Fréttablaðið - 17.10.2007, Page 6
Nýr meirihluti í borgar-
stjórn tók við í gær. Dagur B. Egg-
ertsson, borgarfulltrúi Samfylking-
arinnar, tók við starfi borgarstjóra
og Margrét Sverrisdóttir, vara-
borgarfulltrúi F-lista, tók við emb-
ætti forseta borgarstjórnar. Hún
stýrði kosningu í ráð og nefndir.
Ekki var gefið upp fyrir fundinn
hverjir yrðu tilnefndir í stjórn
Orkuveitu Reykjavíkur og í ljósi
umræðunnar undanfarna viku ríkti
nokkur eftirvænting eftir því hver
tæki sæti formanns.
Svo fór að kjörnir fulltrúar meiri-
hlutans draga sig úr stjórn fyrir-
tækisins meðan skoðun á því stend-
ur yfir og tilnefna þeir þess í stað
trúnaðarmenn. Fulltrúi Samfylk-
ingarinnar og stjórnarformaður
verður Bryndís Hlöðversdóttir,
aðstoðarrektor Háskólans á Bif-
röst, fulltrúi Vinstri grænna verður
Ástráður Haraldsson hæstaréttar-
lögmaður. Fyrir Framsóknarflokk-
inn situr Jón Sigurðsson, fyrrver-
andi ráðherra. Hann verður
jafnframt varaformaður stjórnar.
Á dagskrá fundarins voru stefnu-
mál nýs meirihluta en umræðan
snerist þó fyrst og fremst um
nýliðna atburði í orkumálum.
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
gagnrýndu vinnubrögð nýja meiri-
hlutans. Í bókun Sjálfstæðisflokks
segir ótrúleg vinnubrögð hjá nýjum
meirihluta að neita að ræða stefnu-
mál sín, þeirra á meðal málefni
Orkuveitu Reykjavíkur. „Það er
heigulsháttur að þora ekki að ræða
í borgarstjórn Reykjavíkur, mál
sem hefur misboðið borgarbúum,
og þeir vilja fá svör við,“ segir í
bókun sjálfstæðismanna.
Frestun á gildistöku vatnalaga um eitt ár er
tilraun ríkisstjórnarinnar til að kaupa sér tíma til að
vinna úr ósamkomulagi milli Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar, sagði Valgerður Sverrisdóttir, vara-
formaður Framsóknarflokksins, á Alþingi í gær.
Rætt var um frumvarp iðnaðarráðherra í umræð-
um um störf þingsins í gær, en þar er lagt til að gild-
istöku vatnalaga verði frestað um eitt ár, fram til 1.
nóvember á næsta ári.
Valgerður sagði gott samkomulag hafa verið milli
sjálfstæðisfólks og framsóknarflokks um vatnalög-
in. Samið hafi verið um það við stjórnarandstöðuna
að skipa nefnd til að fara yfir málið eftir langt mál-
þóf, og það hafi verið fyrir handvömm að það hafi
ekki verið gert.
„Ég hélt eitt augnablik að [...] Valgerður Sverris-
dóttir ætlaði að koma upp og þakka mér fyrir að
hafa mokað út úr flórnum sem hún skildi eftir ómok-
aðan,“ sagði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra.
Vatnalögum sé frestað til að hægt sé að efna loforð
fyrrverandi ríkisstjórnar um að skipa nefnd til að
fara yfir málið.
„Frestur er sannarlega á illu bestur,“ sagði Álf-
heiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna. „[Iðn-
aðarráðherra] getur greinilega ekki staðið við þá
sannfæringu sína, þau kosningaloforð og sameigin-
lega stefnu stjórnarandstöðunnar á síðasta þingi að
fella þessi lög úr gildi.“
Finnst þér biðlaun stjórnmála-
manna of há?
Trúir þú orðum Vilhjálms Þ. Vil-
hjálmssonar um að hann hafi
ekki séð minnisblað um REI?
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu auglýsir eftir
sjálfboðaliðum í vinnu með börnum og ungmennum.
Markmið verkefnisins er að auðvelda ungum innflytjend-
um aðlögun að íslensku samfélagi og skapa vettvang
fyrir íslensk og erlend ungmenni í starfi Rauða krossins.
Sjálfboðaliðar þurfa að vera 17 ára og eldri, hafa áhuga
á vinnu með börnum og ungmennum og sækja grunnnám-
skeið um starf og hugsjónir Rauða krossins.
Nánari upplýsingar í síma 570 4000
og á raudikrossinn.is
er styrktaraðili átaksins
Fyrsta umræða um
frumvarp um afnám einkaleyfis
ÁTVR á sölu á léttu áfengi og
tóbaki hófst í Alþingi á mánu-
dag, hélt áfram í gær, og var
ekki lokið þegar þingfundi var
slitið.
Frumvarpið er samhljóða
frumvörpum sem lögð hafa verið
fram á þingi síðustu fjögur ár, en hafa ekki náð fram að ganga.
Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mælti
fyrir frumvarpinu sem fyrsti flutningsmaður þess. Hann tekur þar við
af Guðlaugi Þór Þórðarsyni heilbrigðisráðherra, sem flutt hefur málið
síðustu fjögur ár.
Umræða á þingi á þriðja dag
Ósætti innan ríkisstjórnar
Maður var sýknaður af
ákæru um líkamsárás í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Honum
var gefið að sök að hafa kýlt
annan mann við Glaumbar í ágúst
í fyrra þannig að hann féll í
götuna, braut tvær tennur og
hlaut heilahristing.
Maðurinn játaði að hafa kýlt
fórnarlambið til að verja sig, en
aðeins laust. Hópur manna hafi
síðan sparkað í hann liggjandi.
Í niðurstöðu dómsins segir að
ekki sé hægt að útiloka að
maðurinn hafi hlotið áverkana við
það að hópur manna hafi veist að
honum, og því ekki hjá öðru
komist en að sýkna.
Urðu að sýkna
vegna óvissu
Það væri óheppilegt
missi lögreglan æfingasvæði á
fyrrverandi varnarsvæði í Hval-
firði, segir Haraldur Johannessen
ríkislögreglustjóri. Þá þurfi vænt-
anlega að leita annað til að stunda
æfingar sem hafa farið þar fram.
Eins og fram hefur komið hefur
útboð á svæðinu og mannvirkjum
sem þar eru farið fram, og átti
Skeljungur hæsta boðið. Sérsveit
ríkislögreglustjóra hefur haft
svæðið fyrir æfingar undanfarin
ár, en henni hefur ekki verið til-
kynnt að hún missi aðstöðuna.
Haraldur segir í tölvupósti til
Fréttablaðsins að hann hafi lagt
áherslu á það við Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra að lögreglan
héldi æfingasvæðinu í Hvalfirði.
Björn sagði ekki tímabært að tjá
sig þegar eftir því var leitað.
Jón Bjartmarz, yfirlögreglu-
þjónn hjá ríkislögreglustjóra og
yfirmaður sérsveitarinnar, segir
að sveitin hafi verið á hrakhólum
árum saman eftir að hún missti
æfingasvæði í Saltvík. Úr því hafi
verið leyst með því að leyfa æfing-
ar á fyrrverandi varnarsvæði í
Hvalfirði. Missi sveitin aðstöðu
þar sé líklegt að við taki óvissutími
á ný.
Jón segir mikinn áhuga á að
halda svæðinu fyrir æfingar sér-
sveitarinnar. Aðspurður segir
hann að vart komi til greina að æfa
á gamla varnarsvæðinu á Miðnes-
heiði; það sé alþjóðaflugvöllur sem
útiloki skotæfingar utandyra.
Nýr meirihluti tekur
við Reykjavíkurborg
Nýr borgarstjórnarmeirihluti Samfylkingar, Vinstri grænna, F-lista og Fram-
sóknarflokksins tók við völdum í gær. Á borgarstjórnarfundi voru nýir formenn
kjörnir í ráð og nefndir og haldnar umræður um atburði síðastliðinnar viku.