhorf gagnvart landsliðinu er
ávallt það sama – ef ég er heill
heilsu gef ég kost á mér,“ segir
Garcia. Framundan eru æfinga-
búðir með landsliðinu sem eru
fyrsta skrefið í undirbúningnum
fyrir EM í Noregi sem fram fer í
upphafi næsta árs. Garcia vonast
til þess að vera valinn í þann hóp.
„Það var hrikalegt að missa af HM
í Þýskalandi á þessu ári og það er
langt síðan ég fór að hugsa um EM
í Noregi. Mig dreymir um að fá
tækifæri til að spila þar.“
DREYMIR UM EM Í NOREGI
Garcia segir að eitt af því
jákvæðasta við að vera valinn
í landsliðið sé tækifærið til að
koma til Íslands, skoða landið og
heilsa upp á vini og kunningja.
SPORT/GVA
12 sport
Markúsar Mána Michaelssonar, besta leikmenn
Íslandsmótsins í fyrra, hefur verið sárt saknað hjá
handknattleiksliði Vals það sem af er tímabili í N1-
deildinni, en hann hefur lítið sem ekkert æft með
liðinu í haust vegna anna í vinnu. Forsvarsmenn
Straums, fjárfestingarbankans sem Markús Máni
starfar hjá, eru hins vegar í skýjunum með að geta notað krafta
hans að fullu. Markús Máni er menntaður viðskiptafræðingur og
hefur starfað hjá Straumi frá því hann sneri aftur til Íslands úr
atvinnumennsku í fyrra.
„Markús Máni er algjör lykilmaður hjá okkur. Við erum afskaplega
fegnir að hafa hann,“ segir Höskuldur Ari Hauksson, yfirmaður
markaðsviðskipta hjá Straumi, en það er sú deild sem Markús Máni
starfar hjá. Höskuldur hefur starfað hjá Straumi frá því í apríl en
segir Markús hafa heillað sig upp úr skónum frá þeim tíma. „Hann
er frábær drengur, öflugur starfskraftur og alveg pottþéttur.“
Á handboltavellinum er Markús Máni þekktur fyrir mikinn dugn-
að og kröftugan leik. Hann þykir mikill leiðtogi á velli og tekur
ævinlega af skarið þegar þörf er á. Höskuldur segir að Markús hafi
sama mann að geyma í dagvinnunni. „Hann er stjarna, innan vallar
sem utan.“
STJARNA INNAN VALLAR SEM UTAN
Jaliesky Garcia
Fæðingardagur: 28. janúar
1975
Hæð: 1,94 cm
Landsleikir: 39
Mörk: 148 (3,8 að meðaltali
í leik)
VISSIR ÞÚ...
... að tilviljun ein réð því
að Garcia byrjaði að æfa
handbolta, þá níu ára gamall.
Handboltaþjálfari kom í
skólann hans í smábænum
Pinar Del Rio á Kúbu og bað
þá sem hefðu áhuga á að æfa
íþróttina að rétta upp hönd.
Það gerði Garcia, án þess
að hafa hugmynd um hvað
íþróttin snerist um.
... að Garcia kom til Íslands fyrir tilstilli vinar síns, landsliðs-
mannsins fyrrverandi Julian Duranona, sem náði að sannfæra
forráðamenn HK um að fá Garcia á reynslu. Hann hafði þá ekki
æft að viti í um þrjú ár en svo fór að Garcia fékk samning hjá HK.
... að eiginkona Garcia er frá Púertó Ríkó og hefur leikmaðurinn
lýst því yfir að hann muni líklegast flytja þangað þegar hand-
boltaferlinum lýkur. Hann hefur þó hug á því að spila sitt síðasta
tímabil í handbolta á Íslandi.
1902 Alf Common frá Sheffield
Utd. til Sunderland – 520 pund
Fyrsta salan yfir 500 pund
1905 Alf Common frá Sunderland
til Boro – 1.000 pund
Fyrsta salan yfir 1000 pund
1914 Perci Dawson frá Hearts til
Blackburn – 2.500 pund
Fyrsta salan yfir 2.500 pund
1922 Syd Puddefoot frá West
Ham til Falkirk – 5.500 pund
Fyrsta salan yfir 5.000 pund
1928 David Jack
frá Bolton til
Arsenal – 10.890
pund
Fyrsta salan yfir 10
þúsund pund
1949 Eddie
Quigley frá
Sheffield Wednesday
til Preston – 26.000 pund
Fyrsta salan yfir 25 þúsund pund
1957 John Charles frá Leeds til
Juventus – 65.000 pund
Fyrsta salan yfir
50 þúsund pund
1961 Dennis Law
frá Man. City til
Torino – 110.000
pund
Fyrsta salan yfir
100 þúsund pund
1977 Kevin Keegan frá Liverpool
til Hamburg – 500.000 pund
Fyrsta salan yfir 500 þúsund pund
1979 Trevor Francis frá
Birmingham til Nott. Forest
– 1.180.000 pund
Fyrsta salan yfir
milljón pund
1986 Mark
Hughes frá
Man. Utd. til
Barcelona
– 2.300.000 pund
Fyrsta salan yfir
2 milljónir
punda
1987 Ian Rush frá Liverpool til
Juventus – 3.200.000 pund
Fyrsta salan yfir 3 milljónir punda
1989 Chris Waddle frá Tottenham
til Marseille – 4.250.000 pund
Fyrsta salan yfir 4 milljónir punda
1991 David Platt frá Aston Villa
til Bari – 5.000.000 pund
Fyrsta salan yfir 5 milljónir punda
1996 Alan Shearer frá Blackburn
til Newcastle – 15.000.000 pund
Fyrsta salan yfir 15 milljónir
punda
1999 Nicolas Anelka frá Arsenal
til Real Madrid – 22.500.000 pund
Fyrsta salan yfir 20 milljónir
punda
2001 Juan Veron frá Lazio til
Man. Utd. – 28.100.000 pund
Fyrsta salan yfir 25 milljónir
punda
2002 Rio Ferdinand frá Leeds til
Man. Utd. – 30.000.000 pund
Fyrsta salan yfir 30 milljónir
punda
ÞRÓUN KAUPVERÐS Í
ÚRVALSDEILDINNI
ENSKU
Nokkuð
er liðið
frá því að
Markús
Máni
Michaels-
son
reimaði á
sig skóna
í bún-
ingsklefa
Vals-
manna.
SPORT/ANTON